Beisli án Méla
Heimir í vor á léttu tölti með lipra mánaðarþjálfun að baki en gleðin leynir sér ekki.
Fyrir um ári síðan fann ég heimasíðu um mélarlaust beisli (www.bitlessbridle.com) og heillaðist algerlega af hugmyndafræðinni um sársaukalausa stjórnun. Ég varð steinhissa á öllum þeim skaða og óþægindum sem mél valda hesti - og þeim jákvæðu breytingum sem verða á hestunum þegar mélin eru fjarlægð. Ég fann strax að þetta var eitthvað sem mig langaði að gera fyrir mína hesta - og koma þessu til annara hestamanna. Úr varð að ég varð umboðsaðili fyrir beislið hérlendis. Ég ákvað að kalla beislið ''Beisli án Méla'' sem er þýðing á frumnafninu The Bitless Bridle. Heimasíða var gerð í hvelli þar sem ég og Hrafnhildur vinkona og sérlegur hjálparkokkur sátum sveittar við þýðingar og myndavinnu þar til síða var reiðubúin til starfa - og hefur hún bara batnað síðan.
Glóblesa, gangsett með Beisli án Méla í fyrravetur
Nú hefur liðið einn vetur og yfir 100 beisli seld sem er alveg frábært. Hægt er að skila beislunum innan mánaðar frá afhendingu og höfum við aðeins fengið 4 til baka. Ég hef heyrt margt gott og margir hafa keypt fleiri eftir að hafa keypt eitt, en einnig hafa einhverjir lent í vandræðum og fengið aðstoð. Yfirleitt er vandamálið stillingaratriði. Ef þú átt svona beisli lesandi góður og hefur lent í vandræðum með það - endilega hafðu samband og ég mun með ánægju aðstoða þig.
Við Hrafnhildur vorum með bás á landsmóti fyrir beislið og smelluþjálfunina sem var mjög gaman, nema reiðhöllin var eiginlega ekki virk nema þrjá síðustu dagana sem var heldur fúlt. Við vorum svo með 4 kynningar og var ég fyrst með Heimi minn en hann var svo feitur og aðeins um mánaðarþjálfaður að hann var heldur misheppnað ''beislasýningadýr''. Þá tókum við til okkar ráða og Hrafnhildur sótti gæðing sinn Glóblesu af hagabeit og fóru þær stöllur í um 2 tíma reiðtúr að Hellu til að ná á kynningu á föstudeginum. Hún var mun betri en Heimir og hægt var að sýna þetta nokkuð sómasamlega sem betur fer.
Stilling kát með Beisli án Méla
Beislið hefur breytt mínum hestum á ótrúlegan hátt og ég er svo þakklát fyrir að geta notað það við mína hestamennsku. Ég er þó þakklátust fyrir allt þetta góða fólk sem hefur tekið beislinu opnum örmum og ég óska einskis heitar en að beislið verði þeim öllum til gæfu - sem og öllum þeim sem vilja láta á reyna. Ég mun halda áfram að vera með umboð fyrir beislið hérlendis enda gefur þetta starf mér mjög mikið.
Fyrir þá sem vilja kynna sér Beisli án Méla betur þá er hér slóðin á heimasíðuna:
www.beisli.net
Flettingar í dag: 55
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 155
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 73097
Samtals gestir: 23990
Tölur uppfærðar: 6.9.2010 12:06:22