Fréttir

2.3.2010

Glæsileg stóðhestsefni til útleigu



Keimur í sveiflu síðasta vor

Þrír efnilegir stóðhestar á fjórða vetur fást leigðir frá Kjartansstöðum í sumar. Ef einhver er að leita að mjög efnilegum stóðhesti til að para við  hryssur sínar næsta sumar er vert að skoða eftirfarandi ungfola nánar.

Meira um hrossaræktina á Kjartansstöðum: www.terna.is




Keimur, þriggja vetra vor 2009

IS2006182337 - Keimur frá Kjartansstöðum

Faðir: Kraftur frá Bringu - aðaleinkunn 8,55. Heimsmeistari í fimmgangi.

Móðir: Tryggveig frá Kjartansstöðum. Ósýnd. Undan Víkingi frá Voðmúlastöðum (10.0 fyrir tölt) og ræktunargullinu Ternu frá Kirkjubæ.

Litur: Rauðstjörnóttur

Kynbótamat: 114








Keimur í stuði síðasta vor, þá þriggja vetra
 

Keimur er í tamningu og gengur vel með hann, viljugur og mjög fús að vinna með manninum. Hann er mjög eðlishágengur, mjög geðgóður, stór og myndarlegur hestur. Sköpulag gott, háar herðar, mjög fallegur frampartur. Líkur Krafti föður sínum að mörgu leiti, sérstaklega hvað varðar fótaburð. Sinnti hryssum sumarið 2008.


Myndbönd af foreldrum:




Kraftur á heimsmeistaramóti 2007.






Tryggveig frá Kjartansstöðum í tamningu á sínum tíma, knapi Jóhann Skúlason.


_____________________________________________________________





Þórketill frá Kjartansstöðum, á þriðja vetur - mynd tekin snemma vors 2009.


IS2006182340 - Þórketill frá Kjartansstöðum

Faðir: Töfri frá Kjartansstöðum
(Aðaleinkunn 8,45 - kominn með rétt til 1. verðl. fyrir afkvæmi)

Móðir: Þota frá Hólum
(Aðaleinkunn 8,14 - undan Kolfinni frá Kjarnholtum og Þrá frá Hólum).

Litur: Brúnstjörnóttur

Kynbótamat: 117


 

Þórketill hefur lofandi hreyfingar, m.a. á stökki, en Töfraafkvæmi virðast flest geta borið sig mjög glæsilega á þeim gangi í miklum burði.




Þórketill er léttbyggður hestur, rúmur og glaður í sinni.
Mynd tekin fyrir um ári síðan.





Mynd síðan vorið 2009, þá á þriðja vetur

Þórketill er mjög fríður og faxprúður hestur, líkist Töfra föður sínum. Alhliða hestur. Viljugur og hágengur. Mjög geðgóður, ljúfur og frábær í umgengni. Sköpulag er gott, háar herðar, frampartur góður. Lofandi stóðhestsefni. Sinnti hryssum sumarið 2008.


Myndir af foreldrum:




Töfri frá Kjartansstöðum, 9,5 fyrir tölt, hægt tölt, stökk og fegurð í reið.





Þota frá Hólum, 8,40 fyrir hæfileika



________________________________________________________________




Sigurhans frá Kjartansstöðum, vetur 2008, þá 2 vetra.


IS2006182336 - Sigurhans frá Kjartansstöðum

Faðir: Dynur frá Hvammi
(aðaleinkunn 8,47. 1. verðlaun fyrir afkvæmi).

Móðir: Jarþrúður frá Kjartansstöðum
(aðaleinkunn: 8,03, undan heiðursverðlaunahestinum Stíg frá Kjartansstöðum og Snörp frá Ytra-Skörðugili, móður Snarps frá Kjartansstöðum, heimsmeistara í tölti 2003.)

Litur: Brúnn

Kynbótamat: 111

Sigurhans er stór og myndarlegur hestur, rúmur, kraftmikill og skrefmikill á brokki. Er í tamningu, orðinn reiðfær. Viljugur með góðan fótaburð, mikið efni. Jákvæður í allri vinnu með mjög gott geðslag, gott sköpulag, háar herðar, fallegur frampartur.


Myndir af foreldrum:




Dynur frá Hvammi. Knapi Þórður Þorgeirsson.





Jarþrúður frá Kjartansstöðum.

Hafir þú áhuga á að leigja einhvern þessara myndarlegu fola í sumar, vinsamlega hafðu samband við mig í síma 8693902 eða með vefpósti lindakaren@beisli.net.

Myndirnar af þeim eru gamlar og væri hægt að útvega nýjar myndir sé áhugi fyrir hendi.

Með bestu kveðju,
Linda Karen

Skrifað 2.3.2010 kl. 13:33 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 72
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 155
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 73114
Samtals gestir: 23991
Tölur uppfærðar: 6.9.2010 12:35:41