Fréttir

14.11.2009

Easy Walker til Íslands!



,,Nike Air'' fyrir hesta kemur til Íslands í desember!

Fyrsta sendingin af Easy Walker skeifum kemur til Íslands fyrir jólin en ég verð umboðsaðili fyrir þessar frábæru skeifur hérlendis. Fyrsta sendingin er fremur smá enda hef ég komist að því að svona umboðsdæmi kostar túskildinginn sinn, sérstaklega þegar maður er að byrja. Það er þó algerlega þess virði þar sem ég er að ,,lifa'' drauminn sem er að auka velferð hesta á Íslandi. Vá hvað ég hlakka til! Stilling verður því fyrsti ,,Iron-Free'' hesturinn á Íslandi, enginn málmur í munni né á fótum. Ekki leiðinlegt það! Ég stefni ótrauð með hana á landsmót sem kynbótahross, algerlega málmlausa - enda höfum við stórkostlegar reglur sem leyfa bæði Beisli án Méla og þessa gerð af skeifum á kynbótabrautinni.




Easy Walker skeifurnar eru gerðar úr gerviefni og eru fremstar í flokki skeifna úr gerviefnum í heiminum. Þær eru mjög sterkar og endast álíka og venjulegar járnskeifur gera. En hverjir eru kostirnir við að skipta?


Kostir Easy Walker skeifna:

1. Höggdempun

Efnisgerð Easy Walker er miðuð út frá því að dempa högg á fætur hestsins sem geta verið gífurlega mikil og haft mikil áhrif á fætur hans, líkama og heilsu.




Þetta graf sýnir mismunandi höggdempun mismunandi skeifna. Efst er skeifa úr gerviefni, svo berfættur hestur, svo álskeifan - svo kemur það sem er orðið mjög vinsælt í dag að gera til að vernda fætur hestsins - skeifur með botnum, og svo stál/járnskeifan sem er algengust í heiminum í dag.




Graf sem sýnir mismunandi höggdempun á mismunandi hraða. Járnskeifan eða stálskeifan (ljósblár) veitir hestinum mest högg. Gerviefnið (hvítt) kemur best út á fetinu en þegar hert er á ferðinni eru það berfættir hófar sem hafa vinninginn, en gerviefna skeifan er þó ekki langt undan.


2. Minni þyngd



Easy Walker skeifurnar eru mun léttari en járnskeifur sem þreytir hestinn minna. Hesturinn fær aukið úthald þar sem minna álag er á vöðvakerfi hans þar sem auka þyngd sem hann þarf að hreyfa með sér með fótunum er nánast engin. Meiri yfirferð og ending í reiðtúrum, það reynir minna á hestinn.


3. Ending

Skv. rannsóknum hafa Easy Walker skeifurnar komið best út af skeifum sem eru úr gerviefnum á markaðinum.



Easy Walker skeifa undir þolreiðarkeppnishesti eftir 30 daga notkun á erfiðum vegum í fjöllum og hlíðum. Knapinn reið hestinum 50-65 km í hverri viku og ætlaði hún að láta járna hann aftur eftir 2 vikur, sem segir okkur að ending skeifnanna sé nokkuð svipuð og hjá venjulegum skeifum, 6-8 vikur.


4. Sveigjanleiki.



Sveigjanleiki hófsins er mikill, allt að 1,6 cm. Járnskeifa festir hófinn alveg en Easy Walker fylgir honum hvernig sem hann sveigist.

Hófur hestsins er ótrúlega sveigjanlegur og með því að nota Easy Walker skeifur fær hófurinn að njóta sín, á meðan járnskeifan festir hann í einu formi og hófurinn fær ekki að gefa eftir. Vart verður við aukinn hófvöxt, sérstaklega hælvöxt við notkun á Easy Walker þar sem blóðflæði í hófnum helst eðlilegt, líkt og ef hesturinn væri berfættur. Járnskeifan minnkar þetta flæði þar sem hófurinn er fastur í einu formi og það er m.a. ástæðan fyrir minnkuðum hófvexti á húsi, þá sérstaklega á hæl. Fótstaðan er einnig réttari, hófurinn gefur eftir þegar hann lendir á misfellum með Easy Walker, en með járnskeifu þarf hesturinn að sveigja fótinn þegar hann lendir á misfellu sem veldur auknu álagi á liði (sjá mynd að neðan).









