Fréttir
3.12.2009
Easy Walker og Fhoenix komið til landsins!
Hún Stilling verður vafalaust svona sátt og glöð svipinn í vetur með nýja búnaðinn.
Það er mikið að gera hjá mér í lærdómnum þessa dagana og situr maður sveittur yfir bókunum. En undanfarið hafa hrúgast inn í íbúðina gleðigjafarnir. Fyrst voru það beislin góðu eða hin ágætu Beisli án Méla sem seldust eins og hendi væri veifað og vonandi verða þau kaupendunum og hestum þeirra til mikillar gæfu. Í gær voru hinsvegar jólin hjá mér þegar pósturinn kom með hvern pakkann á fætur öðrum!
Fhoenix Vogue (Mark II). Hann er þó aðeins lægri að aftan en þessi mynd sýnir, var ,,íslenskaður'' fyrir mig.
Fyrst datt svolítið inn um lúguna sem olli því að nokkur brunalykt kom af kreditkortinu mínu en það var hnakkurinn Fhoenix Vogue (Mark II) sem ég hef beðið eftir síðan í október. Fhoenix er áttundi hnakkurinn sem ég eignast á mínum 13 árum í hestamennskunni. Ég hef átt Reiðlist Tölt, Topreiter Sport, Flóka reiðdýnu, Hrímni (fyrsta gerðin), Benni's Harmony Elegant, Ástund og Ansur-hnakk. Ég hef sífellt skipt þar sem annað hvort hentuðu hnakkarnir mér ekki eða mér fannst hestunum ekki líða nógu vel með þá. Fhoenix er að koma alla leiðina frá Bretlandi og hef ég óskað eftir því að verða umboðsaðili fyrir þessa hnakka á Íslandi og var tekið vel í þá hugmynd af framleiðendunum. Maður hefur ekki mikið fjármagn til að standa í svona vörusölu og kynningum á meðan maður er í skóla, en það er svo sem allt í lagi að undirbúa farveginn og kynna vörurnar örlítið eftir föngum.
Fhoenix gefur mikinn stuðning enda dressúr hnakkur - en sú gerð hnakka fer að nálgast meir og meir íslands-hestamennskuna þar sem kröfurnar um nákvæmni og fágun í reið eru orðnar mun meiri.
Fhoenix hefur komið gífurlega vel út úr þyngdardreifingarprófunum og hann er einstaklega mjúkur og eftirgefanlegur, hann fylgir baki hestsins og öllum hans sveigjum. Ekki er búið illa um knapann heldur, sætið er úr efni sem kallast memory foam, en það er svipað efni og IQ-Care og Tempur-heilsurúmin eru úr, efnið lagar sig að bakhlutanum. Hnakkurinn er svo sannarlega eins mjúkur eins og hann hljómar! Hnakkpúðarnir undir hnakknum eru einnig einstaklega mjúkir og þegar þeir fara að eldast má taka þá af (fest með frönskum rennilás) og fá sér nýja. Gífurlegur stuðningur er í hnakknum og auðvelt er að pressa hestinn (enda er þetta dressúr hnakkur).
Fæ örugglega koss eftir hvern reiðtúr frá hryssunni í vetur, heheh.
Fhoenix er virkislaus, er úr svokölluðu soft tree sem er efni sem dempar mjög vel högg. Hnakkar með virki eru ekki að koma nógu vel út úr þyngdardreifiprófunum. Á virkishnökkum geta myndast miklir þrýstingspunktar, sérstaklega að framan og aftan. Einnig eru þessir hnakkar ekki nógu eftirgefanlegir þar sem virkið er fast fyrir. Þeir fella sig ekki nógu vel að hverju baki fyrir sig þar sem svo lítið eftirgefanlegir svo það er í rauninni það sama að eiga einn virkishnakk fyrir 10 hesta og að eiga eitt par af skóm fyrir 10 manns. Virkishnakkarnir skorða bak hestsins og herðar hans, ef hnakkurinn passar hestinum ekki getur hann þróað með sér eymsli. Ætla að blogga betur um þetta seinna og sýna nokkrar léttar þyngdarprófanir á íslenskum virkishnökkum sem gerðar voru erlendis. Langar að flytja inn ákveðinn þyngdardreifibúnað til að fólk geti séð hvernig hnakkurinn þeirra er að reynast, hvort það sitji of mikið á annari hliðinni og svo frv.
Annar pakkinn var ekki síður skemmtilegur en það voru Easy Walker skeifurnar. Þær eru mjög harðar og ef maður bítur hressilega í þær rispast þær ekki að neinu ráði, en lykilatriði er að þær séu endingargóðar svo þær geti verið valmöguleiki á móti járninu. Ég sit hér og læri efnafræði með eina ,,lukkuskeifu'' á borðinu og hnakkinn fram í stofu sem ég hreinlega dýrka að setjast í. Sama tilfinning og að leggjast upp í IQ-Care rúmið mitt, maður er guðslifandi feginn að fá að slaka á í þeirri mýkt eftir daginn. Ég tek Stillingu svo inn 10. des ef allt gengur að óskum og get ekki beðið eftir því að prufa hana með nýja búnaðinn. Hún verður væntanlega fyrsti ,,iron-free'' reiðhesturinn á Íslandi með soft tree hnakk sem hefur alla burði til að auka velferð hennar og vellíðan, ásamt því að gefa mér sæti sem ég hef svo lengi leitað að. Vonandi er sá áttundi lukkunúmerið mitt í hnakkakaupum.
Með kærri kveðju,
Linda Karen
