• Fréttir
  • Um mig
    • Hrossin mín
    • Ræktun
      • Stilling frá Bjarnastaðahlíð
      • Greinar & hugleiðingar
      • Hestvænt
      Aðkoma mín að Dýraverndarsambandi Íslands frá árinu 2005 12/02/2012
      0 Comments
       
      Picture























      Ég og hundurinn Jónas á bænum Víðinesi í sumar sem er eiginlega við ''túnfótinn'' á Hólum.

      Já, ég er enn á lífi hér í Hjaltadalnum og af nógu er að taka. 

      Það sem er nýjast að frétta er að ég hef mikið verið að bjástra fyrir Dýraverndarsamband Íslands, en aðalfundur verður 10. mars nk. og nóg að undirbúa. Ég setti upp nýja vefsíðu fyrir sambandið nú nýverið sem er nú sennilega með betri vefsíðum sem ég hef sett upp. 

      Picture
      Einnig var ákveðið að gefa út fréttabréf á rafrænu formi sem kallast Dýraverndarinn sem sennilega einhverjir af eldri kynslóðinni muna eftir, en hann var gefin út fyrir mörgum árum sem fræðslurit fyrir dýravini.


















      Mig langaði til gamans að rifja upp hvernig ég byrjaði að koma að Dýraverndarsambandi Íslands sem er að verða svolítil saga.

      Árið 2005, þegar ég var tvítug að aldri, var haldin friðarráðstefna í Ráðhúsi Reykjavíkur og í tengslum við hana friðar- og mannréttindaráðstefna ungs fólks. 

      Mig langaði að leggja af mörkum og ákvað ég því að hafa samband við Sigríði Ásgeirsdóttur heitna, sem var þá formaður DÍ og búin að leggja mikið af mörkum í þágu aukinnar dýravelferðar á Íslandi. 

      Sigríður tók strax vel í hugmyndina og endaði það svo að ég hannaði bækling fyrir sambandið sem bar yfirskriftina -
      ''Sýndu miskunn öllu því sem andar''. 

      Einnig mætti Sigríður á ráðstefnuna og sat með mér á básnum sem var mér mikill styrkur, en ég sat svoleiðis með Árbæjarlaugina einum lófanum og Laugardalslaugina í hinum allan tímann!


      Picture

















      Sigríður bað mig um að fara í sjónvarpsþáttinn Kompás á Stöð 2 fyrir hönd DÍ árið 2007.
      Var það í tengslum við Vatnsendamálið svokallaða, þar sem um var að ræða illa meðferð á hesti.


      Við Sigríður kynntumst ágætlega og vorum alltaf í sambandi en mig langaði mjög að leggja lið með einhverjum hætti. 

      Árið 2007 lést Sigríður í aðgerð sem tvísýnt var með hvernig færi. 

      Áður hafði hún beðið um að Ólafur Dýrmundsson, ráðunautur BÍ, myndi taka við formennsku og hafði hún óskað eftir því við umhverfisráðherra að ég myndi sitja fyrir hönd DÍ í Dýraverndarráði sem er ráðgjafi UST og umhverfisráðherra í dýravelferðarmálum. 

      Ólafur varð við bón hennar og ég fór fyrir hönd sambandsins í Dýraverndarráð, 22 ára gömul. Mörgum kann nú að þykja það ansi ungt en Sigríður ákvað að treysta mér fyrir þessu einhverra hluta vegna.


      Picture
















      Frá samnorrænni dýravelferðarráðstefnu í Finnlandi 2008, ég lengst til hægri og Ólafur annar maður frá hægri. 

      Við Ólafur hófum því uppbyggingu haustið 2007, en mjög mikið hefur hvílt á herðum hans varðandi það uppbyggingarstarf.
      Úr mörgum flækjum þurfti að leysa og er þeim loks að verða lokið nú árið 2012. 

      Starfið er því að fara að hefjast af fullum styrk en uppbygging hefur tekið langan tíma, sem og að fá manneskjur í hópinn með okkur. Nú eru mjög góðar manneskjur með okkur í stjórninni sem hafa lagt mjög mikið af mörkum.

      Ólafur hefur hinsvegar verið mikill styrkur fyrir DÍ og hefur ferðalagið áfram sannarlega verið kröftum hans og óbilandi dugnaði að þakka.

