Fréttir

28.12.2009

Gleðilega hátíð!



Eldey og Spóla þann 25. júní síðastliðinn - áður en ég uppgötvaði að sú stutta væri sótrauð sem er litur í sérstöku uppáhaldi. Jónas unnusti minn sést þarna baka til, eitthvað að reyna að stilla Spólu upp...gengur ekkert alltof vel í þessari brekku hehe.

Gleðilega hátíð kæra hestafólk! Afsakið biðina eftir fréttum og hátíðakveðju! Ég hef ekki getað skrifað neitt hér inn vegna internetbilunar sem hefur verið viðvarandi hér undanfarið... svo kom viðgerðarmaðurinn í dag sem ýtti á einn takka á skrambans tækinu og internetið hrökk í gagnið sekúndu síðar..... ég fékk að draga hökuna á eftir mér það sem eftir var dagsins.....!




Gleðilega hátíð! www.tyvar.net

Hér hefur margt skemmtilegt gerst eins og að síðan hans Tývars er komin upp og virðist fólk ánægt með hana sem er alveg frábært. Við Hrafnhildur ætlum að halda áfram að kynna hann enda er þetta frábær gæðingur sem er sannarlega vert að gefa gaum í stóðhestaflórunni. Alger snillingur.

Við Hrafnhildur tókum inn þann 10. des og gekk það mjög vel. Við komum við á Kjartansstöðum til að sækja hryssu að nafni Björt sem Hrafnhildur fékk lánaða hjá Þorvaldi, en henni vantaði reiðhross fyrir veturinn þar sem Glóblesa, hryssan hennar er fylfull. 

Ég rölti út í haga þar sem útigangurinn var og þar á meðal voru Heimir, Spóla, Eldey og Fáni litli (hehe ef bumbubúinn verður hestur... hehe). Hvorki Heimir né Spóla nenntu að heilsa upp á mig... en Eldey gerði sér ferð þvert yfir allan hrossahópinn til að koma og heilsa mér yfir girðinguna. Þekkti mig stelpan! Ég spjallaði við hana og hún þáði smá klór - þegar ég fór í burtu þá stóð hún bara heillengi og mændi á eftir mér eins og glaðlegur hvolpur! Get ekki beðið eftir að hún vaxi úr grasi þessi!




Sóti frá Kjartansstöðum í léttri sveiflu síðasta vetur, þá á þriðja vetur.

Stóðhesturinn sem ég notaði í sumar hefur fengið nafnið Sóti frá Kjartansstöðum og var hann fluttur út til Þýskalands til eiganda síns Alexu fyrir hátíðarnar. Folinn er á fjórða vetur og vonandi á Alexa eftir að nýta tímann enda er hann gífurlegt efni undan Töfra og Krúnu frá Kjartansstöðum, en Krúna er jafnframt undan Tývari. Sóti er frábær blanda þessara tveggja höfðingja - flugrúmur, ferðmikill, reistur og rífur svoleiðis upp fram og afturfætur að unun er á að horfa, afturfótahreyfingar með allra besta móti. Slíkt sést sjaldan hjá íslenskum stóðhestum (og hryssum) og má segja að ákveðin eftirsjá sé í þessum hesti hvað það varðar, en vonandi á hann eftir að gera það feykigott á þýskri grundu. Folöldin okkar Hrafnhildar eiga að koma í heiminn mánaðarmótin maí/júní og verður gaman að sjá þau. Þau ættu ekki að verða svo ólík þar sem hryssur okkar beggja eru undan Smára frá Skagaströnd, ég bíð spennt.





Jón Svavar að setja fyrstu Easy Walker skeifuna á Stillingu.
.
Stilling var járnuð í síðustu viku og gekk það mjög vel. Jón Svavar járningamaður (8642407 - síminn fyrir þá sem vilja fá til sín frábæran járningamann!) og söngvari af guðs náð járnaði hana fyrir mig af stakri snilld og hafði mjög gaman að þessari nýjung. Ég var himinlifandi þegar ég sá fyrstu skeifuna vera komna á, það var langþráður draumur að rætast. Þarna voru sko jólin komin.


  

Fyrsta skeifan komin á!

Ég fór skeifnasprettinn daginn eftir og það gekk ljómandi vel. Mér finnst hryssan vera aðeins léttari á sér en venjulega en áhrifin af skeifunum koma ekki í ljós fyrr en Stilling kemst í almennilega notkun. Fór með hana í fimigerði um daginn til að lofa henni að rasa út og mér fannst eitthvað vera breytt - hún hlífði sér aldrei neitt og spændi bara upp gerðið sitt á hvað, druslaðist aldrei áfram eins og hún gerir annars vanalega þegar hún er búin að sprikla. Gott að ''Nike Air'' er að gera sitt gagn!

Fhoenix hnakkurinn er líka að gera mikla lukku, mjög þægilegur ásetu með frábæran stuðning. Manni líður hálfpartinn eins og einhverjum herforingja, maður situr á hestinum eins og maður hreinlega standi uppréttur! Held ég sé beinni í baki á hestbaki en þegar ég geng núna... og aldrei hef ég nú verið neitt sérstaklega bein í baki! Það verður gaman að sjá hvernig þetta þróast í vetur.




Gæðingamóðirin Terna frá Kirkjubæ og Töfri frá Kjartansstöðum vorið 1996

En af því að ég er búin að vera svo lengi að blogga þá verð ég að koma með frábært myndband í sárabætur. Ég fékk þetta ágæta myndband af facebook-síðu Kjartansstaða (Kjartansstaðir Breeding Farm) sem sýnir Töfra 7 daga gamlan.

Mig langar að biðja ykkur, ef þið hafið tíma, að horfa á það tvisvar - að horfa fyrst til að sjá myndbandið og svo til að sjá afturfótahreyfingar mæðginana. Þarna sést bersýnilega hvernig hnéð og hækilinn virka á einstakan hátt hjá þessum hrossum, og til einföldunar kallast þetta að ''lyfta að aftan''. Þennan eiginleika ættu hrossaræktendur að leggja áherslu á til að fá fram betra ganglag, meiri söfnunareiginleika og hreinni gang - og hreinlega til að við náum aldrei að rækta hreint tölt og skeið úr íslenska hestinum í framtíðinni (sjá ,,Er töltinu stefnt í hættu?'' undir Greinar). Hafið það annars sem allra best!

Með hátíðakveðju,
Linda Karen

Skrifað 28.12.2009 kl. 22:34 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 55
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 155
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 73097
Samtals gestir: 23990
Tölur uppfærðar: 6.9.2010 12:06:22