Nafn:
Farsími:
Tölvupóstfang:
Flokkar:
Mæðgurnar Eldey og Spóla heimsóttar klukkan 2 um nótt þegar Eldey var 6 klst gömul.Hún Hrafnhildur sendi mér aldeilis ljúft myndefni í síðustu viku sem færði mig aftur í tímann um stund eða að aðfaranótt 17. júní 2009. Þá ókum við stöllur að Kjartansstöðum og vorum komnar klukkan tvö um nóttina að sjá folaldið sem hafði fæðst mér (og Spólu) um áttaleytið. Ég var svo spennt og full af tilhlökkun, gat ekki beðið eftir því að sjá frumburð Spólu og Tývars - og mitt fyrsta folald. Ég man að þegar við runnum á hlaðið sá ég rauð eyru standa upp úr grasinu og Spólu mína standandi í makindum sínum yfir þeim. Þegar ég kom út úr bílnum (sem er augnablikið sem myndbandið sýnir m.a.) þá fannst mér ég sjá eitthvað svo óendanlega dýrmætt, tært og fagurt. Það var nýtt líf. Lífið má með sanni kalla stærsta fjársjóðinn, dýrmætara en allt efni í alheiminum og það var einstakt að fá að sjá einn nýjan demant sem var nýkominn í þessa veröld.Eldey 2 daga gömulFolaldið komst svo fljótlega á lappir og þá fórum við að athuga kynið. Ég var sko alveg viss um að þetta væri hestur því mig hafði dreymt fyrir litnum og fannst folaldið vera hestur þar þó ekkert hefði það verið á hreinu í draumnum. Hrafnhildur gólaði að þetta væri hryssa og í eitt augnablik var ég hálf ósátt við það því ég var svo viss um að þetta væri hestur! Svona er maður nú skrýtinn. Fljótlega fór hryssan að skottast um á háhæluðum skónum, en ''hófvörnin'' (einskonar gelklumpur neðan á hófunum) var enn föst á. Það var unun að fylgjast með þessu fjöruga litla lífi með mömmu sína á spretti á eftir sér, sko óhrædd og lífsglöð þessi dama , það sást strax. Mér fannst hún hálfpartinn segja að hún væri sko tilbúin að lifa og lifa lífinu lifandi...heheh. Það er svona hennar karakter hugsa ég. Hún var mjög léttstíg, svifmikil og rúm en átti erfitt með að fóta sig út af hófvörninni. Maður sá einnig glitta í veglega fótlyftu en þá ætlaði hún að steypast á hausinn svo sprikl varð að duga. Hryssan kom svo reglulega og heilsaði okkur vinkonunum með sínu bjarta og glaðlega fasi. Getum sagt að ég hafi fallið fyrir henni þessa nótt enda varla annað hægt. Eldey var strax hvers manns hugljúfi og er ennDegi síðar hlaut hún nafnið Eldey í höfuðið á Funa mínum heitnum (bæði nöfnin vísa í eldinn) og hryssunni Eldey frá Hólum sem var í sérstöku uppáhaldi þegar ég var unglingur. Ég ætlaði mér alltaf að skíra í höfuðið á henni en henni kynntist ég í bókinni um Kirkjubæjarhrossin, en hún var undan Þætti frá Kirkjubæ. Nafnið kom sterkt til mín þegar ég var að velja nafn á hryssuna og þá mundi ég einmitt eftir þessari ákvörðun minni og þá var það ákveðið. Eldey þessi átti nokkur góð afkvæmi og eitt þeirra er skeiðhryssan Ester frá Hólum. Hún var ákaflega hausfríð af myndunum í Kirkjubæjarbókinni að dæma og ekki finnst mér nafna hennar síðri heheh.Ég mæli mjög með því að hitta folöldin snemma og snerta þau. 6 klst gömul var Eldey svo ný að hún hafði enn ekki myndað sér sérstakt álit á mönnunum svo það var auðvelt að nálgast hana, sérstaklega af því móðir hennar er svo elsk mér og því var folaldið rólegra fyrir vikið. Ég tók upp lappir, kjassaði hana og klóraði, tók um eyrun og allt hvað eina - og þetta allt er auðvelt enn í dag. Mæli alla vega mjög með þessu, það flýtir fyrir að hesturinn fái það álit á manni strax að maður sé vinur.Klór er málið!Mér líst mjög vel á hana Eldeyju og þá sérstaklega geðslagið sem mér finnst eitt mikilvægasta atriðið í hrossarækt, allt annað byggist ofan á það. Hún kippir í kynið enda undan frábærlega geðgóðum hrossum. Ég hugsa að ég haldi Stillingu í sumar eftir kynbótadóminn en hún verður 9 vetra í vor og tími til kominn að fara að halda henni. Maður á víst að halda góðum hryssum en ekki að nota þær sem reiðhross. Ég ætla að halda Stillingu undir Tývar og hlakka mikið til að sjá það afsprengi. Hvað Spólu varðar þá er ég ekki alveg viss, finnst allt í lagi að gefa henni frí blessaðri en hún kastar sínu öðru folaldi í lok maí. Væri reyndar ekkert á móti því að fá annað Tývarsafkvæmi undan henni heheh. Spurning hvað gerist.Með bestu kveðju,Linda Karen
Skrifað 5.1.2010 kl. 11:56 af Linda Karen
Bein slóð á færslu
Fara á upphafssíðu