Fréttir
13.10.2009
Jólagjöfin í ár?
Harpa vinkona á skjóttum gæðingi frá Robba Pet í nóvember 2007. Bæði að prufa Beisli án Méla í fyrsta skipti! Plataði hana í smá fyrirsætustörf fyrir www.beisli.net og hún fékk beisli í jólagjöf frá mér fyrir hjálpina sem hún var himinlifandi ánægð með!
Nú nálgast jólahátíðin óðfluga og fólk fer brátt að hugsa til þess hvað á að gefa fjölskyldu og vinum í jólagjöf. Hér kemur ein frábær hugmynd að jólagjöf fyrir hestafólk - og er ekki síðri gjöf fyrir hestana þeirra. Beisli án Méla er frábær sársaukalaus stjórnbúnaður fyrir hestinn - ekki síst vegna þess að án sársauka eða ótta um sársauka hverfa mörg leiðinleg hegðunarvandamál sem eiga rætur sínar að rekja til þess að hesturinn kennir til undan mélunum og/eða er hræddur við sársauka sem þau geta valdið (af því þau meiddu hann mikið í eitt skipti - og hann man það).
Hörpu leist ekkert á blikuna fyrst! Þegar við komum inn í gerðið og hún átti að stíga á bak þá hafði hún miklar áhyggjur af því hvað hesturinn myndi gera - ég sagði henni að hugsa ekki um það og stíga bara á bak og gera allt eins og venjulega - ég myndi stoppa hestinn ef eitthvað gerðist. Hún fór á bak, hesturinn ætlaði smá af stað eins og þeir gera oft og þá tók hún í tauminn og hesturinn stóð kyrr. Svo fóru þau um í gerðinu þangað til að Harpa var orðinn örugg, en hesturinn svaraði alltaf rétt frá upphafi og fannst þetta greinilega ekkert mál.
Hegðunarvandamálin (vanlíðan) burt?
Hesturinn verður annað hvort reiður eða hræddur út í sársaukann sem málmur ofan á bein, tungu og góm orsakar. Flestir hata tannlækna af sömu ástæðu - út af því að munnurinn okkar er svo viðkvæmur fyrir áreiti og það gildir það sama um hestinn. Þar sem hesturinn hefur þróast til að fela sársauka sinn til að laða ekki að rándýr segir hann okkur öðruvísi frá því þegar hann meiðir sig - með því sem við köllum hegðunarvandamál.
Dæmi um þau eru: kergja, mótþrói, vill ekki standa kyrr, sífellt að flýta sér, taumstífni, rokur, hrekkir, hrista höfuðið, kippa í tauminn, snúa við, sífellt fúll, taugaveiklaður, taglsláttur, lengi að stöðva, styggð í gerði og stíu (sérstaklega þegar mélahljóðið heyrist - mínir hestar ganga nánast beint í Beisli án Méla þegar ég kem út í gerðið haha) og fleira.
Hægt er að lesa meira um áhrif méla á hesta á www.beisli.net og fræðast meira um þetta frábæra beisli. Það besta við þessa jólagjöf er að það er hægt að nota hana í mánuð og ef viðkomandi líkar ekki þá skilar hann beislinu og fær það endurgreitt - og getur keypt sér eitthvað annað skemmtilegt í staðinn! Hinsvegar þykir mér ólíklegt að sú jólagjöf verði endursend þar sem beislið stendur alltaf fyrir sínu - sé það rétt stillt og rólega sé farið af stað í byrjun.
Beisli fyrir jól? Láta mig vita fyrir lok okt!!
Þeir sem hafa áhuga á að festa sér svona grip ættu að láta mig vita með vefpósti : beisli@beisli.net sem fyrst þar sem ég þarf að panta tímanlega frá framleiðanda (fyrir mánaðarmót) svo ég fái beislin örugglega fyrir jól því það þarf að sérsauma beislin fyrir íslenska hestinn. www.beisli.net
Harpa var ekki lengi að fá sjálfstraust á hestinum þegar hún var komin út fyrir gerðið og var ekki lengi að keyra hann upp á yfirferðartölt og yfirferðarstökk án þess að hún væri beðin um það - og stöðvaði alltaf án vandkvæða. Við vorum rosalega ánægð með þennan dag og hesturinn ekki síður en hann var glaður og jákvæður allan tímann.
Ég hef fengið marga vefpósta og símtöl þar sem fólk er að segja mér hversu mikið hesturinn þeirra hefur breyst og sé orðinn miklu betri - hegðunarvandamálin fóru á bak og burt. Stundum gerðist það mjög hratt og stundum á aðeins lengri tíma þegar hesturinn var kominn með algerlega nýjar tengingar við reiðtúrana. Það hefur verið ótrúlega dýrmætt fyrir mig að heyra frá þessu fólki því þá veit ég að tilganginum er náð sem er að auka velferð hesta og gera fólki mögulegt að eiga betra samband við þá. Fyrir mitt leyti þá hafa hestarnir mínir aldrei verið eins skemmtilegir og þjálir eins og þegar ég byrjaði að nota Beisli án Méla og margir hafa sömu sögu að segja sem er frábært.
www.bitlessbridle.com. Hestunum í þessu myndbandi er riðið frekar frjálslega enda voru þeir nýkomnir á hús - en myndbandið sýnir hversu auðvelt var að skipta yfir í méllaust, algerlega áreynslulaust. Skjótti hesturinn sést japla mjög mikið þegar hann er stöðvaður sem þýðir að hann sé mjög sáttur og skilji vel. Þetta var frábær dagur.
Með jólakveðju (nei er það ekki aðeins of snemmt?),
Linda Karen
Flettingar í dag: 55
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 155
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 73097
Samtals gestir: 23990
Tölur uppfærðar: 6.9.2010 12:06:22