Hestaskór




Á harðastökki á snúrumúl og í hestaskóm. Vantar þó hjálminn á knapann!


Mér hefur alltaf fundist spennandi að kynna mér hluti sem gætu aukið velferð og vellíðan hestsins. Ég hef um nokkurt skeið verið að velta fyrir mér fótabúnaðinum sem við notum undir hestana sem eru skeifur úr málmi. Menn myndu aldrei nokkurn tímann ganga eða hlaupa með skó með járnbotnum vegna þess hve höggið á fæturna magnast upp og hafa slæm áhrif á bein, liði og sinar og valda verkjum. Hestarnir geta ekki sagt okkur að þeir kenni til í líkamanum eftir reiðtúrana nema með þeim hætti að þeir verða stífari í skrokknum og verða mögulega fljótari að mæðast.



Horse boot Epics, hestaskór.

Þegar hestur hleypur lendir líklega um þreföld þyngd hans á einum fæti fyrir sig, segjum bara um 900 kg högg á fót (væri gaman að gera nánari skoðun á þessu, þetta er svona slump). Hestur með járnskeifur fær aukið högg á fæturna þar sem járnið magnar upp höggið. Allir íþróttamenn sem stunda hlaupasport eru allir í skóm með frábærum dempurum til að vernda líkama þeirra frá höggunum sem geta valdið þeim verkjum og þreytu. Við ættum að bjóða hestunum upp á hið sama að mínu mati og þess vegna er ég ákaflega spennt að láta reyna á þetta. Stilling verður tilraunadýrið í vetur - án méla og í bandarískum Ansur hnakki. Já, við verðum alveg stórfurðulegar dömurnar en mig grunar að henni eigi eftir að líka vel - og þá er markmiðinu náð.



Skeifur og sportskór með dempurum - auðvitað ættum við að bjóða hestinum upp á slíkt rétt eins og íþróttamönnum. Easy walker skeifur, langar að láta reyna á þær.




Munur á höggi á fætur á nokkrum gerðum af skeifum. Talið neðan frá: stálskeifa, stálskeifa með botni/kransi, álskeifur, berfættur hestur, skeifa úr gerviefni eða slíku. Talsverður munur þarna á að virðist. Gaman væri að gera sambærilega rannsókn hérlendis, geng vonandi í málið eftir LBHÍ.



Margar tegundir eru til af hestaskóm, líka vetrarskór. Einnig er hægt að koma fyrir teinum í t.d. venjulega Epic hestaskó til að nota þá á veturna.

Margt er til í hestaheiminum sem er betra en skeifan hvað varðar að vernda hóf hestsins. Margar tegundir eru til af sterkum skeifum úr ýmsum efnum sem dempa högg, setti tengil á það hér að neðan ef áhugi er fyrir því.

Tenglar á áhugaverðar síður um ''hestvænar'' skeifur og skó:

Boa Horseboots
Easywalker-shoes

(bæti fleiru við síðar)

Flettingar í dag: 55
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 155
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 73097
Samtals gestir: 23990
Tölur uppfærðar: 6.9.2010 12:06:22