Hugleiðingar um tanngníst


Hugleiðing skrifuð á spjallvef Hestafrétta 22. janúar 2009 vegna pistils Magnúsar Lárussonar um tanngníst. Pistil Magnúsar má sjá hér

Sælt veri fólkið

Ég vil byrja á að þakka Magnúsi Lárussyni fyrir áhugaverðan pistil um tanngníst (sem og aðra pistla sem hafa birst hér á vefnum áður) og fá í leiðinni koma með hugleiðingu varðandi viðfangsefnið sem væri vert er að skoða, ekki síst af þeim sem hafa menntun til að rannsaka það faglega. Eiginlega er þetta einskonar viðauki við hugleiðingu Magnúsar.

Taugapína í andliti?
Dýralæknir að nafni Robert Cook sem er sérhæfður í nef, háls og eyrnalækningum hrossa gerði mjög ítarlega rannsókn á áhrifum méla á hesta fyrir nokkrum árum. Upphafið á þessari vinnu var að vann hann sem dýralæknir á veðreiðabrautum í Bandaríkjunum þar sem fjöldamörg hlaupahross voru með blæðingar úr lungum eftir hlaup. Eftir að hafa horft upp á sorgleg dauðsföll langaði honum að kanna ástæður blæðinganna. Niðurstaðan kom honum á óvart - mélin ollu öndunarerfiðleikum þar sem tungan fór stundum of hátt upp í kok við japl og opnaði meltingarveg (þar sem líkaminn býst við fæðu) á kostnað öndunarvegs sem olli lungnablæðingum. Vegna þessa ákvað hann að rannsaka áhrif mélana með dýpri hætti og hófst mikil rannsóknarvinna sem leiddi hann til þess að vilja finna annað sambærilegt stjórntæki sem væri sársaukalaust og hefði ekki áhrif á öndun hestsins. Hann hannaði mélarlaust beisli eftir mikla rannsóknarvinnu sem notast við krossbönd undir kjálka (Crossover bitless bridle - The Bitless Bridle TM), þrýstingur kemur á höfuð til að stjórna hestinum.



En að tanngnístinu - Rannsóknir hans sýndu fram á að mélin hafa áhrif á svokallaða þrenndartaug sem er skyntaug sem liggur frá heila niður í höfuð hestsins.


Taugaendarnir liggja fram í augu, nef og neðri kjálka þar sem mélin liggja. Skv. rannsakendum ertir þrýstingurinn frá mélunum taugaendann sem leiðir óþægindi upp um alla taugina. Er þetta talið ástæða kláðans sem hestamenn þekkja svo vel - þegar hestarnir klóra sér utan í mann og allt hvað eina fyrir eða eftir útreiðartúra. Skv. rannsóknum er það ekki komið til vegna kláða heldur vegna verkja í þessari þrenndartaug og kallast andlits-taugapína (Facial Neuralgia, getur líka átt sér stað hjá mannfólkinu) og hestarnir eru að reyna að nudda þá burt. Það eru fleiri dæmi um taugapínu í andliti sem kemur fram í hegðun hestsins en tanngníst er eitt þeirra skv. Dr. Cook, að það sé ein leið sem hesturinn notar til að reyna að losna við verkinn eða dreifa huganum frá honum. Það sem ýtir undir þetta af minni eigin viðveru í kringum hesta er að hestarnir virðast ekki klóra sér eins og vitlausir í framan eða gnísta tönnum þegar þeir eru með stallmúl eða í öðrum aðstæðum með manninum þar sem méla er ekki krafist.

Þetta þykir mér vera atriði sem væri áhugavert að skoða og rannsaka hérlendis. Svo ég minnist á hugleiðingar Magnúsar þá kann það líka að vera að hesturinn sé hreinlega eingöngu stressaður og gnísti því tönnum en sá möguleiki að hann sé verkjaður er líka fyrir hendi skv. niðurstöðum rannsakenda. Einnig er alltaf einhver orsök fyrir stressi líkt og öðrum tilfinningum og það getur t.d. verið ótti við sársauka í munni eða við álagið í braut og svo framvegis - en þetta verður rannsaka faglega til að fá algeran botn í málið og væri gaman að slíkri rannsókn.

Hér eru einar rannsóknarniðurstöður (samanburður á mélum og mélarlausu beisli, á ensku) Dr. Cook sem koma inn á þetta málefni sem gæti verið áhugavert að skoða (undir titlinum Facial Neuralgia):
Rannsókn

,,P.s''
Nú koma eflaust einhverjir póstar um að ég sé að pota fram vöru sem ég er umboðsaðili fyrir (þ.e. Beisli án Méla) sem er eðlilegt og ber ég virðingu fyrir þeim innleggjum. Hinsvegar er það ekki takmark mitt heldur hefur hugmyndin frá upphafi verið að verða hestum og mönnum liði með því m.a. að gera mélarlaust beisli af þessari gerð aðgengilegt hérlendis - og eru þessar hugleiðingar mínar þeirri hugsjón tengdar, þ.e. að leggja hönd á plóg.

Með kærri þökk og kveðju,
Linda Karen

 

Flettingar í dag: 72
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 155
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 73114
Samtals gestir: 23991
Tölur uppfærðar: 6.9.2010 12:35:41