Meiri eða minni fótlyfta?

Nú halda líklega flestir lesendur þessarar síðu að fótlyfta hrossanna eigi eftir að snarminnka þar sem Easy Walker skeifur eru svo svakalega léttar við hliðina á járnskeifunni. Er miðflóttaaflið (þyngdin) bara málið?

Mín kenning er að það sé einmitt öfugt því Easy Walker hefur gífurlega höggdempun - hágengur hestur verður áfram hágengur (eða jafnvel hágengari) þar sem fætur hestsins eru nánast algerlega verndaðir frá höggum. Náttúrulega hágengur hestur með höggdempun á öllum fjórum verður áfram hágengur. Það er ástæða fyrir því að hestar lyfta meira á keppnisvöllum heldur en hörðum reiðvegum... það er dempunin. Spáið í því að ríða hesti á skeifum sem dempa nánast algerlega högg og fara á góðan keppnisvöll með þyngingar? Úff, þann hest myndi ég vilja sjá, sá myndi lyfta til fullnustu án allra vandkvæða - og kæmi ekki með neina kvíslbandsbólgu eða önnur fótamein heim - en fótavandamál eru ein algengustu veikindi keppnishesta í dag.

Flestallir keppnishestar eru járnaðir á höggdempandi botna eins og Luvex en botnar + járnskeifur dempa ekkert í líkindum við Easy Walker (sjá graf að ofan). Verðið á þessu tvennu, þ.e. Easy Walker skeifum og járnskeifum með botnum ætti ekki að verða svo ósvipað (sérstaklega ef gengið batnar) þannig að margir eiga sjálfsagt eftir að velja betri kostinn.

Magnar upp högg
Járnskeifan gefur hágengum hestum mun meira högg en lággengum og það hefur oft komið á daginn að eðlishágengir hestar tapi þessum eiginleika smám saman, jafnvel á einum og sama vetrinum. Þeir finna til í fótunum undan þeim miklu höggum sem járnskeifan veldur. Hún hleypir ekki aðeins höggunum frá jörðinni að, heldur magnar hana upp og þar með er 300 kg hestur með t.d. rúmlega 300 kg högg per fót berfættur á brokki kannski kominn með t.d. 900 kg högg per fót á járnskeifum! Höggin sem hesturinn fær á sig með járnskeifur hefur ekki aðeins áhrif á fætur hans heldur allt stoðkerfi hans almennt. Ég tel að margur lúinn lullarinn sé eins og hann er vegna of langrar reynslu af járnskeifum og hörðum vegum. 

 


5 pör af glærum Easy Walker koma brátt.

Easy Walker skeifurnar vernda hestinn frá höggum og þar með heilsu hans og velferð. Fótlúnir hestar gætu orðið þeir sjálfir aftur við notkun þessa skeifna en margir hafa þakkað skeifunum fyrir gífurlega breytingu á hestum sínum og er hróður þeirra sífellt að aukast erlendis (sjá meira HÉR). Meiri hófvöxtur, betri hófheilsa, minnkar áhrif ágripa, gífurleg dempun, betri ending á hestinum, skeifurnar eru léttari og reyna því ekki eins á hrossið - Easy Walker eru Nike Air hestanna. Það er ástæða fyrir því að mennskir íþróttamenn eru aðeins í bestu mögulegu íþróttaskóm sem dempa högg á fætur þeirra svo þeir skaði ekki heilsu sína (fótamein, verkir í líkama, sinaskeiðabólgur.. og fl) og þurfi að hætta að æfa og keppa langt fyrir aldur fram.

Við ættum að bjóða hestinum sem er sannarlega líka íþróttamaður á allan hátt upp á þessi gæði líka. Skeifur úr gerviefni sem dempa högg eru framtíðin. Járnskeifan er orðin um 6000 ára gömul og það er tími til kominn að koma fram úr hellunum.

Kær kveðja,
Linda Karen

Skrifað 14.11.2009 kl. 22:42 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 43
Gestir í dag: 20
Flettingar í gær: 155
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 73085
Samtals gestir: 23984
Tölur uppfærðar: 6.9.2010 11:43:15