Fréttir
25.10.2009
Eldey eldsnögg að læra
Linda með mæðgunum Eldeyju og Spólu
Fór á sunnudaginn á Kjartansstaði að heilsa upp á fólkið og kíkja á hrossin mín til að sjá hvernig þau hefðu það. Þegar stóðið var rekið heim var ég í felum á bak við vagn og átti að kalla á eftir hrossunum ef þau skyldu taka upp á því að snúa við inn í hagann aftur. Þegar hópurinn kom kallaði ég á eftir þeim til að reka þau upp í gerðið og í sömu andrá kom Heimir minn fyrir beygjuna, snarstoppaði og ætlaði að gera sér ferð til mín, þekkti röddina í kerlu sinni strákurinn! Þá hóaði ég nú á hann aftur og honum fannst þetta frekar skrýtið því honum fannst ég vera að kalla á sig! Alger snúlli. Heimir lítur rosalega vel út og ég lék mér aðeins með honum í gerðinu, gerðum spænska sporið og það mundi hann vel blessaður. Hlakka mikið til að taka hann inn eftir einn vetur eða svo og þjálfa hann meira með smelluþjálfun og nota hann til að koma fram á sýningum eða halda kynningar fyrir smelluþjálfun - sem er alger snilldarviðbót í verkfærakassann í hestamennskunni.
Hér er Eldey komin með litla múlinn (greinilega ekki mjög lítill...!) sem ég fann óvart niðri í geymslu í fyrra og fékk alveg barnafiðringinn í magann eins og verðandi mæður fá þegar þær finna óvart einhver barnaföt... svona er maður nú klikkaður en hér er ,,barnið'' komið í brókina heheh.
Eldey og Spóla komu skokkandi og maður tók strax eftir því að Eldey hlífði meidda fætinum, greinilega ekki orðin góð greyið. Hún stingur þó ekkert við á fetinu svo henni hlýtur að vera að batna. Mæðgurnar litu báðar sérdeilis vel út og nýjasta afsprengið tók sig vel út í bumbunni á Spólu sem er örlítið byrjuð að skaga út -bumbubúinn ætti að verða orðinn rúmlega 4 mánaða gamall núna. Eldey var frekar stygg enda þurfti að sprauta hana á hverjum degi í tvær vikur í veikindunum sem var ekki mjög vinsælt hjá henni. Fljótlega fór hún þó að koma sjálf að okkur þegar hún sá okkur vera að spjalla við hrossin og klóra þeim, mundi eftir þessu góða við mennina. Svo náði ég af henni tali þegar ég var búin að vera að leika aðeins við Spólu og smella hana fyrir hegðun. Þá náði ég að klóra Eldeyju svolítið og eftir það var hún orðin gæf aftur og vildi endilega fá klórið sitt.
Eldey gerð bandvön á örfáum mínutum, eldsnögg að læra og hvers manns hugljúfi.
Ég greip dömurnar og setti þær inni hesthús í þeim tilgangi að skoða folaldið betur og gera það bandvant í leiðinni. María Dís tamningarmaður hjálpaði mér að setja múlinn á skvísuna og leist Eldeyju ekkert á það og strunsaði með Maríu í fanginu fram eftir ganginum. Mér leist ekki nógu vel á það og var hrædd um að þetta yrði eitthvað húllumhæ. Eldey stöðvaði samt fljótt og beið pollróleg en nokkuð hissa. Henni var nokk sama um múlinn og vildi gjarna spjalla þrátt fyrir þetta áreiti. Þá skellti ég taumum í múlinn og byrjaði að æfa kellu í að koma og gekk það mjög vel. Hún var mjög fljót að átta sig á að þrýstingurinn færi um leið og hún elti. Hún var aldrei með neinn alvarlegan mótþróa, stóð mest bara grafkyrr og spyrnti á móti - þá snaraði ég spottanum í hlið og björninn var unninn. Svo kom kerla bara með mér og var rosalega róleg og elskaði sitt klór allan tímann. Það er líka ekkert mál að koma við eyrun og fæturna, get gripið í bæði eyru hennar og henni er nákvæmlega sama. Ég gerði það við hana þegar hún var 6 klst gömul og ætla ég alltaf að gera það eftir reynslu mína af þessu folaldi, flýtir mikið fyrir. Ég held að Eldey eigi eftir að vera virkilega geðljúft hross eins og foreldrarnir og bráðgreind. Spóla hugsaði hálfpartinn á undan manni þegar maður var að vinna með hana, ótrúlega næm og fljót að læra. Tývar faðir hennar er líka mjög klár í kollinum og mikill höfðingi í umgengni og í reið svo ég er bara sátt við afsprengið, það kippir í kynið.
Eldey var samt svolítið hissa á þessu öllu saman. Skildi ekkert í þessum böndum og togi en gerði það sem hún var beðin um. Hún hefur líka stækkað mikið og er ekki lengur þessi litli dvergur sem hún var í sumar miðað við hin folöldin. Frábært geðslag er í þessu folaldi, ótrúlega yfirvegað, leggur traust á mann og vill vera hjá manni. Get ekki beðið eftir að temja hana! Það verður skemmtilegur tími. Ég verð innilega að vona að henni batni í fætinum annars verður ekkert úr henni sem reiðhrossi.
Tývar kíkir út úr stíunni sinni
Ég heilsaði líka upp á Tývar karlinn og er heimasíða til kynningar á þessum gæðingi í vinnslu. Tývar verður á Suðurlandi næsta sumar (staðsetning kynnt nánar í janúar) og höfum við Hrafnhildur ákveðið að folatollurinn verði 40.000 kr ef hryssan fyljast (utan við sónar). Nú þegar eru byrjaðar að berast pantanir undir þennan gæðing sem hefur orðið of mikið út utan í umræðunni, hann á mun meira inni. Ég er þrælánægð með mitt afkvæmi sem hefur sýnt af sér mjög lofandi hreyfingar og úrvalsgeðslag eins og faðirinn - og er nokkuð viss um að mitt folald sé nú ekki einsdæmi.
Með bestu kveðjum,
Linda Karen