Fréttir
1.9.2009
Eldey slösuð á fæti
Eldey litla meiddist fyrir rúmri viku síðan, en stóðið var rekið heim til að ná í nokkur hross og kom í ljós að hryssan var draghölt á vinstri framfæti. Dýralæknir var kallaður til en hryssan var komin með sýkingu í fótinn og 40 stiga hita. Vinstra framhnéð var risastórt og tappaði doksi af því vænni bunu og hélt hann að hún hefði fengið sýkingu í sár. Eldey var á pensilínkúr alla síðustu viku þökk sé Maríu tamningakonu og Ingólfi á Kjartansstöðum - en samt fór kúlan á löppinni ekki þó hitinn hefði farið og hryssan farin að stíga í fótinn.
Risastórt hné!
Annar doksi var svo kallaður til í dag en þá kom í ljós það sem mig grunaði þar sem þetta folald er svo mikill sprelligosi og nokk sama um hana mömmu gömlu þegar hún þarf að skoða eitthvað - hún hefur verið barin í fótinn fyrir hnýsnina og hnéð og liðpokinn bólgnað svona mikið. Aumingja Eldey þarf víst annan pensílínkúr og svo á að sjá hvað gerist hjá henni en svona bólgur geta verið lengi að fara. Ef hún verður hölt aftur þá þarf að stinga á ''kúluhnéð'' hjá henni. Henni klæjar heil ósköp út af sprautunum og er víst búin að klóra sér fullmikið á sumum stöðum, ég verð að koma til hennar einhverskonar græðandi kremi sem minnkar kláðann hjá henni blessaðri.
Eldey í júní, enn í folaldahárunum. Það er bara eitthvað við þessi augu heheh.
Hún var eðlilega frekar stygg þegar ég kom og talaði við hana en hún var fljót að koma til stelpan og sýndi brátt sína glöðu og björtu persónu. Hún er svo lífsglöð og frökk þessi skvísa, maður verður ósjálfrátt glaður innra með sér af því að spjalla við hana, svo mikill kraftur í kringum hana. Ég innilega vona að henni batni sem allra fyrst og að þetta eigi ekki eftir að há henni í framtíðinni því ég held hún sé efni í mikið uppáhalds-reiðhross miðað við þetta glaðlega umvefjandi geðslag sem hún hefur - en það er ekki síst aðalsmerki Smára afa hennar. Eftir að maður hefur kynnst afkvæmum hans vill maður alltaf fleiri, maður verður háður þessu gefandi geðslagi. Tývar faðir hennar er mikill höfðingi í umgengni, blússandi viljugur en þjáll í reið og ég vona að þeir eiginleikar hafi borist til folaldsins. Spóla móðir hennar er með mjög skemmtilegt geðslag, gáfnaljós mikið, ógurlega blíð en býður upp á skap sé þess þörf - hún slasaðist 4 vetra og náði sér aldrei og ég vona að þetta ,,karma'' fari ekki að fylgja afkvæmum hennar því mig langar svo í reiðhross sem líkist henni. Maður þarf bara að bíða og sjá hvað rætist úr afkvæminu, en því verður að batna fyrst.
Með bestu kveðju,
Linda Karen
Svo átti ég aðeins í gamni við vísu eina eftir Pétur Bragason á Víðivöllum þar sem hann yrkir um unga hryssu :
Litla rauð* með lipran fót
labbar götu þvera.
Hún mun seinna á mannamót
mig í söðli bera.
(*jörp)
