Fréttir
13.8.2009
Eldey kemur undan feldinum - í draumalitnum!
Mæðgurnar Eldey og Spóla á Kjartansstöðum
Við Hrafnhildur skruppum á Kjartansstaði á þriðjudaginn var en þá var sónarskoðunardagurinn mikli þar á bæ og Spóla átti að fá skoðun um leið. Þegar stóðið var rekið heim til að grisja úr þær hryssur sem áttu að fara í sónar þá reyndi ég að sjá mæðgurnar en kom ekki auga á þær. Svo allt í einu sá ég hana Spólu mína, en folaldið sem skoppaði henni við hlið var eitthvað skrýtið þó ég þekkti nú höfuðlagið á því strax. Rauðu folaldahárin voru að falla af og undan var að koma dimmrauður litur. Þegar hrossin voru komin í gerðið fór ég strax að Spólu til að skoða folaldið betur því ég sá það ekki nógu vel í hamaganginum. Þorvaldur á Kjartansstöðum sagði við mig um leið að Eldey væri sótrauð, væri með Ternulitinn svokallaða. Ég varð svo hissa þegar ég sá það með eigin augum að ég gat varla komið upp orði því sá litur er uppáhaldsliturinn minn. Í mínum huga var það líka svolítið gæðingamerki þar sem liturinn var að koma alla leiðina frá ræktunargripnum og gæðingnum henni Ternu frá Kirkjubæ. Ég varð alveg hoppandi kát enda fannst mér þetta eiginlega hálfgert kraftaverk og alger hundaheppni, svona sama tilfinning eins og að vinna í lottó - en ræktun hrossa er jú aðeins í ætt við það. Mikið óskaplega er ég ánægð með þetta og þakklát fyrir hvað folaldið braggast vel og hvað það er flott á litinn.
Óskar frá Blesastöðum, Töfrasonur og Svala frá Steinnesi Tývarsdóttir - sótrauð. Lét mig dreyma um að eiga svona hross og dauðöfundaði Blesastaðina og eigendur Svölu að því að eiga hross í slíkum lit - svo fékk ég bara nákvæmlega sama litinn og líka stjörnótt í þokkabót. Svei mér heppnin.
Eldey litla skvísa með Ternulitinn góða. Mig langaði mikið í rauðtvístjörnótt folald - en sótrauðtvístjörnótt er sko miklu betra.
Eldey var enn mjög gæf eftir að hafa verið kjössuð verulega frá byrjun og þótti voðalega gott að fá klór og knús. Ég strauk henni um eyrun sem hún vandist fljótt og tók upp allar lappir án vandkvæða. Fyrst var hún nú ekki að fíla að vera strokið um andlit en fljótlega þótti henni það orðið ágætt. Hún virkar á mig sem mjög ljúft, lífsglatt og hugrakkt folald, mikill jákvæður karakter í þessari hryssu sem lætur mömmu sína sko vinna vinnuna sína! Hún er soddan kútur en samræmir sér ágætlega að virðist og ætti hún alveg geta litið vel út undir manni í framtíðinni ef allt lukkast.
Ég held að ég megi bara vera sátt við afrakstur Spólu og Tývars. Mig dreymdi nú líka draum fyrir hestinum sem ég ætti að nota og ég held að ég þurfi ekki að sjá eftir að hafa þegið þau ráð.
Ég fékk svo Hrafnhildi til að taka myndir og Maríu Dís, tamningamann á Kjartansstöðum til að hjálpa mér að reka mæðgurnar til svo ég gæti séð hreyfingarnar hjá Eldeyju. Ég hafði bara séð hana á einhverju valhoppi í júní á meðan Þorvaldur og Ingólfur sonur hans sögðu að sú stutta gæti nú vel lyft. Ég sá aldrei neitt nema skopp. Hún var líka svo smá í útliti að hin folöldin voru eins og risar við hliðina. Það hefur heldur betur ræst úr henni hvað stærðina varðar og ekki síður með hreyfingarnar því ekki sparaði hún sporið sem var rúmt, hátt og svifmikið þegar hún var rekin til. Miðað við folaldamyndböndin sem ég gerði á bænum í fyrra þá gaf hún þeim frændsystkynum sínum lítið eftir á ferðinni þó hún væri nú reyndar aðeins þéttari á beinum en þau flest! Mér finnst það reyndar svolítið skemmtilegt að fyrsta folaldið sé fætt á þessum bæ og fyrstu hreyfimyndirnar teknar á sama stað og gert hefur verið við hrossin á bænum öll undanfarin ár - en í den skoðaði maður þessar myndir í spað og gat ekki annað en dáðst að þessum svifmiklu gæðingsefnum. Hrossaræktin á Kjartansstöðum var svona idolið í hestamennskunni þegar ég var yngri líkt og áður hefur komið fram - og það hefur nú lítt breyst. Líklega myndi ég nú vart trúa þessum fréttum ef ég gæti hringt í sjálfa mig aftur í tímann á unglingsárum - þá hefði sko einhver tekið veglegt gelgukast og þyrlað upp öllum ættfræðibókunum sem alltaf var verið að glugga í!
Flugrúmur lítill hnoðri í draumalitnum með Spólu mömmu.
Á lipru brokktölti, verður líklega klárhryssa með tölti að upplagi
Það vantar ekki fax á þessa skvísu en það hefur hún frá föður sínum, gæðingnum Smára frá Skagaströnd.
Spóla fór svo í sónar og Guðmar dýralæknir var ekki lengi með sónartækið út aftur því fylið var svo greinilegt, en henni var síðast haldið þann 25. júní. Glóblesa, hryssa Hrafnhildar er líka fengin við hestinum svo við munum eiga 2 af þrem (að vonum) folöldum sem fæðast hérlendis undan föðurnum sem fer utan í haust. Vonandi á honum eftir að vegna vel í útlandinu. Faðirinn er 3 vetra sótrauður Töfrasonur sem er gífurlegt efni. Spurning hversu lukkulegur maður verður með litinn næst... kannski fær maður bara brúnt haha.
Hafið það sem best!
Kær kveðja,
Linda Karen
