Fréttir

26.6.2009

Þórður heimsóttur




Stilling og Linda í Víðidalnum í vor

Ég skrapp með Stillingu í heimsókn til Þórðar Þorgeirs í Akurgerði á þriðjudag sem gekk vonum framar. Hrafnhildur var svo góð að koma með enda eru hestakerrur ekki mínar ær og kýr! Þórður tók vel á móti okkur ásamt sérlegum hjálparkokki sínum honum Flosa. Það hafði hellirignt allan daginn en auðvitað var heppnin með okkur og sólin skein þegar Stilling var látin skyrpa úr hófum. Ég var nú búin að vera örlítið stressuð þar sem hryssunni er riðið við méllaust beisli og er smelluþjálfuð - sem þýðir að hún snarstansar þegar smellt er í góm í stað þess að herða á sér eins og smellan er vanalega notuð til (smella þýðir fyrir hana: Rétt hegðun á þessu augnabliki - þú færð verðlaun - www.smelluthjalfun.net). Líklega aðeins fyrir utan normalkúrfuna í dag þessi reiðmennska þó hún virki hreint ljómandi vel fyrir mann og hest. En ég ákvað að vona það besta. Þórður var allan tímann mjög jákvæður og skellti sér á bak. Þegar hann kom til baka prufaði hann að smella á hana til að fá hana til að stöðva og varð æði glettnislegur þegar hryssan stöðvaði á punktinum fyrir framan okkur á hlaðinu. Hann bað mig svo að prufa hana til að sjá hryssuna undir sem mér leiddist nú ekki, enda afar fallegt umhverfið við Akurgerði. Þórður taldi Stillingu mjög lofandi og eiga mikið inni en hana vanti frumkvæði og sjálfsöryggi til að sýna það - en ég verð að ná því fram í sumar ef hún á að geta sýnt sitt besta fyrir dómi. Honum fannst hún mjög fasmikil og geta mun meira en hún sýndi. Flosi stillti svo hryssunni upp fyrir Þórð sem þótti byggingin ekki svo slæm og telur að hún geti stigast ágætlega í byggingu sem væri mjög ánægjulegt - maður verður að vona það besta.




Stilling 4 vetra - á frekar fáar myndir af þessari dömu... verð að bæta úr því.
 
Hryssan fer aftur í skoðun til Þórðar í ágúst eftir að hann kemur heim frá heimsleikunum, og þá verður endanlega ákveðið hvort hún verði tilbúin fyrir dóm. Hann taldi að það ætti að nást að hafa hana tilbúna fyrir þann tíma sem væri auðvitað alveg stórkostlegt - við munum gera okkar allra besta í sumar. Ég verð þó að hafa á orði að Þórður tók mjög vel á móti okkur stöllunum þrátt fyrir að við værum heldur betur öðruvísi en aðrir og hann var mjög jákvæður og vingjarnlegur á allan hátt þrátt fyrir það. Algert gull af manni.




Eldey litla að sperra sig - stuttu síðar kom hún til að klóra mér aðeins í framan.

Ég er búin að halda Spólu minni undir efnilega Töfrasoninn þrisvar sinnum á húsi og hefur það allltaf gengið vel. Þau urðu fljótt mestu mátar þegar hryssan sá að hún gat treyst hestinum fyrir folaldinu. Hesturinn var líka mjög ljúfur og vinalegur í viðmóti og engin slagsmál eða leiðindi komu frá hvorugu þeirra sem var mjög ánægjulegt - en ég hafði haft smá áhyggjur út af folaldinu. 




Hún hefur nú margt frá móður sinni þessi þó faðirinn eigi alveg granirnar!

Eldey lítur mjög vel út og er ekki alveg eins ræfilsleg og hún var í byrjun. Oft er fyrsta folald hryssu smátt en Eldey er langminnst af folöldunum á Kjartansstöðum. Það hlýtur að teygjast úr henni í sumar blessaðri. Mér finnst hún mjög fríð og heldur fíngerð, held hún verði bara fín útlitslega ef heppnin verður með. Ég sá hana hreyfa sig á brokki í dag og það var mjög svifmikið og hágengt, hún á eftir að verða mjög liðug í skrokknum skvísan. Hún er líka orðin gæflynd og finnst voðalega gott að láta klóra sér. Hún reyndi t.d. að kroppa gleraugun af Jónasi, kærastanum mínum í dag þegar hann var að klóra henni sem var mjög fyndið augnablik.


Þá er bara að spíta í lófana og gera sitt besta í sumar með Stillingu og hafa eftirfarandi hugfast, svo ég vitni í friðarsinnann og búddistann Daisaku Ikeda :
Vona það besta - Gera það besta - Og búast við því besta.
Er það ekki bara best, hahah.

Með sólarkveðju,
Linda Karen

Skrifað 26.6.2009 kl. 0:00 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 90
Gestir í dag: 31
Flettingar í gær: 103
Gestir í gær: 40
Samtals flettingar: 72656
Samtals gestir: 23889
Tölur uppfærðar: 3.9.2010 20:23:26