Fréttir

7.12.2009

30.000 vísindamenn kæra Al Gore




Heimili okkar Jörðin sem er að ofhitna... eða hvað?

Mikill áróður hefur verið í gangi undanfarin ár varðandi að gróðurhúsaáhrifa gæti Jörðinni. Ágætir menn víða um heiminn segja okkur að vegna útblásturs okkar á CO2, eða koltvíoxíðs sé Jörðin að hitna sem muni valda skaðræðislegum breytingum á lífríki hennar. Að hitastigsbreytingin á Jörðinni sé mannkyninu um að kenna.




Veðurfræðingur (til hægri) sem er einn þeirra sem hefur kært Al Gore fyrir svik.


Einna helsti talsmaður þessa er fyrrv. varaforseti Bandaríkjanna, Al Gore, en hann var handritshöfundur og kynnir í heimildamyndinni An Inconvienient Truth, eða Óþægilegur Sannleikur sem varð fræg víða um heim. Margir vísindamenn hafa óskað eftir því að fara í opinberar samræður við hann eftir að þessi mynd var frumsýnd en ekki hefur verið látið eftir þeim óskum. Sjónvarpsstöðvar og aðrir fréttamiðlar hafa ekki viljað sýna neitt efni sem mælir í mót gróðurhúsaáhrifunum og engin gagnrýni eða fræðsla um raunverulega virkni CO2 í loftslaginu hefur fengið athygli.

Nú hafa yfir 30.000 vísindamenn kært Al Gore fyrir svik þar sem það er eina ráðið til að vekja athygli á málinu að virðist og kærendum fer fjölgandi. En af hverju hefur CO2 ekki áhrif á hlýnun skv. óháðum vísindamönnum?






Þetta graf sýnir hitastig á jörðinni (rannsakað úr ís á Suðurskautslandinu) yfir mjög langan tíma og þar sést glögglega að CO2 hækkun fylgir hitastigshækkun, ekki öfugt.






Í heimildamyndinni Óþægilegur sannleikur, eða A Inconvienient truth er komið fram með graf af þessu tagi nema þar er hitastigið og CO2 er stillt upp saman eins og hitastigið fylgi CO2 aukningu... en staðreyndin er sú að CO2 fylgir auknu hitastigi ekki öfugt. Ástæða þess er að CO2 er eðlilegt efni í lofthjúpnum og náttúran framleiðir gífurlega mikið af því, mun meira en allt mannkynið til samans. T.d. koma mun fleiri tonn af þessari lofttegund árlega frá rotnun gróðurs (tré, lauf og fl. rotna, CO2 frá gróðri mest á haustin), rotnun dýra og baktería, CO2 sem úrgangur frá bakteríum svo eitthvað sé nefnt, heldur en frá mannkyninu.




Eldfjöll framleiða mun meira CO2 en mannkynið gerir og þau eru allmörg um heiminn.






Hafið er þó allra mesti framleiðandi CO2 í heiminum og er ein helsta ástæða þess (fyrir utan að aukin rotnun er í meiri hita) að CO2 aukning fylgir hitastigi. Þegar hitinn hækkar hitnar hafið og sleppir CO2 út í andrúmsloftið. Þegar það kólnar aftur tekur hafið aftur til sín CO2. CO2 hefur ekkert með hitaaukningu að gera skv. óháðum vísindamönnum víða um heim. Hvað hitastigsaukningu jarðar síðustu árin varðar þá hefur það ekkert með CO2 að gera heldur virkni sólarinnar og því að loftslagið á jörðinni er síbreytilegt, það eru kulda- og hlýnunarskeið. Árið 1918 botnfraus hafið frá landi út í Grímsey vegna kulda sem var einskonar lokahnykkur á miklu kuldaskeiði sem einkenndi miðaldirnar. Á tímum víkinganna var hinsvegar álíka heitt ef ekki heitara en nú skv. mælingum vísindamanna á íshellu Suðurpólsins. Hvernig má það vera?





Eftirfarandi myndband er brot úr heimildamyndinni A Global Warming Swindle, eða Gróðurhúsaáhrifa-svindlið. Í þessu broti er verið að gagnrýna grafið sem sýnt var í heimildamynd Al Gore og útskýra hvers vegna CO2 hefur ekki áhrif á hlýnun jarðar.





Hér er svo myndbrot úr sömu mynd þar sem sýnt er hvað það er sem hefur raunveruleg áhrif á hitastig Jarðar og hvers vegna það hefur hlýnað hér undanfarin ár.

