Fréttir

3.10.2009

Haustheimsókn að Kjartansstöðum




Tývar og Linda bestu vinir

Ég skrapp á Kjartansstaði í dag í smá myndastúss og til að skoða hana Eldeyju litlu en hún er öll að braggast stelpan. Þegar við María Dís, tamningamaður á Kjartansstöðum og Þorvaldur vorum búin með hrossastúss dagsins, þ.e. taka nokkrar myndir og reka inn unghross sem María mun frumtemja í haust, héldum við inn úr kuldanum í sérdeilis frábært kaffi og með því hjá henni Önnu, húsfreyju á Kjartansstöðum. Fljótlega fengum við góðan gest, en það var hann Tývar frá Kjartansstöðum sem var verið að keyra heim eftir sumarstarfið. Ég gat auðvitað ekki staðist mátið og lét Þorvald taka þessa fínu mynd af okkur vinunum fyrir utan hesthúsið. Tývar er mikill höfðingi og í miklu uppáhaldi hjá mér enda fjörviljugur, glaðbeittur og líflegur stólpagæðingur. Ég vona að hún Eldey mín eigi eftir að líkjast honum en geðslagið og frískleikinn lofar mjög góðu hjá henni.




Tývar á landsmóti 1998, 5 vetra. Hlaut 9,5 fyrir tölt og fegurð í reið og var ein af stjörnum mótsins.

Fjörið blikar augum í,
aldrei hik í spori.
Lundin mikil, hrein og hlý,
hlaðin kviku þori.
Höf. óþekktur


Tývar verður í minni umsjá næsta sumar og munum við Hrafnhildur vinkona leigja þennan gæðing saman yfir sumarið. Við höfum ákveðið að stilla verðinu í hóf enda krepputímar og folatollar eru orðnir alltof dýrir. Man þegar það kostaði mest um 60 þús undir bestu hestana (fyrir utan Orra auðvitað...þeir tollar voru aðeins á undan sínum samtíma!) en það er breytt í dag. Nú kostar hátt í 75 þús kr undir hesta með meðal góðar einkunnir til að fylgja við toppana með dýru tollana og eru þessi verð löngu komin út fyrir öll skynsemismörk. Tývar verður á ,,gamla'' góða verðinu og verða nánari uppl. birtar fljótlega.

Við stöllur ætlum einnig að útbúa heimasíðu handa hestinum og kynna hann betur en þetta er höfðingi sem hefur svo margt að bera og á meiri athygli skilið í hrossaræktinni.


 

Glaður frá Brattholti, 1. verðlauna stóðhestur með 8,61 í hæfileika, Tývarssonur. Sá getur sko lyft! Rými og fótaburður, vilji og mikil yfirferð einkenna Tývar ekki síður en afkvæmi hans.




Eldey og Spóla, mæðgur í haustlitunum

Eldey er öll að lagast en hnéð er þó enn örlítið bólgið og hún hlífir sér enn, fer bara um á einhverju valhoppi. En hún er ekki hölt sem þýðir að henni er að batna. Mæðgurnar eru í girðingu við hesthúsið og narta þar í heyrúllu ásamt tveimur öðrum hrossum. Mér þykir voðalega vænt um þessa hryssu, það er eitthvað sérstakt við hana, hún er svo frísk, vakandi og óhemju lífsglöð að hún tekur mann með sér. Svona ein af þeim sem lætur mann fara í gott skap. Spóla er alveg akfeit og nýja folaldið dafnar vel (vonandi!) í bumbunni dag frá degi. Ég held að undan Spólu fái ég úrvalsreiðhross með frábært geðslag, vilja og góðar hreyfingar. Það er alltaf spurning með bygginguna en Spóla er nú engin sköpulagsdrottning. Hún er samt alger snillingur og gaman að prufa sig áfram með hana í ræktun og læra aðeins á þessi mál en ég hef aldrei ræktað hross fyrr. Ég er alveg sátt við hana Eldeyju útlitslega þó ég viti að hún er nú ekki að skora 1. verðlaun fyrir byggingu en það er allt í lagi. Ég er mjög ánægð með hana að öðru leyti, held hún sé ágætlega lofandi miðað við geðslag, frískleika og hreyfingar. Ég ábyggilega eftir að eiga margar góðar stundir með henni í framtíðinni sem er það dýrmætasta við hestamennskuna, samveran með hestinum.




Fjör ei brestur

Fjör ei brestur fróni á.
fákur besti lýða.
Sorgir flestar sefa má
svona hesti að ríða.
Sigluvíkur-Sveinn (Sveinn Sveinsson)


Með bestu kveðju,
Linda Karen

Skrifað 3.10.2009 kl. 22:04 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 72
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 155
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 73114
Samtals gestir: 23991
Tölur uppfærðar: 6.9.2010 12:35:41