Fréttir

9.11.2009

Okkar mesta von eða mesta skelfing?

EKKI HESTABLOGG!  - ER OF HNEYKSLUÐ TIL AÐ PÓSTA ÞESSU EKKI



Hver treystir ekki svona heillandi manneskju? En það eru gjörðirnar, ekki útlitið sem metur hvort það sé hægt eða ekki. Og hér virðist það eiga vel við.

Barack Obama tók nýverið við sem forseti Bandaríkjanna og hafa allir tekið honum fagnandi eftir skandalinn með Bush fráfarandi forseta landsins. Enginn forseti hefur verið kynntur með jafnmiklum áróðri líkt og Obama og fyrr í haust hlaut hann friðarverðlaun Nóbels algerlega óverðskuldað. Hann hefur aukið herafla Bandaríkjanna í kringum Rússland og Kína af engri sjáanlegri ástæðu og snaraukið herinn í Afganistan. Slíkur verknaður á ekki Nóbelsverðlaun skilið og alllíklega er þar eitthvað verulega skítugt á seyði. En þetta virðist hlekkur í markaðsetningu Obama sem manns sem er traustsins verður þó hann sé það í raun alls ekki.






Allir stjórnmálamenn vita að enginn kemst nálægt þingsæti eða forsetaembætti nema vera með fjársterka menn að baki sér sem styrkja kynningarherferðina til að fólkið kjósi þá í þessar stöður. Að það treysti sér. Hinsvegar gefur það auga leið að það er ekki stjórnmálamaðurinn sem er með fjármagnsaðilana í vasanum heldur öfugt. Stjórnmálamaðurinn verður að tala þeirra máli svo hann fái peninga þeirra og sterkt bakland í heimi þar sem allt snýst um markaðssetningu viðkomandi sem manneskju og sem leiðtoga. Það gefur auga leið að maður sem talar gegn áætlunum styrktaraðilanna fær ekki stuðning.




Sömu stuðningsaðilar að þessum þremur mönnum - því skyldu fyrirætlanirnar skyndilega vera í þágu heimsfriðar með Obama?

Stalín, Hitler ... Obama?
Sömu menn og fjölskyldur eru á bak við Obama og styrktu Bush, menn sem eru bankaeigendur og stórfjármagnseigendur. Þessar sömu fjölskyldur voru einnig á bak við menn eins og Lenín, Stalín, Maó og síðast en ekki síst Hitler. Án þessara fjölskyldna og stuðningi þeirra t.d. við Hitler hefði aldrei orðið nein seinni heimsstyrjöld. Hitler hefði aldrei komist í stríð með öll olíufreku tækin og flugvélarnar hefðu bandarísk olíufélög í eigu þessa fólks ekki selt honum olíu óspart - frá upphafi til enda! Þessar sömu fjölskyldur og menn eiga, og áttu stærstu bankana á þessum tíma - og þegar Bandaríkin fóru í stríð við Hitler græddu þessir sömu menn á tá og fingri því ríkið þurfti að taka gífurlegt lán fyrir stríðsrekstrinum og greiða til baka með gífurlegum vöxtum. Tvöfaldur gróði...




Úlfur í sauðagæru?
En aftur að Obama. Af hverju er hann svona varhugaverður? Jú allir treysta honum. Hann er góði gæinn og enn sterkari leikur Wall Street manna sem studdu hann að embættinu að hann sé af sama kynstofni og undirokuðustu þjóðir heims sem munu enn frekar treysta Bandaríkjunum eftir hans tilkomu. Obama lofaði mörgu fögru en hann hefur varla staðið við neitt af því og gert í raun andstætt því sem hann sagðist ætla að gera. Ef allir treysta Obama þá munu allir fylgja honum í þá átt sem hann býður og telur besta - og hún er
The New World Order.




The New World Order
Hugtakið The New World Order kom fyrst fram árið 1928 en það er fyrst nú sem verið er að koma með hana sterkt á framfæri með Obama. The New World Order er ein jörð undir einni ríkistjórn og einn banki - The Bank of the World. Að lönd heimsins verði gerð svo hrædd að þau gangist undir eina ríkistjórn og missa sjálfstæði sitt (hvað er að gerast á Íslandi - þingið vill bara ESB og þar með missum við sjálfstæði okkar því við viljum bjarga Íslandi!!). Hervald í öllum löndum heims. Þetta einfaldar hlutina fyrir fjármagnseigendurna sem eru jafnframt nefndarmenn í Bilderberg samtökunum sem eiga stærstu banka og fyrirtæki í Bandaríkjunum og jafnframt í heiminum... og eru stuðningsaðilar Obama.