      Ég hef farið tvisvar út á samnorræna dýravelferðarráðstefnu fyrir hönd DÍ, eitt skipti til Svíþjóðar (2007) að beðni Sigríðar og svo Finnlands (2008) þar sem við Ólafur fórum saman. 

      Þessar ferðir voru mjög lærdómsríkar enda dýraverndarsamtök í nágrannalöndum okkar töluvert öflug, þá sérstaklega í Danmörku þar sem 30 manns eru í fullri vinnu á skrifstofu dönsku samtakana, Dyrenes Beskyttelse. 

      Picture

















      Ég man eftir mörgum samræðustundum sem ég átti við Sigríði heitna. Hún lagði mikið til dýraverndar á Íslandi og var í raun orðin alveg ein með sambandið þegar ég kynntist henni árið 2005. Sigríður var dugnaðarforkur, sá m.a. ein um vefsíðu sambandsins, www.dyravernd.is, á gamals aldri. 

      Dýraverndarinn var mikið hugðarefni hennar og minntist hún oft á að hana dreymdi um að geta komið honum út aftur.

      Þann 11. febrúar sl. kom Dýraverndarinn út aftur að mínu frumkvæði eftir fjölmargra ára dvala og verður hann aðgengilegur á netinu um sinn. Uppsetningin á honum sem stendur er nú ekki til að hrópa húrra fyrir en ég á eftir að vinna betur í því þegar tími gefst.

      Ég er ótrúlega stolt af því að Dýraverndarinn sé aftur kominn á stjá og verður gaman að byggja hann upp og vonandi að lokum geta gefið hann út í prentuðu formi til félaga. 

      DÍ er fara að komast á fulla sveiflu eftir langt uppbyggingarstarf, sem er sannarlega mikið gleðiefni.

      Með bestu kveðju frá Hólum, 
      Linda Karen

      Add Comment
       
      Gleðilegt nýtt ár ! 06/01/2012
      0 Comments
       
      Picture
      Við Stilling á kynningu um Beisli án Méla og Smelluþjálfun hjá hestamannafélaginu Sörla í Hafnarfirði í apríl sl.
      Ljósmynd Dalli (www.dalli.is)


      Gleðilegt nýtt ár kæru hestamenn!
       
      Það er búið að vera alveg vitlaust að gera hjá mér yfir hátíðirnar og þess vegna hefur bloggið mitt legið niðri um smá tíma en ég lofa bót og betrun.

      Margt skemmtilegt gerðist árið 2011
      - 
      Var með kynningu á Beisli án Méla og Smelluþjálfun í reiðhöll Sörla í apríl sem var mjög gaman, lét byggingardæma Stillingu og hélt henni undir hest, tók þátt í starfi Dýraverndarsambands Íslands og Dýraverndarráðs sem fyrr en margt gerðist á báðum stöðum á árinu, tók nýja vöru í umboðssölu (ThinLine) og lét drauminn rætast aðeins meira í áttina að lítillri verslun sem flytur inn vörur er stuðla að aukinni velferð hrossa (Hestvænt). 

      Skondnasta atvik ársins var þó sennilega þegar ég flutti leikþátt sem Steingrímur J. Sigfússon í VG um virkni jákvæðrar styrkingar á hegðun (smelluþjálfun) fyrir framan þáverandi 1. og 2. árs nema í hestafræði og Mette Mannseth sl. sumar.

      Að ræða þarna svolítið nýja aðferð í ræðupúlti, klædd í jakka og bindi og hendandi viskustykkjum í allar áttir...
      harla fátt sem toppar það...

      Picture


















      Háskólinn á Hólum að vorlagi. Sennilega er þó enn mjög heimilslegt þar fyrir jólasveinanna sem stendur.

      Næsta lota er að hefjast á Hólum, styttist í útskrift. Ég hlakka mikið til að halda áfram enda eru það alger forréttindi að fá að mennta sig - og ekki síst í því sem maður hefur áhuga á.

      Ég þarf núna að fara á fullt að vinna í B.Sc. verkefninu sem verður spennandi en verkefni mitt fer inn á hreyfingarfræði hrossa sem er nokkuð sem ég hef mikinn áhuga á. Stefni á að halda áfram í mastersnám í hestafræði næsta haust og fara meira inn á hreyfingarfræðina. Það er nú allt á frumstigi en er ótrúlega spennandi.  


      Picture



















      Séð yfir háskólasvæðið á Hvanneyri. 


