• Fréttir
  • Um mig
    • Hrossin mín
  • Ræktun
    • Stilling frá Bjarnastaðahlíð
  • Greinar & hugleiðingar
  • Hestvænt

Sannkallað listaverk

Picture

Ég er mjög tilfinninganæm manneskja og elska þegar ég heillast svo af einhverju að það er eins og tíminn standi kyrr.

Í mínum huga er hrossarækt list og ættu hrossin að hrífa áhorfendur með sér líkt og stórkostleg listaverk gera - færa áhorfandann (sem og knapann) inn í stórkostleika augnabliksins.

Það er stórkostleg upplifun þegar hestur í braut á hug manns allan. Það er eins og fótunum sé kippt undan manni í einskærri undrun (og ekki síður ef maður situr hestinn, það er stórkostleg upplifun).

Af öllum þeim hestum sem ég hef séð á minni stuttu ævi hefur þetta aðeins hent mig einu sinni í brekkunni.

Ef ég hefði verið á lífi þegar Hrímnir frá Hrafnagili sigraði LM'82 eða ef ég hefði séð Náttfara frá Ytra-Dalsgerði eða Ternu frá Kirkjubæ undir með berum augum 
- það hefðu sannarlega verið ógleymanleg augnablik.  





Picture
Hugsað með hjartanu

Allt landsmótið 2002, þá 17 ára, beið ég eftir hrossi sem gæti hrifið mig algerlega inn í augnablikið og lagt mér línurnar - kýlt mig í hjartað og sagt mér að það væri málið. 

Sannir listamenn hugsa með hjartanu - og því ákvað ég að treysta alfarið á það við leit mína að því sem myndi henta mér sem ræktanda í framtíðinni. (Þessi hegðan hefur bara aukist með árunum - nú reyni ég hreinlega að hugsa með hjartanu og nota hausinn mest til að reikna. Mæli með því ;)

Ég átti reyndar enga hryssu en ég vissi að það myndi koma síðar (gerðist þá um haustið - keypti Stillingu veturgamla).

Allt mótið horfði ég á hross sem höfðu ættlínur sem höfðuðu til mín en ekkert þeirra náði sérstaklega til mín. 

Ég vildi móta mína ræktunarstefnu eftir þetta landsmót og beið eftir hestinum sem myndi heilla mig, hestinum sem myndi sýna mér í lifanda líki það sem ég vildi rækta og stefna að.



Picture
Baðaður sólargeislum

Þegar ég var búin að rölta í sífellu á milli kynbótavallarins og keppnisvallarins einn daginn var sólu tekið að halla. Hún varpaði fallegum rauðleitum bjarma yfir svæðið.

Ég lötraði upp á kynbótavöll í þeim tilgangi að kíkja á nokkra stóðhesta sem þá áttu að mæta í braut.

Spenntust var ég fyrir einum þeirra sem ég hafði aðeins séð á mynd og vildi ég ekki missa af þeim hesti. Eftir að hafa fylgst með þónokkrum nöfnum heyrði ég nafn þessa hests kallað og sá hann birtast í fjarska. Ég pírði augun þar sem ég stóð við brautarendann og sá hestinn koma á hægu tölti í áttina að mér. 

Það var eins og hann væri svífandi, svo létt og lipur var fóthreyfingin.

Sólargeislarnir sindruðu á dökkum feldinum og hann flaug hverja ferðina á fætur annarri svo einstaklega fallega og svo áreynslulaust að ég hafði aldrei á ævinni séð annað eins. 

Hesturinn færði mig algerlega inn í núið, burt frá öllum hugsunum um fortíð og framtíð sem angrar okkur mennina svo mjög - hann færði mig inn í augnablikið með sér. 
Þvílík upplifun. Tíminn stóð algerlega kyrr og ég fékk kökk í hálsinn - en um leið fannst mér eins og einhver hefði slegið mig snöggan kinnhest.  



