Fréttir

21.1.2010

Draumráðning óskast



Sóti frá Kjartansstöðum á þriðja vetur, undan Töfra og Krúnu Tývarsdóttur síðasta vetur, sótrauður tvístjörnóttur. Ég hélt Spólu undir hann í fyrravor og fór hann utan til Þýskalands fyrir jól. Mjög efnilegur foli.


Mig dreymdi fyrir stuttu að ég væri stödd á grasbala með hvítu húsi á einni hæð.  Húsið var frekar einfalt í útliti og fyrir innan stóð Spóla ásamt þremur mönnum í hvítum sloppum, væntanlega læknum. Fljótlega komst ég að því að þetta væri einskonar fæðingardeild. Ég varð frekar stressuð og beið hvað verða vildi. Fljótlega kom einn læknanna út í dyragættina og fékk mér varlega  í hendurnar lítinn sótrauðstjörnóttan hest.




Sóti frá Kjartansstöðum, þá 2 vetra. Reffilegur foli með miklar hreyfingar. Vonandi verður folaldið sem er á leiðinni eitthvað í líkingu við föðurinn, það yrði ekki leiðinlegt.

Hann var svo smágerður að hann komst fyrir í báðum lófum mínum. Hann var mjög nettur á búkinn og fríður í andliti, var svolítið þreyttur á svip eftir fæðinguna en þó alveg þurr á feldinn. Ég hélt á honum nokkra stund og dáðist að honum og vonaði að hann 
myndi fljótt jafna sig. Svo vaknaði ég. Spóla er fylfull að vonum (sónuð fylfull) og kastar mánaðarmótin maí-júní og gaman verður að sjá afkvæmið, spurning hvort þessi draumur hafi verið einhver vísbending, kemur í ljós. Vona að draumurinn sé fyrir góðu.




Eldey reyndist bera þann lit sem draumurinn gaf til kynna við fæðingu (rauðtvístjörnótt) en um haustið kom í ljós að hún var sótrauðtvístjörnótt.

Fyrir um einu og hálfu ári síðan dreymdi mig fyrir litnum á henni Eldeyju. Draumurinn var þannig að ég var stödd fyrir framan blokkina sem ég ólst upp í, en hún er hluti af röð blokka í Hólahverfinu í Breiðholti. Ég var með yngri systur minni og gengum við saman á milli blokkanna, hægra megin við þá sem ég ólst upp í. Við komum út í garðinn og þar var hópur hryssna með folöldum - og þar á meðal var Spóla mín og rauðtvístjörnótt folald. Þegar ég vaknaði beit ég það í mig að folaldið myndi bera þennan lit - sem það og gerði þó liturinn dökknaði heldur um haustið, mér til mikillrar ánægju.




Stilling skvísa í fyrra

Mig dreymdi annan draum fyrir ekki svo löngu síðan og hann er nokkuð sérstakur því hann er í stíl við drauminn um lit Eldeyjar.

Ég var að ganga á milli blokkarinnar sem ég ólst upp í ásamt vinkonu minni Hrafnhildi, en í þetta skipti vinstra megin við hana. Við gengum út í garðinn sem skiptist í nokkra misstóra grasbala og sáum ekkert nema risastórt, ryðgað rör á þeim stærsta, en það var sami balinn og ég sá Spólu og folaldið í fyrri draumi. Við Hrafnhildur kíktum inn í rörið og lá þar jörp hryssa ásamt gráleitu folaldi sem lá við hlið hennar. Við tókum hryssuna út, en hún var með múl á höfði með áföstum taum og kom í ljós að hún var ákaflega stór og myndarleg. Folaldið kom út á eftir og reyndist vera hryssa. Liturinn var undarlegur, en litla hryssan var ákaflega fríð, fallegasta folald sem ég hef á ævinni litið. Hún hreyfði sig afar vel og var mjög léttbyggð og glæsileg, framparturinn afar fallegur. Ég varð alveg agndofa í draumnum og gat ekki tekið augun af henni, var yfir mig heilluð. Hrafnhildur spurði mig undan hverju þetta folald væri og ég svaraði að þetta folald hefði höfuðlagið hennar Stillingar, hún væri móðir hennar. Þá áttaði ég mig allt í einu á því að ég héldi í Stillingu, hún var jarpa hryssan. Hún horfði á mig afar tignarleg og voru augu hennar ákaflega björt. Svo vaknaði ég. Það undarlega var að tilfinningin við að hitta folaldið fylgdi mér enn og ég fann tár í auganu vegna fegurðarinnar og þess fögnuðs sem hafði fylgt því. Ég sem sagt felldi tár þegar ég var sofandi því ég varð svo snortin! Jaherna. Mig dreymir nánast aldrei hesta nema draumarnir séu eitthvað sérstakir, var sérlega ánægð með þennan. Vonandi á hann eftir að rætast, þ.e. að Stilling eigi eftir að kasta svo fallegri hryssu einhvern tíma á ævinni.

Já, það getur verið gaman að þessum draumum!

Með bestu kveðju,
Linda Karen

Skrifað 21.1.2010 kl. 14:30 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 72
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 155
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 73114
Samtals gestir: 23991
Tölur uppfærðar: 6.9.2010 12:35:41