Stilling frá Bjarnastaðahlíð
IS2001257923
Litur: Dökkjörp
F: IS1993156910 Smári frá Skagaströnd (A: 8,34)
FF: IS1985157020 Safír frá Viðvík
FM: IS1986256009 Snegla frá Skagaströnd
M: IS1989257923 Ágirnd frá Bjarnastaðahlíð (A: 7.85)
MF: IS1985157996 Brúnskjóni frá Árnesi
MM: IS1986257920 Hlíðar-Grána frá Bjarnastaðahlíð
Ræktandi:
Gísli Jóhannsson
Eigendur:
Linda Karen Gunnarsdóttir

Sköpulagsdómur á síðsumarsýningu á Hellu 2011
Sýnandi: Matthías Leó Matthíasson
Höfuð: 8,5
Háls/herðar/bógar: 9,0
Bak og lend: 7,5
Samræmi: 8,0
Fótagerð: 7,0
Réttleiki: 7,5
Hófar: 8,5
Prúðleiki: 8,0
Aðaleinkunn: 8,14
Höfuð: 8,5
Háls/herðar/bógar: 9,0
Bak og lend: 7,5
Samræmi: 8,0
Fótagerð: 7,0
Réttleiki: 7,5
Hófar: 8,5
Prúðleiki: 8,0
Aðaleinkunn: 8,14
Um Stillingu
Stillingu keypti ég veturgamla haustið 2002 af frænda mínum í Bjarnastaðahlíð,
Gísla Jóhannssyni. Ég sá hana fyrst eftir landsmót á Vindheimamelum sama ár og
leist mér heldur betur vel á gripinn.
Hún var svo stór að ég hélt fyrst að þetta væri 3 vetra tryppi, hún gnæfði yfir jafnaldra sína
risinn atarna. Gísli hafði skírt merina Von þar sem honum þótti hún heldur lofandi en
furðufuglinn frænka hans gat ekki sætt sig við jafn venjulegt og ofnotað nafn svo höfuðið var lagt í bleyti um aðra nafngift.
Lendingin varð svo Stilling þar sem hryssan var óvenjulega stillt, yfirveguð og afar elskuleg. Það var líka nógu furðulegt fyrir smekk eigandans og engin þjóðþekkt kóróna bar það nafn í þokkabót.
Ári síðar var hryssan flutt suður yfir heiðar og var hún í góðu atlæti á hestahótelinu Vorsabæ 1 fram á þriðja aldursár.

Stóð undir nafni
Stilling var frumtamin 4 vetra og var alltaf sama gæðablóðið, elskuleg og blíð í öllum meðförum. Hún hrekkti aldrei hnakkinn og að sitja hana í fyrsta skipti var eins og hún hefði ekki gert annað. Hún var gangsett með Beisli án Méla þar sem hún var ekkert óskaplega hrifin af mélunum þegar lengra leið og gekk gangsetning vel. Stilling var í raun mín frumraun í fullnaðartamningu og tók ég minn tíma í tamningu hennar. Þó tafðist það í raun allt vegna aðstæðna hjá mér svo hún varð svolítið eftir á. Ég hef lengi verið á leiðinni með hana í dóm og ætlaði að láta af verða vorið 2010 en þá kom hestapestin svo sýningardraumarnir færðust um ár. |
Í þjálfun hjá Matthíasi Leó sumar 2011
Ég sendi hryssuna í þjálfun hjá Matthíasi Leó Matthíassyni sem er með aðstöðu á Kjartansstöðum og sér einnig um þjálfun og tamningu hrossa þar. Hann reið hryssunni til skiptist með hringamél og Beisli án Méla og gekk það samspil mjög vel enda Matti einstaklega léttur á tauma - en þannig á það að vera. Hann sá einstaklega vel um hryssuna sem var alltaf vel til höfð og afskaplega hænd að þjálfara sínum sem segir í raun alla söguna. Mæli svo sannarlega með þessum flinka reiðmanni ef einhverjum vantar góða tamningu eða þjálfun á sín hross (hendi bara inn símanum að honum óforspurðum hér! S: 865-1756). |
Aðeins mætt í sköpulagsdóm Fljótlega kom í ljós að hryssan byggi ekki yfir skeiði að ráði og þá gerðist okkur ljóst að hæfileikaeinkunninn myndi ekki ná að verða æskileg sökum þess að hryssan væri aðeins að skora um 8,0 fyrir flesta þætti sem er ekki nóg ef skeiðið vantar. Einnig myndi brokkið stigast illa þar sem vantar meiri kraft í það. Þess vegna ákvað ég að mæta aðeins með hryssuna til byggingardóms heldur en að fá lága aðaleinkunn hæfileika á þessa annars ágætu hryssu. |
Stilling - síðasti spretturinn
Hér er myndband af Stillingu sem tekið var eftir byggingardóminn þann 17. ágúst 2011. Ingólfur Arnar Þorvaldsson
tók upp myndbandið og knapi er Matthías Leó.
Á heimleiðinni fylgdum við Ingólfur þeim heim á bílnum og þá tók hann skyndilega upp myndbandsvélina og kallaði ''Stilling, síðasti spretturinn!''.
Ég veit ekki hvert ég ætlaði af hlátri en vissulega var þetta rétt, þetta var allra síðasti reiðtúrinn og tókst hann líka mjög vel
undir léttri taumhönd Matthíasar sem reið henni með mél í þetta skipti.

_________________________________________________________________________
Stóðhestanotkun 2011
Ég hélt Stillingu undir efnilegan, háættaðan stóðhest að nafni Þórketill frá Kjartansstöðum.
Þórketill er ákaflega geðgóður, fallegur og prúður með frábært tölt. Hann varð eftir á í tamningunni vegna þess að hann slasaðist á hóf 4 vetra en er orðinn heill heilsu. Lofandi alhliða hestur sem mjög gaman verður að fylgjast með í framtíðinni.
IS1996187336 Töfri frá Kjartansstöðum (A: 8,45)
IS1989165520 Óður frá Brún
IS1974286107 Terna frá Kirkjubæ
IS1995258300 Þota frá Hólum (A: 8,14)
IS1981187020 Kolfinnur frá Kjarnholtum
IS1978258301 Þrá frá Hólum
Stilling sónaðist fylfull þann 2. september sl. og er því von á hennar fyrsta folaldi mánaðarmótin júní/júlí ef allt gengur að óskum.

_______________________________________________________________________________________________
Stóðhestanotkun 2012
Stefni á að halda Stillingu undir gæðinginn Óskar frá Blesastöðum sumarið 2012 en nú eiga hann erlendir aðilar og maður veit ekki hvort næsta ár verði hans síðasta ár hérlendis. Óskari er stefnt í keppni á næsta ári.
Óskar býr að miklum afturfótahreyfingum sem gerir það að verkum að hæga töltið og hæga stökkið er algerlega úrvals, mikil mýkt, fjöðrun og söfnun í þessum hesti sökum þessa eiginleika - og hann vill ég reyna að sækja í mína ræktun.
IS1996187336 Töfri frá Kjartansstöðum (A: 8,45)
IS1989165520 Óður frá Brún
IS1974286107 Terna frá Kirkjubæ
IS1992287907 Dúfa frá Skeiðháholti 2
IS1987188500 Vákur frá Brattholti
IS1989287907 Stjarna frá Skeiðháholti 2
Aðaleinkunn: 8,22