Ein ríkisstjórn á allri jörðu? ESB og fl. leggja grunninn...
Obama mun taka þátt í því að leiða heiminn í þetta kerfi og undirbúa hann frekar til þess. Þetta er nú þegar að gerast. Evrópusambandið hefur nýverið þróast til að vera nánast ein ríkisstjórn fyrir öll aðilarlönd sín - ef Ísland fer í ESB jafngildir það að fara aftur til ársins 1918 þar sem við vorum aðeins með heimastjórn, ekki sjálfstæði. Annað er blekking. Það sem ESB segir löndum sínum að gera gildir um okkur líka. Kanada, USA og S-Ameríka hafa gengið í svipað bandalag nýverið og svo er Asía líka í bandalagi. Sameinist þau munu þau á endanum verða sett í eina stóra ríkisstjórn sem hljómar rökrétt.




Bankahrunið
Þeir sem standa að baki einkabönkunum, genginu og fjármagni heimsins hafa jafnframt stjórn á því. Hrunið í Bandaríkjunum árið 1929 var skipulagt af fólki innan þessara fjölskyldna eða höfðu sömu ítök og þetta fólk og sama má segja um hrunið nú. Hrynji flestallir bankar heimsins tapast traust - og þá munu þessir menn markaðsetja The Bank of the World með hjálp Obama eða næstu ,,hetju'' á eftir honum þegar hans raunverulegu skítverk hafa komið í ljós. Eina takmark þessa fólks er gróði og að virðist heimsyfirráð sem eru skítlegustu eðli mannsins. Ef þetta væri ekki sannleikur málsins þá væri heimurinn ekki eins og hann er - fullur af stríði (bankar hagnast LANGMEST á stríðsrekstri), fátækt og óréttlæti.

Síðasti raunverulegi forseti Bandaríkjanna var John F. Kennedy, hann vildi vinna af heilindum fyrir sína þjóð og þegar hann setti það í verk (breyta bankakerfinu, draga USA úr stríðsrekstri í Víetnam og fl) var hann myrtur, og væntanlega af þeim sem höfðu vanþóknun á þessum ákvörðunum, þ.e bankaeigendunum. Ef Obama fer út af sporinu verður hann myrtur, rétt eins og fjölmargir aðrir leiðtogar heimsins sem hafa ekki farið að ,,ráðum''  þessara auðmanna.




,,Einkareknir bankar sem stýra genginu mestu óvinir þjóðarinnar''
Fyrstu forsetar USA vissu að fjármagnseigendur yrðu mesti óvinur heimsins fengu þeir vald yfir peningakerfum heimsins. 3 forseti USA, Thomas Jefferson sagði árið 1802, öld áður en bankamönnum var gefinn laus taumurinn:

"Ég tel að bankar séu eru hættulegri frelsi okkar en reiðubúnir herir. Ef bandaríska þjóðin leyfir einhvern tíma einkareknum bönkum að stjórna útgáfu gjaldmiðla þeirra, fyrst með verðbólgu, þá með verðhjöðnun, munu bankar og fyrirtæki sem vaxa upp í kringum hana og svipta fólk öllum eignum þar til börn þeirra vakna upp heimilislaus á landinu sem feður þeirra námu. Valdið ætti að taka frá bönkunum og gefa það aftur til fólksins, sem það sannarlega tilheyrir. " 




Mæli með þessari - og mynda sér svo skoðun á frelsishetjunni Obama.

Myndin the Obama Deception er heimildamynd sem eyðileggur þá goðsögn að Barack Obama sé að vinna af heilindum fyrir sína eigin þegna og heimsbyggðina alla. Obama undrið er blekking sem er vandlega unnin af baklandi hans sem eru stórfjármagnseigendur bankakerfisins sem vilja koma á fót The New World Order. Obama er markaðsettur sem frelsari til að blekkja sína eigin þjóð og heiminn allan.

Við berum öll ábyrgð á heiminum og hvernig hann er. Með því að fylgjast grannt með þeim sem hafa stjórnvölin og kasta þeim á brott sem stjórnast af spillingu er hluti af því að vera ábyrgðarfullur einstaklingur.

Með bestu kveðju,
Linda Karen

Skrifað 9.11.2009 kl. 22:45 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 55
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 155
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 73097
Samtals gestir: 23990
Tölur uppfærðar: 6.9.2010 12:06:22