Picture
Sannkallað listaverk

Þessi hestur var Töfri frá Kjartansstöðum með Jóhann Skúlason á bakinu og þarna flugu þeir félagar saman hverja ferðina á fætur annarri. 

Listaverk - það er það sem við hrossaræktendur eigum ævinlega að leitast við að rækta - hross sem færa okkur inn í augnablikið, hvort sem við horfum á þau eða sitjum þau.

Ég var algerlega gáttuð og aðeins andstutt þegar ég hrökklaðist frá brautinni eftir þessa sýningu.

Segja má að handarfarið eftir þennan ósýnilega kinnhest sem ég hlaut þetta kvöld vari enn á andliti mínu því ræktunarstefnan sem ég setti mér eftir sýninguna hefur ekki breyst í áranna rás og verður ekki haggað.

Mín ræktun er nú æði stutt á veg komin og nær líklega ekki hámarki fyrr en í kringum fimmtugt en mikilvægt er að setja sér skýrar línur frá upphafi að mínu mati - og hafa listræna upplifun fyrir áhorfanda og knapa á meðal markmiðanna.



Picture
Margt er líkt með bræðrum

Töfri þessi á eldri bróður að móðurinni til sem sannarlega býr að þessum sama eiginleika að færa mann inn í augnablikið.  

Ég fór eitt sinn í reiðtúr 2008 að vetrarlagi með Þorvaldi Sveinssyni ræktanda á Kjartansstöðum - sem að mínu mati er alger listamaður þegar það kemur að hrossarækt (er að reyna að læra listina af honum í leyni).

Hann sat stóðhestinn Tývar og var ég á góðum Keilissyni. Sá rauði greip strax augað frá húsi. Klárinn var sérlega næmur og fimur undir knapa sínum, sporið ákaflega létt og leikandi. Hann var viljugur áfram en einstaklega þjáll um leið. Hann sveif yfir snjónum á brokkinu með miklum fótaburði. Töltið var einstaklega mjúkt, hreyfingarmikið og glæsilegt á að líta. Það var rétt eins og hesturinn hefði ekki fyrir þessu - og knapinn haggaðist ekki í hnakknum. 

Þótt Tývar væri ekki í neinu formi leit hann út eins og 5 vetra foli undir ræktanda sínum, stinnur og fallegur með mikla útgeislun. Klárinn heillaði mig gersamlega þetta vetrarsíðdegi þar sem hann brokkaði og tölti svo fagurlega í snjónum að alger unun var á að líta. Einstakur gæðingur. 



Picture
Kom til mín í draumi

Þessi reiðtúr var sannarlega staðfesting á að ég hafi valið réttan hest vorið 2008 - en nokkru áður en ég hélt Spólu undir hann hafði ég hitt hestinn fyrir í draumi. 

Þar endaði ég á að spyrja hann hvort hann væri hesturinn sem ég væri að leita að þar sem ég stóð fyrir framan stíuna hans í hesthúsi Sigga Matt. 

Þá hætti hann öllum stóðhestalátum sem hann hafði áður verið svo upptekinn af - kom alveg upp að mér, hringaði makkann og horfði á mig. 

Það síðasta sem ég sá í þeim draumi voru augun og þau voru svo ákveðin að ég hringdi á Kjartansstaði með det samme til að fá að halda undir hann.






Picture



Þeir Ternusynir eiga augljóslega auðvelt með að heilla mig upp úr skónum og þykir mér leitt að hafa ekki hitt Ternu sjálfa áður en hún var felld þrítug að aldri árið 2004.

Það hefði verið guðdómleg stund enda fyrirfinnst varla meira ''fan'' að þessari ágætu hryssu þó víða væri leitað - en hún var stórkostleg kynbótahryssa sem á engan sinn líka.

Linda Karen 21.02.2011



Terna frá Kirkjubæ, sannkölluð gæðingamóðir.