Myndin í heild sinni :
HÉR





Grein í DV: Vilja að Gore verði sviptur óskarnum fyrir svik: HÉR


En af hverju eru gagnrýnisraddir kæfðar niður og af hverju vill Gore ekki mæta þessum röddum? Af hverju eru fjölmiðlar með hverja fréttina á fætur annari um gróðurhúsaáhrifin en vilja ekki ræða við óháða vísindamenn um málið til að fræðast betur um það, hlusta á gagnrýni?




Dæmi um útreikninga sem kolefnaskatta sem munu hafa áhrif á bandarískar fjölskyldur - og auðvitað munu kolefnaskattar sem þessir berast út um víða veröld, fólkinu til hræðilegrar áþjánar.


Fyrsta ástæðan er að fjölmiðlar elska allt sem gefur í skyn að eitthvað hræðilegt sé að gerast, það selur. Það er þó algert aukaatriði því í raun þá er stefnan að setja kolefnisskatt (CO2-skatt) á allt það sem veldur útblástri koltvísýrings út í andrúmsloftið. Það þýðir að það kemur kolefnaskattur á bíla og allar vélar sem blása út CO2, landbúnað, iðnað, matvælaframleiðslu, og fl. og fl. sem mun lenda á fólkinu (fólkið mun borga kolefnaskattana af olíunni og matvælaframleiðslunni í hærra vöruverði og svo frv.). Í Bandaríkjunum er verið að þróa hundruði kolefnaskatta sem munu verða lagðir fram í framtíðinni í þágu baráttunnar gegn gróðurhúsaáhrifunum.





Það sem á taka á móti þessum sköttum á þó ekki að vera ríkiskassinn heldur ákveðin fyrirtæki að virðist (og jafnvel bankastofnanir að virðist) sem sérhæfa sig gróðurhúsaáhrifunum. Ríkið tekur eflaust eitthvað en þetta skilst mér að sé planið. Kolefnaskatturinn sem verður lagður á fólkið rennur því beint í vasa einkaaðila. Það undarlega er að Al Gore á víst að eiga eitt svona fyrirtæki - og þá fer renna á mann tvær grímur.

Eru gróðurhúsaáhrifin í alvöru til - eða er þetta ein leið glæpamanna (a.k.a. sumra stórfjármagnseigenda, fyrirtækjaeigenda, bankaeigenda...) til að augðast á almenningi á algerlega óréttlátan hátt - líkt og þeir hafa gert svo lengi? Þeir hafa sannarlega auðinn til að markaðsetja þetta fyrirbæri (þeir eiga m.a. stærstu fjölmiðlana sem skýrir margt) sem og kæfa niður alla gagnrýni, sem hefur sannarlega tekist en vonum að gagnrýnin nái samt eyrum almennings til að þessar skattafyrirætlanir verði ekki að veruleika.



Vonum að fagleg gagnrýni á gróðurhúsaáhrifunum nái athygli víða um heim svo stórskattanir á jarðarbúa verði ekki að veruleika enda myndi það þýða meiri fátækt um alla jörð...en meira ríkidæmi fyrir þá örfáu sem halda utan um peningakerfi okkar með eigum sínum (bankar, fyrirtæki...).

 
Gróðurhúsaáhrifa gætir ekki á jörðinni skv. fjölmörgum óháðum (ekki með þessa ákveðnu fjármagnseigendur að baki sér sem vinna hörðum höndum að því að stórskattanir á almenning verði að veruleika) vísindamönnum á plánetunni, CO2 er meinlaust og er eðlilegur þáttur í náttúrunni.

Við öndum CO2 frá okkur mörgum sinnum á mínutu ásamt öllum spendýrum jarðar og fl. lífvera. Endar þetta með því að það verður kolefnaskattur á tilvist fólks? Þetta er nú meiri vitleysan - og hana verður að stöðva til að forða 99% mannkyns frá mjög þungum fjárhagslegum bagga sem enginn tilgangur er með nema að þyngja buddurnar hjá þeim í eina prósentinu að virðist.


Með kærri kveðju,
Linda Karen

Þetta var nú svona smá útúrdúr enda er ég hestabloggari af guðs náð - en ég þoli illa hinar ýmsu vitleysur og leyfi mér að rekja þær upp þegar færi gefst!

Skrifað 7.12.2009 kl. 19:08 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 55
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 155
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 73097
Samtals gestir: 23990
Tölur uppfærðar: 6.9.2010 12:06:22