Ræktun
Liðurinn ræktun er eiginlega ekkert sérlega fréttnæmur sem ræktunin hjá mér er nú heldur smá eins og er. Hinsvegar má hafa gaman að svona tengli og því ákvað ég að hafa hann með. Tvær hryssur eru í þessari stórræktun minni, báðar undan Smára frá Skagaströnd sem hefur verið í sérlegu uppáhaldi hjá mér frá því hann kom fyrst fram árið 2000.
Önnur þeirra var seld í júlí 2010 sökum slyss sem dóttir hennar lenti í og vantaði aur til að greiða sjúkrakostnaðinn. Þá er bara ein eftir og ekki er annars folalds að vænta fyrr en árið 2012.
Smári og Terna - góð blanda?
Ræktunarstefna
Allir ræktendur þurfa að móta sér einhverja stefnu í ræktun sinni og temja sér einhverja sérvisku. Ég vil fyrst og fremst rækta hross sem eru fasmikil og bera af í stórum hópi hrossa, geðgóð og viljug, faxprúð, fallega eðlishágeng, léttbyggð og framfalleg með góðar hreyfingar á öllum gangi - en fyrst og fremst vil ég rækta hesta með mikla og fallega hné- og hækilhreyfingu afturfóta. Þær eru lykill þess að íslenski hesturinn haldi séreinkennum sínum áfram sem eini hesturinn með 5 gangtegundir í heiminum - því léleg hreyfing leiðir til styttri hreyfingaferils afturfóta sem eykur aftur hættuna á eðlislægum þrístuðningi á tölti, svifleysis að aftan á öllum gangi (nema feti þar sem það skiptir ekki máli) og svo eykur það hættuna á sviflausu, fjórtöktuðu skeiði.
Ákveðin ræktunarhross gefa af sér slakari hreyfingar en önnur og í framræktun mun vandinn líklega versna, sérstaklega ef hrossum með lélegar afturfótahreyfingar er sífellt parað saman. Ég tel að ef afturfótahreyfingunum verður ekki gefið meiri gaum mun líklega ekki verða langt þangað til að við sjáum hest með eðlislægan þrístuðning á tölti á öllum hraða og er það mjög alvarlegt mál - því þá er búið að rækta hreint tölt úr hestinum og hann er farinn að ''fet-tölta'' og verður ófær um að ganga hreint vegna skertra afturfótahreyfinga. Því mun ég eingöngu halda undir hesta sem búa að góðum afturfótahreyfingum og reyna að rækta slík hross til að verða að liði við að sporna við þessari þróun.
Töfri frá Kjartansstöðum kreppir hækil og hné (inní lendinni, sést ekki hér) - takið eftir hversu hátt fóturinn er frá jörðu. Þetta kallast að lyfta að aftan.
Ég hef verið að velta því mikið fyrir mér hvaðan hinar glæsilegu afturfótahreyfingar Töfra frá Kjartansstöðum koma og hef komist þeirri niðurstöðu að þær hljóti að koma frá Ternu frá Kirkjubæ, móður hans. Óður frá Brún hefur einnig verið að gefa þessar hreyfingar (dæmi: Aron frá Strandarhöfði, Töfri) en hann svo aftur út af Ternu. Einnig hafa dætur hennar á Kjartansstöðum verið að gefa þennan eiginleika mikið áfram í afkvæmum sínum sem styrkti grun minn frekar. Vegna þessa hef ég ákveðið að nota Ternublóðið mikið í minni ræktun og vona svo að fram komi hestur með þennan eiginleika sem er alls óskyldur því blóði svo hægt sé að styrkja eiginleikann enn frekar (eru í dag örfáir). Mér virðist sem það sé erfitt að rækta góðar hné- og hækilhreyfingar, að lélegar hreyfingar séu heldur ríkjandi heldur en hitt. Þetta eru þó aðeins pælingar sem gaman er að velta sér upp úr en ég er að vona að ég geti rannsakað þetta mál fagmannlega í framtíðinni og mun námið á Hvanneyri sannarlega koma sterkt inn þar.
Smári frá Skagaströnd - heillandi höfðingi
Stefna mín er því að ''blanda'' Ternu og Smára frá Skagaströnd saman ef svo má komast að orði með því að para saman afkvæmi og niðja þeirra - þar er að segja mínar Smáradætur og svo syni/niðja Ternu. Vonandi á það eftir að bera góðan ávöxt þar sem þessi tvö hross eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Smári er mikill gæðingur og tel ég hann eiga mun hærri einkunn fyrir hæfileika, þá helst fyrir brokk, vilja og geðslag. Hesturinn er einnig afar heillandi og með gífurlega fallega nærveru - hann sker sig úr hópnum. Geðslagið er úrval og ekkert mál er að skella sér berbakt á hann í stórum hryssuhópi - og alltaf er hann hágengur blessaður. Það sem hefur mest háð honum að mínu mati er ekki fullnægjandi þjálfun - hann hefur að mínu mati aldrei verið fullreyndur til síns allra besta þó hann hafi yfirleitt verið góður klárinn.
Smári á Ístölti árið 2001, 5 sæti. Knapi Magnús Arngrímsson. Hesturinn var alls ekki mikið þjálfaður þegar hann mætti á ísinn - kannski að hann hefði náð lengra hefði hann verið í þjálfun?
Þrátt fyrir að þessi ræktunarsíða hafi heldur lítið að segja þá ætla ég þó að skella upp tenglum fyrir sitthvora ''ræktunarhryssuna''.
__________________________________________________
Hryssur:
IS2001257923 Stilling frá Bjarnastaðahlíð
____________________________________________________
Áður í minni ræktun:
IS1996257891 Spóla frá Tunguhálsi I
Flettingar í dag: 66
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 103
Gestir í gær: 40
Samtals flettingar: 72632
Samtals gestir: 23884
Tölur uppfærðar: 3.9.2010 19:01:43