• Fréttir
  • Um mig
    • Hrossin mín
    • Ræktun
      • Stilling frá Bjarnastaðahlíð
      • Greinar & hugleiðingar
      • Hestvænt

      Ræktun

      Picture
      Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á ræktun og þrátt fyrir að hún sé smá í sniðum
      sem stendur hef ég ákveðna stefnu að leiðarljósi.


      • Ég vil fyrst og fremst rækta geðgóð og viljug hross sem eru heillandi
        og aðsópsmikil á velli. Þau búi á sama tíma yfir mikilli mýkt, fjöðrun, rými og
        góðum fótaburði.

      • Að þau búi yfir úrvalstölti og gangi hreint með skýr skil milli 5 gangtegunda.
        Að þau séu léttbyggð og framfalleg sem og fríð um höfuð og hafi góðan prúðleika.

      • Sérstök áhersla verður lögð á ræktun góðra afturfótahreyfinga sem er sannarlega
        sjaldséður eiginleiki innan stofnsins og verður að varðveita.


      Þessa eiginleika tel ég að megi nást fram með pörun Hrafnslínunnar við Ternulínuna, þ.e. para hryssu undan gæðingnum Smára frá Skagaströnd, sem jafnframt er lítillega skyldleikaræktuð út af Hrafni frá Holtsmúla við niðja gæðings- og kynbótahryssunnar Ternu frá Kirkjubæ.


                                                                                  Hér á eftir er stuttlega fjallað um af hverju ég tel blóð þessara hrossa henta mínu ræktunarmarkmiði.

      Picture
      Hrafn frá Holtsmúla

      Hrafn frá Holtsmúla má telja meðal allra fremstu kynbótahesta sem uppi hafa verið en hann hefur haft afar djúp áhrif á íslenska hrossastofninn.

      Hann var afar sérstakur einstaklingur, heillandi á velli, geðgóður með góðar gangtegundir. Einstakur hestur sem stóð sannarlega upp úr á sínum tíma.

      Hrafn bjó ekki yfir sérstökum afturfótahreyfingum og eru þær í raun í síðri flokki svo þangað er lítið að sækja hvað það varðar en fasið og yfirlitið var sannarlega eftirsóknarvert. 

      Hryssan sem ég er nú með í ræktun er skyldleikaræktuð út af Hrafni og líkist honum um margt sem er til góða.

      Hér má lesa nánar um sögu þessa mikla kynbótahests: Hrafn frá Holtsmúla - Saga stóðhests

      Picture
      Terna frá Kirkjubæ

      Ternu frá Kirkjubæ má sannarlega telja á meðal allra fremstu kynbótahryssna landsins en áhrif hennar hafa náð víða, þá sérstaklega hvað varðar að auka mýkt, fjöðrun og hreingengni á tölti.

      Terna hefur skilað ákaflega miklu í gegnum synina en fjórir þeirra fengu réttindi til 1. verðlauna fyrir afkvæmi (Stígur einn tók við þeim) og einn hlaut heiðursverðlaun (Stígur). Einnig skilaði hún heimsmeistara í fimmgangi og samanlögðu, Huginn frá Kjartansstöðum.

      Einnig hefur hún skilað mestu hvað varðar afturfótahreyfingar en hún bar þann eiginleika sjálf og hefur hann verið að birtast í stöku hrossum út af henni og því mikilvægt að tengjast henni í þeirri tilraun að reyna að ná fram þessum verðmæta eiginleika.

      Lesa má nánar um þessa miklu kynbótahryssu hér: Terna frá Kirkjubæ