      Mér langar við þetta tækifæri að nefna aftur hversu þakklát ég er öllu því góða fólki sem gerði, og er að gera þetta
      nám í hestafræði að veruleika með sínu ötula starfi, framsækni og dugnaði.

      Ég verð um leið að fá að nefna hversu frábært viðmót starfsfólkið við LbhÍ og Háskólans á Hólum hefur, reynir að gera allt hvað það getur fyrir nemendur og er mjög styðjandi, bæði kennarar og aðrir starfsmenn. Einnig eru nokkrir kennarar skólanna einstaklega hvetjandi og eru um leið frábærir kennarar sem hafa eflt áhuga manns enn frekar og eru manni ákveðnar fyrirmyndir.

      Þetta nám er þó enn í einhverri mótun og hafa sum atriði liðið örlítið fyrir það á stundum, en auðvitað tekur sinn tíma að byggja hlutina upp svo einstaka misræmi er eðlilegt. Námið á bara eftir að eflast með tímanum, nemendum til góða. 

      Ég er mjög ánægð með námið og verður heldur betur gaman að halda áfram fram á vorið í Hjaltadal.

      Með bestu kveðju,
      Linda Karen 

      P.s. Við ''Steingrímur'' fórum nú yfir níuna fyrir verkefnið í sumar... hver veit nema maður bregði sér aftur í líki hans, nei hehe. ;)

      Add Comment
       
      Nákvæmar hlýðniæfingar framkvæmdar með méllausu beisli og hnakklaust 14/12/2011
      0 Comments
       

      Hér má sjá frábært myndband af knapa sem framkvæmir mjög nákvæmar hlýðniæfingar án hnakks og méla.
      Hesturinn er mjög sáttur og gegnumflæði ábendinga mjög gott, knapinn í frábæru jafnvægi. Glæsilegt par.

      Mélin eru mjög nákvæmt stjórntæki en lítið má útaf bera svo hesturinn verði fyrir óþægindum og/eða misskilji
      knapa sinn. Méllaus beisli eru mildari og þola meira mistök af hálfu knapans þar sem þau liggja ekki yfir eins
      viðkvæmt svæði og munnur hestsins er.

      Picture
      Hin þekkta þýska reiðkona, Uta Gräf framkvæmir æfingu í söfnun með méllaust beisli

      Þó auðvitað hægt að nota mélin sem minnst og sem mildlegast og valda hestinum þannig eins litlum óþægindum og kostur er - en það eru þó þrennir fylgifiskar sem mélin munu aldrei losna við (birtast í mismunandi magni) sem stjórntæki, nánast sama hversu mildlega þau eru notuð.

      1. Það er taugapína í andliti (verkir sem leiða upp heilataug að nafni þrenndartaug, frá taugaendum í tannlausa bili hestsins og upp og um andlitið) sem veldur því að hesturinn reynir að nudda óþægindin burt. Ekki er um að ræða raunverulegan kláða undan kinnólum nema að litlu leiti þar sem hestar klóra sér mjög lítið eða ekkert eftir notkun á méllausu beisli.

      2. Óþarfa framleiðsla á munnvatni. Munnur hestsins er ekki lokaður eins og hann á í raun að vera í þjálfun og hann hefur eitthvað upp í sér til að tyggja sem veldur óþarfa framleiðslu á munnvatni. Hesturinn slefar ef hann nær ekki að kyngja þessu umfram munnvatni. Mennskir íþróttamenn myndu ekki hlaupa með tyggjó eða munninn fullan af slefi sökum ákveðinna óþæginda sem það skapar.

      3. ...sem leiðir að þriðja atriðinu sem fylgir gjarna mélunum en það er truflun á öndun. Ef hesturinn færir tunguna of hátt upp undan mélunum (hreyfir tunguna t.d. fram og til baka) þá getur tungan farið í mjúku gómfilluna efst í munni hestsins sem þá lokar öndunarvegi og opnar fyrir vélinda. Hestar geta gert þetta reglulega yfir einn reiðtúr, mestu einkennin eru að þeir verða undarlega móðir og sveittir. Heyrist þá gjarna rymjandi hljóð í þeim (verið að opna og loka ítrekað fyrir öndunarveg). (hesturinn minn Heimir var með mjög mikil einkenni af þessu, fór þegar ég skipti um stjórnbúnað og hann varð viljugri). 

