• Fréttir
  • Um mig
    • Hrossin mín
    • Ræktun
      • Stilling frá Bjarnastaðahlíð
      • Greinar & hugleiðingar
      • Hestvænt

      Picture
      Um Lindu Karen

      Ég heiti Linda Karen Gunnarsdóttir, fædd 1985 og er B.Sc. nemi á 3. ári í hestafræði við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri og Háskólann á Hólum. Ég stefni ótrauð á að mennta mig áfram í faginu svo ég geti lagt lið við að efla menntun og þekkingu frekar innan hestagreinarinnar í framtíðinni. 

      Stefni á að taka mastersgráðu í hestafræðum, með hreyfingarfræði sem útgangspunkt.

      Vefsíða þessi er til að koma þönkum mínum á framfæri en þeir eru æði margir og gott að geta komið þeim frá sér á vettvangi sem þessum. Einnig er ég með ræktun í smáu sniði sem og litla verslun sem einbeitir sér að vörum er stuðla að aukinni velferð.

      Velferð dýra hefur alltaf verið mér hugleikin og er ég í stjórn Dýraverndarsambands Íslands sem hefur það að leiðarljósi að leggja áherslu á miðlun upplýsinga og fræðslu, en lætur sig þó varða allt það sem snertir bætta meðferð dýra og velferð þeirra.

      Frá árinu 2007 hef ég hef setið fyrir hönd DÍ í Dýraverndarráði sem er ráðgjafi fyrir Umhverfisráðuneyti og Umhverfisráðherra um dýravelferðarmál.

      Ég vona að þessi vefsíða verði lesendum til gagns og gamans.



      Picture
           Fyrri störf tengd hestamennsku:

           Umsjón                                                   2001-2006      
           Krakka- og 
           Unglingavefs 847 


            Tímaritið Eiðfaxi                                  2001-2008 (með hléum, lausapenni)

            Tímaritið HESTAR                                 2003-2005 (lausapenni)

           Skrásetjari WorldFengs                         2006-2008

           Umboðsaðili The Bitless BridleTM         2007-
           á Íslandi.
           
           Umboðsaðili ThinLine undirdýnur         2011-
           á Íslandi.