• Fréttir
  • Um mig
    • Hrossin mín
    • Ræktun
      • Stilling frá Bjarnastaðahlíð
      • Greinar & hugleiðingar
      • Hestvænt

      Hrossin mín
      ______________________________________________________________________________________________

      Funi frá Stórulág

      Picture
      Fyrsti hesturinn minn, fékk hann í jólagjöf árið 1996. Fæddur 1985 að Stórulág.

      Ógleymanlegur gæðingur og mikill vinur minn, hornfirðingur í húð og hár.

      Funi var felldur 20. október 2008 en ellin var farin að láta til sín taka og er hann
      grafinn í dýrakirkjugarðinum að Hurðarbaki í Kjós.

      Faðir: Sproti frá Stórulág

      Móðir: Elding frá Stórulág






      _______________________________________________________________________________________________
      Heimir frá Meðalfelli

      Picture
      Heimi keypti ég árið 2001, rétt reiðfærann. Virkilega traustur og indæll klárhestur með tölti.
      Mjög hæfileikaríkur en vantar vilja til að fylgja getunni eftir.

      Mikill höfðingi í skapi, ákaflega fallegur og skemmtilegur hestur. 

      Heimir er sammæðra stóðhestinum Adam frá Meðalfelli og gæðingshryssunni Eydísi frá Meðalfelli og er síðasta afkvæmi Vordísar frá Sandhólaferju.

      Faðir: Kraflar frá Miðsitju

      Móðir: Vordís frá Sandhólaferju

      Hefur verið notaður til að kynna smelluþjálfun og verður í framtíðinni notaður sem fjölskylduhestur enda ljómandi góður og traustur reiðhestur.



      _______________________________________________________________________________________________
      Stilling frá Bjarnastaðahlíð

      Picture
      Eignaðist Stillingu árið 2002 þá veturgamla. Klárhryssa með tölti. 

      Eitt blíðasta hross sem ég hef kynnst, fjörug en mjög meðfærileg, fljót að læra.

      Mjög skemmtileg hryssa í öllum meðförum.

      Byggingadómur: 8,14, þar af 9,0 fyrir háls, herðar og bóga.

      Faðir: Smári frá Skagaströnd - Aðaleink: 8,34

      Móðir: Ágirnd frá Bjarnastaðahlíð - Aðaleink: 7,85

      Uppfyllir margt af mínum ræktunarmarkmiðum og verður hér eftir notuð til ræktunar,
      haldið 2011.



      _______________________________________________________________________________________________
      Eldey frá Reykjavík

      Picture
      Eldey fæddist þann 16. júní 2009 um áttaleytið og var mitt fyrsta folald.

      Eldey hefur verið hvers manns hugljúfi frá upphafi og er ákaflega sérstök hvað geðslag og elskulegheit varðar - og ekki síst vegna þess hversu fljótt hún lærir og hversu jákvæð hún er gagnvart manninum.

      Verður sérlegt smelluþjálfunardýr í framtíðinni enda fullkomin í hlutverkið.

      Hryssan fæddist rauðtvístjörnótt líkt og mig hafði dreymt. 

      Faðir: Tývar frá Kjartansstöðum - Aðaleink: 8,14

      Móðir: Spóla frá Tunguhálsi I

      Lofandi hreyfingar, fjörug og frökk, líklega alhliða. 

      Hefur eitthvað slysakarma hvað fæturna varðar og hefur tvisvar 
      verið ansi nærri dauðanum á sinni stuttu ævi.


      _______________________________________________________________________________________________
      Funi jr. frá Reykjavík

      Picture
      Funi jr. (junior eða yngri - gælunafn) fæddist aðfaranótt 7. júní 2010 og er undan mjög efnilegum Töfrasyni að nafni Sóti frá Kjartansstöðum. Móðir Sóta, Krúna frá Kjartansstöðum er undan Tývari svo Sóti hefur því Ternu frá Kirkjubæ þrefalt að baki sér sem mér þykir bara ljómandi. Funi er alhliða hestur.

      Funi jr. hefur öll uppáhaldsræktunarhrossin mín að baki sér eða þau Hrafn frá Holtsmúla, Ternu frá Kirkjubæ, Töfra frá Kjartansstöðum, Smára frá Skagaströnd og Tývar frá Kjartansstöðum svo það hlýtur að koma til góða.

      Funi litli lítur bara mjög vel út og ætti að standa fyllilega undir nafngiftinni að vonum.

      Faðir: Sóti frá Kjartansstöðum

      Móðir: Spóla frá Tunguhálsi I

      Hross í fyrri eigu
      _______________________________________________________________________________________________

      Spóla frá Tunguhálsi I

      Picture
      Ég fékk Spólu að gjöf frá frænda mínum Unnsteini á Tunguhálsi I árið 2003. Klárhryssa með tölti, slasaðist 4 vetra á hnakkabandi svo ekki reyndist unnt að ljúka þjálfuninni sökum þess hve erfitt hún átti með að bera sig rétt. Tölti á hægu með hárri fótlyftu en bar sig illa vegna mikils misstyrks. Mjög skemmtilegur karakter, næm og mjög fljót að læra.

      Fékk tvö afkvæmi undan henni, þau Eldeyju og Funa og bæði hafa þau hennar frábæra geðslag.

      Faðir: Smári frá Skagaströnd - Aðaleink: 8,34

      Móðir: Stjarna frá Akureyri (óþekkt)

      Spóla var seld í júlí 2010 ásamt fylinu við Keim frá Kjartansstöðum til að hægt væri að greiða sjúkrakostnað Eldeyjar dóttur hennar sem slasaðist illa um miðjan þann mánuð.

      Spóla blessunin hefur fengið mjög góða eigendur sem stefna að því að nota hana í ræktun og óska ég þeim alls hins besta.