      Annað sem má benda á er að þegar hesturinn bryður mélin er hann að senda skilaboð til heila um að fæða sé að koma. Hesturinn byrjar að mynda mikið munnvatn og þegar hann kyngir því fer meltingarkerfið af stað sem það á ekki að gera - allt blóðstreymi á að fara til vöðvanna hjá íþróttamanni sem er að æfa, ekki til meltingarkerfa.

      Picture
      Matthías Leó og Stilling í sumar, frábærlega létt og mild taumhönd. Brokkið er nú ekki til að hrópa húrra fyrir... en hálsinn er hinsvegar ''asskoti'' laglegur!

      Ég er því ekkert yfir mig hrifin af mélunum sem stjórntæki út frá þessu sjónarmiði séð, ekki síst vegna þess hversu auðveldlega þau geta skaðað og meitt hestinn í munni. En þau virka auðvitað vel til stjórnunar á hestinum þegar taumhöndin er mild og sumum hestum henta þau ágætlega - þ.e. ef knapinn er það mildur á tauminn að lítil/engin óþarfa hegðunarvandamál birtast samhliða notkun þeirra.

      Sumir skipta einnig reglulega á milli méla og méllausra beisla til að hvíla munn hestsins, gott til að viðhalda næmleika hestsins gagnvart mélunum og mögulega auka hann með hvíldinni. Það átti t.d. vel við Stillingu í sl. sumar.

      Gallar fylgja auðvitað méllausum beislum, en tengist það aðallega harðri og grófri hönd (getur orsakað bólgu þar sem þrýstingur er mikill og reiðmennska harkaleg) og mögulega hönnun sem gerir ráð fyrir að allur þrýstingur fari á einn stað, en hið fyrrnefnda telst þó aðalatriði. Engir óhjákvæmilegir neikvæðir fylgifiskar fylgja hinsvegar notkun méllausra beisla að mér vitandi líkt og gerir við ávallt við notkun méla að einhverju leyti. 

      Það er vitneskja sem veitir mér alltaf ákveðin þægindi þegar ég er á hestbaki með méllaust beisli - ásamt því að ef ég geri mistök þá er ég ekki að fara að valda hestinum óþægindum eða sársauka. Það þykir mér ávallt mjög þægileg tilhugsun.

      Með bestu kveðjum,
      Linda Karen
      Add Comment
       
      Ný vefverslun - Hestvænt 29/11/2011
      0 Comments
       
      Picture













      Nú hef ég loksins lokið við uppsetningu á nýju vefversluninni fyrir ThinLine og Beisli án Méla og er bara nokkuð sátt við afraksturinn.

      Fyrir þá sem vilja kíkja við er slóðin: www.hestvaent.net

      Það hefur lengi verið draumur hjá mér að vera með fleiri vörur og kalla reksturinn þessu nafni, mjög gaman að þetta sé alltaf meira og meira að rætast.

      Picture


















      Ég ákvað að vera með Facebook síðu fyrir vefinn og gefa eina Ultra ThinLine undirdýnu í verðlaun fyrir að kynna öðrum fyrir vefnum á Facebook. 

      www.facebook.com/hestvaent

      ThinLine undirdýnurnar eru frammúrskarandi - og get ég fullyrt að þær séu einar bestu undirdýnur sem hægt er að nálgast á Íslandi í dag..... og sennilega í heiminum miðað við meðmælin...! 

      Ég er mjög stolt af því að gera ThinLine aðgengilegt hestamönnum hérlendis og legg ég mun minna á vörurnar en venjulegar hestavöruverslanir myndu gera til að reyna að halda verðinu sem mest niðri, það getur maður gert þegar reksturinn er lítill.

      Með bestu kveðjum frá ''Norðurpólnum'',
      Linda Karen

      PS. Ég veit að ég er nú ekki búin að vera dugleg að skrifa pósta þar sem ég er með ''gagnlega rýni'' en heil ritröð bíður eftir prófin hér á Hólum - af nógu er að taka og alltaf gaman að því.

      Add Comment
       
      Jólaskaup B.Sc. hestafræðinga 2011 26/11/2011
      0 Comments
       

      Í gærkvöldi var haldið glæsilegt jólahlaðborð fyrir nemendur Hólaskóla og voru allir nemendahópar búnir að gera myndbönd
      til að hafa létt grín á meðan á borðhaldi stóð.

      Við Hvanneyringar, líkt og við erum gjarna kölluð hér á Hólum vorum að sjálfsögðu með myndband sem vakti mikla lukku. 

