Mín hross
Hér er stutt yfirlit yfir hrossin sem eru í minni eigu.
____________________________________________________
IS1985177330 Funi frá Stórulág
Funi, daginn sem hann var felldur.
Faðir: Sproti frá Stórulág
Móðir: Elding frá Stórulág
Fyrsti hesturinn minn, fékk hann í jólagjöf árið 1996. Ógleymanlegur gæðingur og mikill vinur minn, hornfirðingur í húð og hár. Hann var felldur 20. september 2008 en ellin var farin að láta til sín taka. Meira um Funa hér.
____________________________________________________
IS1995125030 Heimir frá Meðalfelli
Heimi keypti ég árið 2001, rétt reiðfærann. Virkilega traustur og indæll klárhestur með tölti. Mjög hæfileikaríkur en vantar vilja til að fylgja getunni eftir. Mikill höfðingi í skapi, ákaflega fallegur og skemmtilegur hestur.
Faðir: Kraflar frá Miðsitju
Móðir: Vordís frá Sandhólaferju
Í hagagöngu á Kjartansstöðum vetur 2009. Verður notaður sem fjölskylduhestur og svo þjálfaður frekar í smelluþjálfun til sýningahalds í framtíðinni.
____________________________________________________
IS1996257891 Spóla frá Tunguhálsi I
Ég fékk Spólu að gjöf frá frænda mínum Unnsteini á Tunguhálsi I árið 2003. Klárhryssa með tölti, slasaðist 4 vetra svo ekki reyndist unnt að ljúka þjálfuninni sökum þess hve erfitt hún átti með að bera sig rétt. Tölti á hægu með hárri fótlyftu en bar sig illa vegna mikils misstyrks. Eitt það klárasta hross sem ég hef unnið með, mjög skemmtilegur karakter, næm og mjög fljót að læra.
Faðir: Smári frá Skagaströnd - Aðaleink: 8,34
Móðir: Stjarna frá Akureyri (óþekkt)
Hlaut slakan byggingardóm; 7,45, þar af 8,5 fyrir prúðleika í fyrravor. Þrátt fyrir það og hef ég trú á henni sem kynbótahryssu þar sem ég er hrifin af geðslaginu og hreyfingarupplagi hennar. Langar að eignast heilbrigðan hest (og betur byggðan að vonum auðvitað) með þetta upplag í framtíðinni.
Haldið undir IS2006182342 - Sóta frá Kjartansstöðum í júní - sá lyftir bæði að aftan og framan sem er geta sem ég er afar veik fyrir.
____________________________________________________
IS2009225550 Eldey frá Reykjavík
Eldey fæddist þann 16. júní um áttaleytið. Hún fæddist rauðtvístjörnótt líkt og mig hafði dreymt en varð sótrauð seinna um sumarið mér til ómældrar gleði. Lofandi hreyfingar, fjörug og frökk, verður vonandi ræktunarhryssa hjá mér í framtíðinni.
Faðir: Tývar frá Kjartansstöðum - Aðaleinkunn: 8,14
Móðir: Spóla frá Tunguhálsi I
____________________________________________________
IS2001257923 Stilling frá Bjarnastaðahlíð
Eignaðist Stillingu árið 2002 og hef ég verið að dunda í henni síðan hún var 4 vetra. Eitt blíðasta hross sem ég hef kynnst, fjörug en mjög meðfærileg, mjög fljót að læra og mjög skemmtileg hryssa í öllum meðförum. Í þjálfun hjá mér í vetur í Víðidal. Stefnan er svo sett á landsmót 2010.
Faðir: Smári frá Skagaströnd - Aðaleink: 8,34
Móðir: Ágirnd frá Bjarnastaðahlíð - Aðaleink: 7,85
Flettingar í dag: 19
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 101
Gestir í gær: 30
Samtals flettingar: 47377
Samtals gestir: 17070
Tölur uppfærðar: 10.3.2010 03:51:55