Fréttir
24.2.2010
Fréttir af Stillingu, skeifunum og fleira
Stilling og ég síðasta vor.
Nú gerir maður ekki annað en að læra fyrir lokapróf og þjálfa Stillingu Smáradóttur sem hefur gengið hreint ágætlega. Hún hefur tekið miklum framförum en margt er enn eftir. Fhoenix hnakkurinn hefur reynst mjög vel og erum við stöllur báðar sáttar við hann, hjálpar mikið til við rétta ásetu og gefur mikinn stuðning - svo er hann mjög þægilegur enda sætið úr sama efni og Tempur heilsurúmin! Hann mætti þó vera aðeins dýpri til að henta fleiri gerðum af bökum og hef ég bent framleiðendunum á það.
Easy Walker - Nike Air fyrir hesta
Easy Walker skeifurnar hafa einnig gert frábæra hluti og entist fyrsta járning í 7 vikur en Stilling hafði þá verið hreyfð 4-5 sinnum í viku, oftast í löngum túrum. Skeifurnar voru líka alveg á síðasta snúning enda jörðin afar hörð og mun meiri núningur en ella. Gat hæglega farið yfir hörðustu vegi dag eftir dag án þess að það sæist á fótum hryssunnar en oft hefur hún verið viðkvæm undir slíku álagi á járnskeifunum, óð yfir allt án þess að hlífa sér nokkuð núna. Gef Easy Walker því toppeinkunn hvað það varðar, hryssan varð líka öruggari með sig og laus við að druslast með lappirnar einhvern veginn þegar hún er orðin lúin eins og hún gerir með járnið. Tær snilld.
Stilling á skeifunum góðu
Ég er þó að lenda í vandræðum í seinni járningunni því hún stígur núna fyrst niður á tánna heldur en niður á hælinn með framfótum sem er óeðlilegt og gefur í skyn að eitthvað sé að - held að það sé ekki nóg pláss fyrir þunna boltann sem settur var í skeifuna undir hælnum til að halda sköflunum inni í skeifunni, þarf að pússa pláss í hófinn fyrir hann betur næst þegar ég læt járna. Ég er reyndar búin að taka skaflana úr því jörðin var svo hörð og hryssan var eins og á háhæla skóm... og nú snjóar... nú sér maður eftir því að hafa gleymt að Ísland er og verður allltaf... Ísland!
Held að þetta með boltann undir hælnum útskýri fótaburðarleysið sem hefur hrjáð hana undanfarið, ekki gott að hlaupa með stein í skónum og labba á tánum. Sést mjög greinilega þegar maður horfir á hana hlaupa, teygir tánna fram og reynir að lenda fyrst á henni..verð að skoða þetta sem fyrst. Hlakka til að járna hana upp, væntanlega í byrjun mars.
Ég er búin að hafa samband við Guðlaug Antonsson,
hrossaræktarráðunaut til að forvitast um hvort ég megi nota
skeifurnar fyrir dómi en þær passa m.a. ekki við eitt atriði í
reglum um kynbótadóma - þ.e. þær eru þykkari en
venjulegar járnskeifur. Einnig eru þær með brú undir hælnum,
eru ekki opnar í endann eins og járnskeifur sem er mögulega
ekki leyfilegt. Breyta þarf reglunum þar sem þær gefa í skyn
að skeifur úr öðru efni megi vera notaðar - en ef um
gerviefni er að ræða þá verður það að vera aðeins þykkara
en 8 mm (eru 15 mm) til að endast á við járnið, það gefur
auga leið. Það ætti að vera í lagi þar sem þær eru svo miklu
léttari. Reglurnar þarfnast uppfærslu til að gefa hestvænni
skeifum möguleika.
Stilling lítur mjög vel út og orðin nokkuð hraust þó margt vanti enn uppá. Brokkið hennar hefur verið frekar viðkvæmt alla tíð en núna er það orðið mun betra og orðið nokkuð stöðugt og gott, er farin að geta pressað hana á því án þess að hún fari að tölta. Einnig er galopið fyrir skeið, væri nóg að hleypa og gefa henni ábendingu og hún myndi renna í skeiðið - en því þori ég nú ekki enda gæti ég farið með hana í vitleysu, kann lítt á skeiðið. Það er margt gott komið en margt eftir eins og alltaf. Er bara fegin með hvað hún lítur vel út í byrjun mars en fita hefur alltaf verið smá vandamál hjá henni... en hreyfingin er málið! Gef henni 6 kg viðhaldsfóður og fóðurbæti og hreyfi 4-5 sinnum í viku og það hefur slimmað hana mjög mikið, hef ekkert skorið niður við hana í fóðri enda væri það fásinna - ef maður er í líkamsrækt til að ná árangri verður maður að borða eðlilega til að tapa ekki orku. Er algerlega á móti svelti sem er fóðurgjöf undir 5 kg á dag (undir viðhaldsfóðri fyrir hest á húsi í mjög lítillri eða engri brúkun), sumir gera þetta við feit hross og hreyfa þau svo ekki nema 1-3 í viku sem getur ekki verið vænlegt til árangurs né gott fyrir hestinn. Hann þarf sína næringu og verður bara svangur og daufur. Hreyfing og gott matarræði gildir fyrir bæði dýr og menn (enda erum við öll bara dýr heheh), engin töfralausn er til og enginn myndi vilja svelta sig til að grennast!
Tývar í haust
Síðan hans Tývars, www.tyvar.net, er komin með myndbönd og ljósmyndir af 23 afkvæmum hans sem ætti að gefa gott yfirlit yfir hann sem stóðhest. Afkvæmin eru flest undan ágætum reiðhryssum, fáar gæðingshryssur hafa mætt til hans - en þó er árangurinn sannarlega góður. Það fer sífellt að styttast í vorið og mig dauðlangar að halda báðum hryssunum mínum og þar sem ég er með Tývar á leigu þá mun ég sannarlega nota hann enda hestur sem ég kann ákaflega vel við, sannkallaður snillingur. Fólk hefur verið að hafa samband út af honum enda er tollurinn á mjög góðu verði og það sama má segja um hagagjaldið. Trúi því að við munum ná að fylla hjá honum og fer ég brátt að píska hana Maríu Dís, tamningamann á Kjartansstöðum til að þolþjálfa hann vel enda fær hesturinn sko ekkert smá stykki til umráða í sumar.
Þá eru það lokaprófin....
Með bestu kveðju,
Linda Karen
Flettingar í dag: 72
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 155
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 73114
Samtals gestir: 23991
Tölur uppfærðar: 6.9.2010 12:35:41