Fréttir

7.2.2010

Hugleiðing um Ternu frá Kirkjubæ




Terna frá Kirkjubæ ásamt nokkrum afkvæmum sínum

Terna frá Kirkjubæ
má sannarlega teljast til fremstu ræktunarhryssna á Íslandi og hefur hún markað djúp spor í íslenska hrossarækt. Aðeins tveir stóðhestar eru til undan henni á landinu (einn erlendis) og verða þeir að teljast dýrmætir þar sem þeir standa henni næst ættarlega séð, en það eru þeir bræður Töfri og Tývar. Terna hefur skilað 4 stóðhestum sem hafa hlotið rétt til 1. verðlauna fyrir afkvæmi og verður það að teljast mikið afrek. Stígur tók á móti verðlaununum opinberlega og hlaut einnig heiðursverðlaun fyrir afkvæmi árið 1994. Trostan, Tývar og Töfri hafa hlotið rétt til afkvæmaverðlauna og ætla má að Töfri muni taka á móti þeim þó síðar verði - og ekki er ólíklegt að það verði líka heiðursverðlaun seinna meir.




Óður frá Brún undan Stíg og Ósk frá Brún.

Ef maður skoðar þau gæðingshross sem tengjast Ternu þá verður vægast sagt að segja að þau séu æði mörg. Hún kemur víða við og líklega hefur hún hjálpað til við að auka orðspor annara kynbótahrossa, eins og t.d. hryssunnar Óskar frá Brún sem hefur skilað sjö 1. verðlauna hrossum, þar af 6 stóðhestum - en aðeins einn þeirra hefur reynst kynbótahestur, en það er stóðhesturinn Óður frá Brún, undan Stíg Ternusyni. Terna hefur reynst mjög vel í framræktun og hefur bætt töltið víða í stofninum en það var hennar eðall ásamt fallegum framparti. Óður hefur til að mynda skilað frábærum tölturum eins og hestinum Aroni frá Strandarhöfða og svo Töfra Ternusyni sem er með hreint einstaklega mjúkt og takthreint tölt.


Það er gaman að skoða þann hóp hrossa sem Ternublóð er að finna en það kemur í gegnum syni hennar Stíg, Trostan, Tývar og Töfra:





Vel þekkt hross sem tengjast Ternu í gegnum Stíg frá Kjartansstöðum
(undan Náttfara frá Ytra-Dalsgerði) - 37 hross í 1. verðlaun, 480 skráð afkvæmi:


Óður frá Brún, Aron frá Strandarhöfði, List frá Vakurstöðum, Fursti frá Stóra-Hofi, Seifur frá Efra-Apavatni, Adam frá Ásmundarstöðum, Piltur frá Sperðli, Lúta frá Ytra-Dalsgerði, Möller frá Blesastöðum (tvöfaldur Stígur)...







Í gegnum Trostan frá Kjartansstöðum (undan Hervari frá Sauðárkróki)
- 12 hross í 1. verðlaun, 143 afkvæmi skráð:


Sjóli frá Dalbæ, Jór frá Kjartansstöðum, Maístjarna frá Svignaskarði...







Í gegnum Tývar frá Kjartansstöðum (undan Þokka frá Garði)
- 10 hross í 1. verðlaun, 196 afkvæmi skráð:


Glaður frá Brattholti, Dár frá Kjartansstöðum, Spyrnir frá Sigríðarstöðum,
Stimpill frá Kálfhóli...







Í gegnum Töfra frá Kjartansstöðum (undan Óð frá Brún)
-15 hross í 1. verðlaun, 161 afkvæmi skráð:


Krákur frá Blesastöðum, Óskar frá Blesastöðum, Bjarkar frá Blesastöðum,
Tjörvi frá Sunnuhvoli, Sjón frá Hákoti...






Krákur frá Blesastöðum, Töfrasonur

Magnús Svavarson á Blesastöðum sá fljótt gæði Ternu og hefur notað Ternublóðið mikið sem hefur m.a. orsakað gífurlega velgengni Blesastaðabúsins undanfarin ár. Óskar, Krákur, Bjargþór, Kramsi, Bjarkar og Kiljan eru sex 1. verðlauna stóðhestar undan Töfra og þá eru hryssurnar ekki taldar. Möller frá Blesastöðum er svo undan hryssu undan Stíg og hesti út af Stíg. Allt glæsilegir hestar með Ternublóð í æðum. Í rauninni byggir ræktunin að Blesastöðum nær algerlega á Ternu sem er hið besta mál enda gefur það auðsjáanlega góðan árangur.





Árið 1998 var birt viðtal við Þorvald á Kjartansstöðum í Eiðfaxa International og fjallaði það almennt um Ternu og ræktunina á Kjartansstöðum. Magnús lagði orð í belg enda frumtamdi hann Tývar og byrjaði á að segja örlítið frá þeirri reynslu sinni áður en hann talaði um Ternu:


,,Tývar lærði mjög hratt; hann var orðinn mikill töltari eftir aðeins 6 vikur, löngu áður en ég reyndi að setja kröfur á hann. Hreyfingar hans eru mjög sérstakar og ég held að hann geti bætt stofninn í hvaða merahóp sem er. Við ættum að meta meira þessa gerð af gangtegundum. Ég get nefnt Óð frá Brún, undan Stíg sem dæmi. Hann hefur þessar gangtegundir líka. Terna er stórfengleg hryssa, ein af 10 mest verðmætustu hryssunum í landinu.''





Stilling fer undir Tývar í sumar eftir kynbótadóm að vonum en hún hefur Hrafn frá Holtsmúla tvöfalt að baki sér.

Ég ætla að byggja mína ræktun á Ternublóðinu góða og flétta það saman við svolítið Hrafnsblóð en ég á tvær hryssur undan Smára frá Skagaströnd sem er undan Hrafnssyninum Safír frá Viðvík. Ég hef alltaf verið veik fyrir Hrafni þó hann sé nú langt frá því að vera fullkominn - en hann var svona ''turning point'' eða nýtt upphaf fyrir íslenska hrossarækt á sínum tíma - og þykir mér Terna vera það líka með sínar fáguðu hreyfingar og glæsilega útlit. Hugsa að mér ætti að takast sú ræktun ágætlega upp með smá heppni.





En talandi um ræktun þá er hér stutt myndband af alsystur Sóta frá Kjartansstöðum, henni Tindru frá Kjartansstöðum að stíga töltið í fyrstu skiptin. Knapi á hryssunni er María Dís, tamningamaður á Kjartansstöðum. Tindra er mjög lofandi sem gleður mig sérstaklega enda á ég von á folaldi undan Sóta í vor. Gefið mýktinni í afturpartinum sérstaklega gaum, þetta er þáttur sem kemur frá Ternu í gegnum Töfra. Þessi hryssa getur lyft að aftan (sést ekki nógu vel hér á hægu tölti en áhrif þess sjást) sem gerir töltið takthreinna, mýkra og fallegra.

Með bestu kveðju,
Linda Karen

Skrifað 7.2.2010 kl. 22:34 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 43
Gestir í dag: 20
Flettingar í gær: 155
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 73085
Samtals gestir: 23984
Tölur uppfærðar: 6.9.2010 11:43:15