      Ég sá um að leikstýra þessum frækna stúlknahóp og þess vegna sést ég ákaflega lítið í þessu myndbandi þar sem ég sá alfarið um myndatökuna nema þar sem ég sést í mynd.

      Tvö stutt misheppnuð atriði koma svo alveg í lokin.
      Góða skemmtun!

      Með bestu kveðjum,
      Linda Karen
      Add Comment
       
      ThinLine á leiðinni 03/11/2011
      0 Comments
       
      Stutt viðtal við Elaine Lockhead sem stendur fyrir ThinLine vörunum.

      Fyrsta prufusending af ThinLine dýnunum er rétt ókomin og verður gaman að fá þær í hendur og komast í gang með að kynna þær. Ég verið að vinna að nýrri sameiginlegri heimasíðu fyrir Beisli án Méla  (The Bitless Bridle TM) og ThinLine sem verður vonandi ágæt. Einnig verður hægt að kynna sér smelluþjálfun á vefnum.

      Af nógu er að taka í skólanum þessa vikuna - fortamningar, reiðkennsla og auðvitað bókleg kennsla, alveg ótrúlega gaman. 

      Ég hef notað ThinLine í allt haust í reiðtímana, en sleppti því í dag því ég var aðeins að flýta mér. Eftir tímann fann ég hinsvegar mun á mér, varð hálf lúin í skrokknum og með verk eftir hryggnum. ThinLine dýnan verður ekki geymd í skápnum hér eftir..

      Með bestu kveðjum frá Hólum,
      Linda Karen

      Add Comment
       
      Þrjú ár síðan Funi var felldur 28/10/2011
      0 Comments
       
      Picture
      Funi veturinn 1997.

      Nú eru komin þrjú ár síðan ég lét fella Funa minn frá Stórulág, en hann var svæfður þann 20. október 2008. Funi hafði mikil áhrif á mig með nærveru sinni og segja má að hann hafi óbeint leitt mig inná þær brautir sem ég geng í dag, var mér mikil hvatning í lífinu.

      Þegar ég fékk hestinn í jólagjöf 11 ára að aldri var ekki vitað um ættir hans. Þetta gerði það að verkum að ég las allar ættbækur sem til voru og kunni nánast utan að á sínum tíma í þrotlausri leit að foreldrum hans - sem á endanum fundust. Ég fékk mikinn áhuga á gangtegundum og hreyfingum hesta með honum en ég þurfti að kynna mér þær mjög enda fór hesturinn lengi vel um á lulli, kýrstökki og ýmsu öðru hjaksi sem þurfti að lagfæra. Einnig fékk ég brennandi áhuga á velferð dýra vegna Funa.


      Picture
      Ég og Funi í október 2008.

      Funi kenndi mér margt og var með einstaklega heilandi nærveru, gat alltaf huggað mann ef eitthvað bjátaði á. Hann var samt harður í horn að taka enda með hornfirskt blóð í báðar áttir og virkaði sennilega á flesta sem fremur kaldlyndur og fjarlægur hestur.

      Með mér sýndi hann hinsvegar alltaf á sér betri hliðina, ekki síst þegar hann fór að eldast. Þá var hann orðin ansi kelinn og þótti fátt betra en að fá svolítið faðmlag.

      Picture
      Funi í Andvara um aldamótin.

      Funi hafði nú sínar skoðanir á hlutunum sem er nú sennilega hornfirskt einkenni. Hann varð t.d. ekkert lítið afbrýðisamur þegar ég keypti Heimi á sínum tíma og varð heldur betur skúffaður vel fram eftir vetri. Þeir Heimir urðu þó síðar hinir mestu mátar og tók hann okkur bæði í sátt þarna seinna um veturinn.

      Funi var nú líka með aðra hornfirska takta og einn var sannarlega hraðinn og viljinn, en af því var nóg. Hann gat verið á tölti eða brokki þegar aðrir voru komnir á stökk og var hann einstaklega mjúkur á gangi. Margar stökkkeppnir voru háðar á honum á móti félögum upp stærstu brekkuna (''sem var og hét'') í Andvara og hafði Funi það alltaf þó smár væri.

      Picture
      Ég hef mynd af honum Funa mínum hér á skrifborðinu mínu á Hólum og segja má að hann hvetji mig enn áfram í lífinu þótt hann sé farinn yfir móðuna miklu.

