Fréttir

11.3.2010

Eldey óhölt og nýtt hross í þjálfun



Skemmtileg sumarmynd - Eldey litla alveg búin á því eftir hlaup fyrir myndatöku.
Ég og Spóla í bakgrunni.


Ég kíkti á Kjartansstaði í vikunni til að kíkja á hrossin mín sem þar eru í góðu yfirlæti. Ég valdi óvart versta rigningardaginn þó veðurspáin hefði boðað annað þannig að lítið var um myndatökur. Eldey var heldur betur úfin en leit mjög vel út annars, orðin stór og stæðileg. Hlakka til að sjá hana í sumarfeldinum til að sjá línurnar betur. Hún er alveg óhölt sem er alveg frábært en hún er með stóran ljósan blett á hnénu eftir meiðslin - spurning hvað hann mun dvelja lengi við. Ég skoðaði hana inní reiðskemmu sem er samtengd hesthúsinu ásamt nokkrum öðrum folöldum sem einnig eru á húsi. Hún er með góðar hreyfingar og á ekki eftir að verða í vandræðum með fótlyftu þegar hún verður eldri. Verður væntanlega reist og spengileg undir manni, en framparturinn virðist ætla að koma ágætlega út.




Frumraun mín í hrossaræktinni, Eldey litla, sótrauð tvístjörnótt sem er uppáhaldsliturinn. Vonandi er meira ''uppáhalds'' í þessari litlu hryssu, en það kemur í ljós í framtíðinni.


Ég fékk svo svar frá Guðlaugi Antonssyni ráðunaut þar sem hann sagði að Easy Walker skeifurnar væru því miður ekki löglegar fyrir dómi og þyrfti að athuga reglurnar betur vegna hestvænna skeifna. Það tekur þó svolítinn tíma að endurgera og yfirfara reglurnar en vonandi verður það gert fyrr en seinna. Stilling er því komin á gömlu skóna en er á botnum til að dempa aðeins höggið fram að síðustu járningu fyrir dóm.





Björt í góðum gír.

Svo er ég komin með annað hross í þjálfun en það er Tývarsdóttirin Björt frá Kjartansstöðum. Björt er flugrúm og viljug með mjög gott brokk og tölt, mjög hreingeng með góðan fótaburð. Hún er mjög næm og svarar vel ábendingum, geðgóð og blíð og frábær í umgengni.

Hún er til sölu og mun ég kynna hana hér betur síðar. Hún á þónokkur alsystkini þar sem það hefur reynst vel að para saman Tývar og hryssuna Lindu frá Kirkjubæ, út hafa komið úrvalsreiðhross og mjög efnileg ræktunarhross - eins og hryssan Krúna sem er móðir Sóta (stóðhestsefni sem ég notaði í fyrra) og hryssunnar Tindru sem myndband er af á blogginu Hugleiðing um Ternu frá Kirkjubæ.




Stutt myndband af Björt frá haustinu 2008 þar sem hún er ójárnuð og vel feit eftir sumarbeitina.


Björt er til sölu á sanngjörnu verði og áhugasamir geta haft samband en hryssan er á húsi í Víðidal. Svo er ég bara að þjálfa Stillingu eins og brjáluð því ég reikna með að láta sýna hana á kynbótasýningunni sem haldin verður í Víðidal um miðjan maí. Alltof stutt! Jæja, vona það besta, gera sitt besta og búast við því besta... það er líklega það besta, heheh.

Með bestu kveðju,
Linda Karen

Skrifað 11.3.2010 kl. 22:25 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 55
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 155
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 73097
Samtals gestir: 23990
Tölur uppfærðar: 6.9.2010 12:06:22