Fréttir
2.11.2009
Tývar í feyknastuði
Tývar frá Kjartansstöðum á landsmóti 1998 þar sem hann hlaut m.a. 9,5 fyrir tölt og fegurð í reið og 9,0 fyrir brokk og stökk. Töltið er úrvals, gífurlega mikið rými og ferð. Ég hægði þó aðeins á myndbandinu til að hreyfingarnar sæust betur þar sem það er unnið af svo gömlu myndbandi að það er hálfóskýrt annars.
Hér eru tvö myndbönd frá árinu 1998 af Tývari frá Kjartansstöðum og Sigurði Matthíasyni í feyknastuði. Heimasíðan hans Tývars er alveg við það að verða tilbúin með nánari uppl. um hann en tengillinn á síðunni minni hefur upp á að bjóða.
Annars er allt gott að frétta, maður situr sveittur og lærir alla daga enda verður maður að ná öllum prófum í desember svo námslánin fari ekki á mis við námsmanninn! Maður iðar líka í skinninu eftir því að taka Stillingu inn sem gerist eftir 15. des. Get varla beðið og jólaskapið er heldur betur farið að láta á sér kræla!
Tývar vorið 1998, að koma heim að Kjartansstöðum þá nýorðinn 5 vetra gamall. Siggi Matt tók góðan reiðtúr á honum og var víst yfir sig ánægður og lofaði hestinn mjög þegar hann steig af baki. Tývar er afskaplega viljugur en ótrúlega þjáll svo þetta er hálfpartinn eins og að keyra sportbíl sem er eldsnöggur að auka hraðann en jafnfljótur að minnka hann. Þannig á það að vera. Það er ekki leiðinlegt að fara á svona glæsigrip í reiðtúr, það er víst!
Með bestu kveðju,
Linda Karen
