Smelluþjálfun
Linda með Heimi í kynningu um Smelluþjálfun á Landsmótinu
Það var hún Hrafnhildur Helga vinkona mín sem fann smelluþjálfunina (clickertraining) á youtube og sýndi mér þar hesta gera alls kyns kúnstir algerlega áreynslulaust. Það virtist sem hestarnir væru að gera allt sjálfir og að þeir vildu leggja sig fram - og það er einmitt það sem maður fær út úr því að smelluþjálfa hest. Smelluþjálfun er eingöngu jákvæð styrking (hrós, verðlaun) og er afar áhrifarík. Maður eignast hest sem hugsar. Ég trúi því að smelluþjálfun eigi eftir að koma sterk inn hérlendis síðar meir þar sem hún virkar svo ótrúlega fljótt og vel - og þjálfarinn eignast samband við hestinn sinn sem hann hafði áður aðeins látið sig dreyma um.
Heimir lærði að hneigja sig á 10 mínutum með smelluþjálfun
Í vetur gerðum við dömurnar svo tilraun með þetta sem heppnaðist líka svona vel - hestarnir urðu miklu skarpari og athyglin var mun meiri. Enga stund tók að kenna hestunum hinar ýmsu æfingar eins og að prjóna, hneigja sig, spænska sporið, brosa, rétta manni framfótinn, koma og þ.h. Þetta reyndist einnig praktískt því Hrafnhildur notaði aðferðina til að gangsetja hryssu sem var mjög klárgeng og hjálpaði það mikið að geta sagt hryssunni nákvæmlega með smellunni hvaða hegðun (hreint tölt) ávann henni góðgæti. Um það snýst líka tamning og þjálfun - að hesturinn skilji og vilji vinna með okkur.
Heimir var með um mánaðar-smelluþjálfun að baki en stóð sig samt eins og hetja.
Við bjuggum til dálitla síðu í kringum þetta sem er enn ekki alveg tilbúin (www.smelluthjalfun.net) en hún verður fullgerð bráðlega. Við vorum með bás á landsmótinu í reiðhöllinni fyrir Beisli án Méla og smelluþjálfunina og vorum svo með kynningar 4 sinnum yfir vikuna í hringgerðinu þar. Reyndar heppnaðist það misvel enda hafði ég aldrei gert þetta áður en síðasta sýningin sem var úti heppnaðist líklega best. Ég mun halda áfram að vinna með hross á þennan hátt og mun líklega hefja einskonar umboðssölu á bókum og DVD diskum í gegnum smellusíðuna næsta vetur svo fyrir þá sem hafa áhuga -endilega fylgist með.
Flettingar í dag: 43
Gestir í dag: 20
Flettingar í gær: 155
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 73085
Samtals gestir: 23984
Tölur uppfærðar: 6.9.2010 11:43:15