      Með bestu kveðjum að norðan,
      Linda Karen

      Add Comment
       
      Ný vefsíða Kjartansstaða komin í loftið 19/10/2011
      0 Comments
       
      Picture
      Dár frá Kjartansstöðum (Ae: 8,36), undan Tývari frá Kjartansstöðum og Væntingu Stígsdóttur frá Kjartansstöðum.
      Ditte Søeborg og Dár urðu heimsmeistarar í tölti ungmenna á HM í Austurríki í sumar fyrir hönd Danmerkur. 


      Kjartansstaðir hafa fengið nýja og endurbætta heimasíðu sem mun verða mjög lifandi í vetur, bæði með fréttum og nýjum ljósmyndum. Ég setti síðuna upp og tókst hún held ég ágætlega. Mikið er af efnilegum hrossum á bænum sem stefnt
      er með í dóm og keppni á næsta ári svo gaman verður að fylgjast með framvindunni. 

      Einnig eru mörg efnileg hross á söluskrá, bæði mikil keppnisefni sem og ræktunar- og reiðhross.

      Vefsíða Kjartansstaða:  www.terna.is

      En nú er best að fara að sökkva sér ofan í bækurnar - síðasta prófið á þessari stuttönn á föstudaginn kemur..

      Með bestu kveðjum að norðan,
      Linda Karen
      Add Comment
       
      Þórketill frá Kjartansstöðum & draumar í garðinum 09/10/2011
      0 Comments
       
      Picture
      Fékk fréttir af honum Þórkatli frá Kjartansstöðum í dag, en búið er að taka hann á hús eftir gott frí á haustbeit.

      Þórketill þessi er háættaður hestur, undan Töfra frá Kjartansstöðum (A: 8,45) og Þotu frá Hólum sem hlaut 8,40 í hæfileika á sínum tíma. Þota er undan tveimur heiðursverðlaunahrossum, Kolfinni frá Kjarnholtum og Þrá frá Hólum - og Töfri undan Óð frá Brún sem hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og Ternu frá Kirkjubæ, sem telja má með allra fremstu kynbótahryssum íslenskrar hrossaræktar.

      Ekki slæmur genabanki þessi.

      Picture

      Ég hélt Stillingu undir Þórketil þann 3. ágúst síðastliðinn, en ég hafði stefnt á að halda henni undir frænda hans, gæðinginn Tývar frá Kjartansstöðum sem er í sérlegu uppáhaldi. Matthíasi Leó, sem er þjálfari og tamingamaður að Kjartansstöðum, datt í hug að Stilling gæti verið að ganga þegar ég kom og heimsótti hana í ágúst.

      Þórketill var teymdur inn í reiðskemmu til Stillingar til að athuga hvernig hún myndi bregðast við. Kom á daginn að Stilling var nú aldeilis að ganga, en hún hefur aldrei fyrr sýnt slíka hegðan og var ég farin að óttast að eitthvað væri að. Þurfti greinilega stóðhest til. Matti hvatti mig til að nýta tækifærið enda greinilega staður og stund og hesturinn bæði fallegur og efnilegur -
      ég ákvað að slá til og sé ekki eftir því.

      Picture
      ''Spákerlingin''

      Það var mjög skrýtið að rétt áður en ég hélt Stillingu undir Þórketil kom undarlegur en mildur vindur yfir hana, fór hring yfir henni, framhjá mér og yfir hana aftur. Þegar þessi sérstaka orka kom framhjá fann ég að folaldið sem nú yrði til yrði hryssa og að hún yrði brún. Ég hef áður séð fyrir kyn og lit minna folalda, nú er spurning hvort þessi ''vitrun'' mín haldi vatni...

      Draumar í garðinum

      Það getur verið ansi gaman að draumum...

      Mig dreymdi draum veturinn 2008 að ég væri stödd fyrir framan æskuheimili mitt í Breiðholti, Krummahóla um hásumar. Ég gekk með yngri systur minni hægra megin við húsið og út í stóran bakgarðinn. Þegar við komum á milli blokkanna blasti strax við okkur hrossahópur á stærsta grasblettinum og þar á meðal var Spóla, gamla hryssan mín, hlaupandi með rauðtvístjörnótt folald. Um sumarið fæddist Eldey og reyndist hún rauðtvístjörnótt. Ég fann svo á mér snemma hausts 2009 að Spóla gengi með hestfolald (Funi jr.) og sömuleiðis haustið 2010 - Spóla kastaði rauðu hestfolaldi 2011 sem er í eigu nýrra eigenda hennar.

