Fréttir

30.6.2009

Keimur frá Kjartansstöðum



Það vantar ekki hreyfingarnar í hann Keim

Hér kemur ein tilkynning fyrir þá sem hafa áhuga á að nýta sér efnilegan ungfola í sumar: IS2006182337 Keimur frá Kjartansstöðum tekur á móti hryssum að Ásmundarstöðum 1 v/Hellu í sumar. Virkilega efnilegur foli sem er bæði stór og myndarlegur.




Kraftur frá Bringu á heimsmeistaramótinu þar sem hann hafði sigur í fimmgangi.

Keimur er undan heimsmeistaranum Krafti frá Bringu og Tryggveigu frá Kjartansstöðum sem hefur verið að skila lofandi afkvæmum.
.
Meira um Tryggveigu Víkings- og Ternudóttur og afkvæmi hennar:
HÉR

Keimur er eðlishágengur og geðgóður foli - væntanlega alhliða. Aðeins var byrjað að eiga við hann í vor og það gekk mjög vel.

Folatollur fyrir fengna hryssu er 25.000 kr en hagaganga með hestinum fram á haust verður 10.000 kr. Mjög gott eftirlit er með hólfinu.

Þeir sem hafa áhuga á að nýta sér þennan efnilega fola hafi samband við Lindu Karen í s: 8693902 eða með vefpósti :
lindakaren@beisli.net

Með sólarkveðju,
Linda Karen

Skrifað 30.6.2009 kl. 22:04 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 19
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 101
Gestir í gær: 30
Samtals flettingar: 47377
Samtals gestir: 17070
Tölur uppfærðar: 10.3.2010 03:51:55