Fréttir

11.9.2009

Skólaferð og fleira



Hressir hesta- og búfræðinemar í vettvangsferð í Eyjafirði. Bloggarinn sjálfur situr neðst til hægri með sólina í augun.

Jæja nú er skólastarfið byrjað á Hvanneyri. Maður er farinn að grúfa sig ofan í bækurnar ásamt því slíta dekkjunum á bílnum þar sem ég bý áfram í bænum og keyri í reglulega í skólann. Það sem er helst að frétta er að hesta- og búfræðinemar á fyrsta ári fóru í 3 daga vettvangsferð til Eyjafjarðar að skoða hina og þessa sveitabæi. Það var mjög fróðlegt fyrir mig enda ég aðallega með þekkingu á hestum, en við fengum miklar upplýsingar hjá bændunum um starf þeirra sem var annað hvort í kringum kindur, nautgripi og mjólkurkýr. Það er alveg nauðsynlegt að bæta aðbúnað sláturnauta, það er allt of þröngt á þeim, geta varla lagst greyin. Það þarf að breyta reglugerð um aðbúnað þeirra - það kemur væntanlega með nýjum dýraverndarlögum. Við heimsóttum einnig Litlu-Brekku (
www.litlabrekka.is) sem er eingöngu með hesta og allir á bænum vinna úti - en það hefur verið þróunin undanfarin ár í sveitinni.




Síðasta kvöldið á norrænu dýraverndarráðstefnunni, ég lengst til vinstri.

Ég steingleymdi auðvitað að segja frá norrænu dýraverndarráðstefnunni sem haldin var á Hótel Sögu í ágúst. Þar voru öll helstu dýraverndarsamtök Norðurlandana að koma saman og bera saman bækur sínar og styrkja samstarfið. Dýraverndarsamtök á Norðurlöndunum eru mjög virkjamikil og þá helst dönsku samtökin sem eru með 30 manns í fullri vinnu á degi hverjum. Mig langar mikið að vera duglegri að vinna að þessum málum og þeim sem langar að vera með í að byggja upp sterk samtök fyrir dýrin er velkomið að hafa samband.
www.dyravernd.is




Stilling skvísa í vetur

Ég hef nú ekki komið með neinar fréttir af henni Stillingu en ég stefndi ótrauð með hana í dóm í sumar. Ég ákvað að hætta við þar sem mér fannst henni ekki fara nóg fram og hafði sumarhitinn mikið um það að segja, hryssan var gersamlega að bráðna. Hún byrjaði svo að fara í feldinn upp úr miðjum júlí og þá ákvað ég endanlega að færa þetta fram á næsta vor þar sem ég vildi ekki fara ósátt með hana á völlinn og uppskera eftir því. Hún fór út þann 6. ágúst en ég hélt henni inni til að fara yfir nokkra hluti með henni svo það væri búið fyrir komandi vetur. Geðslagið í þessari hryssu er æðislegt en viljinn mætti vera meiri, kannski eykst hann næsta vetur ef ég einbeiti mér að því. Hún kemst mjög hratt yfir ef hún er í stuði til þess kerlingin - þarf að ná því stuði alveg fram í henni.




Faðir Eldeyjar, gæðingurinn Tývar frá Kjartansstöðum og Siggi Matt.

Eldeyju er að batna og er hún núna komin á beit ásamt móður sinni. Hún hefur grennst þónokkuð í veikindunum og verð ég því að taka það til athugunar að taka hana á hús í vetur ef hún fitnar ekki - en best væri að hún væri með móður sinni fram á vorið. Ég hlakka mikið til að sjá litla ,,bróður'' hennar sem er í bumbunni... ég byrja greinilega alltaf á því að halda fast í það að afkvæmið sé hestur, líkt og í fyrra og svo fékk ég bara hryssu...kannski eitthvað töfraráð til að fá hryssur? Sjáum nú til... Mitt veðmál er að nýjasta Spólu afsprengið verði jarpur eða rauður hestur... segi rauður. Mig dreymdi nú í sumar að þetta yrði sótrauð, faxlítil hryssa... en ég veit nú ekkert um hvort það gangi eftir.

Með bestu kveðju,
Linda

Skrifað 11.9.2009 kl. 21:26 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 55
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 155
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 73097
Samtals gestir: 23990
Tölur uppfærðar: 6.9.2010 12:06:22