      Haustið 2008 dreymdi mig annan draum sem gerðist í garðinum að Krummahólum. Þá var það góður vinur minn og kona hans með mjög lítið barn, dúðað, enda var snjór yfir öllu. Þau gengu til mín vinstra megin milli húsanna og réttu mér barnið þar sem ég stóð í garðinum. Svo vaknaði ég.

      Stuttu seinna sagði ég þessum vini mínum í gamni að barnið yrði stúlka, skolhærð með blá augu, hárið svolítið hrokkið.
      Þarna vissu þau ekki kynið og um vorið fæddist þeim stúlka, skolhærð með blá augu - hárið svolítið hrokkið.

      Picture
      Snúið aftur í garðinn 2009

      Haustið 2009 dreymdi mig að ég væri að ganga með Hrafnhildi vinkonu heim að Krummahólum og fórum við vinstra megin við blokkina. Vor var í lofti. Á stærsta grasblettinum var risastórt ryðgað rör og vorum við heldur forvitnar og gengum að því þvert yfir garðinn. Við litum inn í rörið og lá þar fríð jörp hryssa með múl á höfði. Lá lítið folald við hlið hennar ofan á ræktarlegu taglinu. Taumur lá í múlinn og leiddum við hryssuna út og kom í ljós að hún var bæði stór og myndarleg.

      Fíngert folaldið kom út á eftir og reyndist það vera hryssa. Liturinn var svolítið óræður, var svona músarlituð einhvern vegin - en litla hryssan var ákaflega fríð, eitt það fallegasta folald sem ég hef augum litið. Hún hreyfði sig afar vel og var mjög léttbyggð og tignarleg, framparturinn afar fallegur.

      Snortin af folaldi í draumi

      Ég varð alveg agndofa í draumnum og gat ekki tekið augun af henni, varð yfir mig heilluð. Hrafnhildur spurði mig undan hverju þetta folald væri og ég svaraði að þetta folald hefði höfuðlagið hennar Stillingar, hún væri móðir hennar. Þá áttaði ég mig allt í einu á því að ég héldi í Stillingu, hún var jarpa hryssan. Hún horfði á mig afar tignarleg og voru augu hennar ákaflega björt.
      Svo vaknaði ég.

      Það undarlega var að tilfinningin við að hitta folaldið fylgdi mér enn og fann ég tár í auganu vegna fegurðarinnar og þess fögnuðs sem hafði fylgt því. Mér leið sem á skýi allan þann morgun.

      Ég þykist vita að þetta folald verði Töfraættað út af útlitinu og nú er spurningin hvort þessi draumur sé um Þórketilsdóttirina sem ég þykist hafa séð fyrir...maður verður nú að láta sig dreyma.....

      En þangað til má velta fyrir sér - hvað er þetta með garðinn í Krummahólum?!

      Með bestu kveðjum,
      Linda Karen
      Add Comment
       
      Thinline - Betra fyrir knapann, Betra fyrir hestinn 03/10/2011
      0 Comments
       
      Picture





















      Nýtt á Íslandi - ThinLine !

      Nú verð ég að segja svolítið frá nýju vörunni sem ég er orðin umboðsaðili fyrir hérlendis. 

      Þessar ágætu vörur ganga undir nafninu ThinLine og búa þær yfir sérstökum eiginleikum vegna efnis sem notað er í þær. Vörurnar eru undirdýnur, botnar, hlífar og fl.



      Dempar högg 


      Ég kynntist ThinLine þegar ég var að vafra á netinu síðasta vetur. Ég ákvað að festa mér eitt eintak til prufu enda vakti lýsingin á vörunni mikinn áhuga minn. Sagt var að dýnan dempaði högg gífurlega, bæði á hest og knapa, losaði vel hita, virkaði sem stoppdýna á hnakkinn (bæði gott fyrir knapa og hest) og dreifði einnig þrýstingi jafnar um bak hestsins. 

      Mér leist heldur betur vel á þetta, ekki síst varðandi dempunina, en ég fékk oft óþægindi í liðamót eftir reiðtúra. Einnig upplifði ég gjarna þreytutilfinningu í líkamanum þegar ég var komin heim úr hesthúsinu og því fannst mér ThinLine sannarlega skoðandi.


      Picture






















      Ný tilfinning

      Sumir muna kannski eftir virkislausa Fhoenix Vogue hnakkinum sem ég keypti hér um árið - frábær hugmynd sem virkaði að hluta (féll vel að hestinum og dempaði högg) en hnakkurinn var að mörgu leiti meingallaður. Ég setti út á þetta við framleiðanda sem breytti hönnun hnakksins eftir minni ábendingu en ekki fékk ég að skila gripnum svo ég varð að selja hann aftur út til Bretlands. 

      Þá sat ég eftir með ágæta reiðdýnu sem ég neyddist til að nota alfarið síðastliðinn vetur. Þegar ég reið svo út fékk ég iðulega þreytuverki í liðamót enda um enga dempun að ræða í dýnunni. 

      ThinLine undirdýnan barst mér svo snemma vetrar og var ég mjög spennt að reyna hana. Um leið og ég settist á bak með ThinLine undir reiðdýnunni var strax eins og eitthvað væri breytt. Tilfinningin var eins og maður sæti þéttar og betur á hestinum og maður fann varla höggin sem komu áður. 

      Eftir þennan fyrsta reiðtúr með Thinline fékk ég enga verki í liði eða upplifði þreytutilfinningu - og ég tók einnig eftir því að hryssan varð mun ferskari og beitti sér betur en ella, þá sérstaklega á brokki.



      ThinLine stóð fyrir sínu


      Ég reið hryssunni áfram frameftir vetri með þessum hætti, en fylgdist þó glöggt með bakinu á henni. Hún virtist alltaf stálslegin og kveiknaði sér hvergi þótt ég riði henni 3-5 sinnum í viku með virkislausa reiðdýnu og ThinLine dýnuna undir. 

      Susi Braun dýralæknir kom til að hnykkja hryssuna snemma vors og bað ég hana sérstaklega um að meta bakið á henni til að vera viss um að allt væri með felldu. Susi sagði að hryssan væri mjög góð í baki, engir aumir blettir og allt í toppstandi. Nú er ég ekki að mæla með ofnotkun reiðdýna en þetta sýndi mér að ThinLine dýnan stóð fyllilega fyrir sínu, bæði fyrir mig sem knapa og fyrir hryssuna.

      ThinLine hef ég einnig prófað undir virkishnakka, dýnan heldur áfram að taka á sig högg sem ella hefðu lent á hesti og knapa. Virkishnakkar eru hannaðir m.a. til að taka á sig högg en þrátt fyrir það finnur maður heilmikinn mun að vera með ThinLine undirdýnuna - og án hennar. 

      Ég ríð núna út í Ástund Xenophon sem er mjög góður hnakkur, en þó verð ég að hafa ThinLine með í hvern reiðtúr ef ég vil vera alveg laus við alla þreytu í skrokknum.


      Picture












      ThinLine ein sinnar tegundar á Íslandi

      ThinLine undirdýnurnar eru einfaldlega frábærar og sameina krafta margra undirdýna í einni - en ThinLine hefur sennilega ein þann eiginleika að dempa mjög högg af undirdýnum hérlendis. Ég er ferlega spennt fyrir þessum vörum og hef mjög mikla trú á að þær geti orðið hestum og mönnum að gagni hér á landi og stuðli að aukinni velferð beggja.

      Vefsíða fyrir þessar frábæru vörur er í vinnslu og verður enginn svikinn af ThinLine undirdýnunum, ein slík ætti að vera skyldueign í hverju hesthúsi að mínu mati miðað við virkni hennar fyrir knapa og hest.

      Hér má lesa nánar um virkni ThinLine á enskri vefsíðu framleiðanda á meðan sú íslenska er í smíðum:
      www.thinlineglobal.com/

      Með bestu kveðjum,
      Linda Karen


      Add Comment
       
      << Previous

        Hestabloggarinn

        Picture
        Linda Karen Gunnarsdóttir
        lindakaren@beisli.net
        s: 869-3902

        Tenglar

        Dýraverndarráð
        Dýraverndarsambandið

        Gamla bloggsíðan
        Hestvænt
        Klárhestar

        Kjartansstaðir
        Mánaskál
        Valbergshestar


        Eldri fréttir

        February 2012
        January 2012
        December 2011
        November 2011
        October 2011
        September 2011
        August 2011

        RSS Feed