Fréttir

19.6.2009

Eldey heimsótt og fleira



Linda og Eldey að knúsast - vafalaust á hún eftir að koma við sögu varðandi vinnu að aukinni velferð hesta í framtíðinni.

Við Hrafnhildur skruppum á Laugarvatn til að kenna heimasætunum á Útey smelluþjálfun sem gekk alveg ljómandi vel og voru þær farnar að prufa sig áfram eftir að við fórum. Við komum við á Kjartansstöðum að skoða litlu skvísuna hana Eldey sem var þá rúmlega tveggja sólarhringa gömul. Spóla tók vel á móti okkur sem fyrr, þó hún hafi reyndar ætlað sér að hlaupa í burtu í fyrstu en róaðist fljótt þegar ég smellti hana fyrir að standa kyrr. Þá fékk hún verðlaun og varð örugg þar sem hún þekkir svo vel smelluþjálfunina og var meira en til í að lofa okkur að skoða litlu stelpuna sína.




Eldey litla braggast vel og er óskaplega kelin. Er alveg fallin fyrir henni.

Hryssan er ofsalega forvitin eins og vera ber og á nóg af hugrekki, móðir hennar á í fullu fangi með að hafa í við hana. Hún er ennþá með smá kryppu síðan hún fæddist svo gaman verður að sjá þegar bakið verður orðið alveg slakt. Mig er nú farið að gruna að bakið sé líklega frá móðurinni, þ.e hærra að aftan en ég vona samt það besta. Hálsinn er ágætlega settur og hryssan er öll hin fíngerðasta. Hún verður vafalaust mikill karakter, frökk og forvitin skvísa, full af lífsgleði og eldmóð - Spóla á eftir að verða í fínni þjálfun eftir sumarið.




Spóla og Eldey litla sem er svo gæf og góð.

Mér líst alla vega vel á hryssuna og bíð spennt eftir að sjá hana hreyfa sig af viti, hún er enn soddan klaufi að hún fer bara um á einhverju valhoppi. Kíki aftur á hana á laugardaginn, vonandi á hún eftir að geta sýnt mér eitthvað brokk þá.




Sótrauði Töfrasonurinn er afar glæsilegur

Við litum líka á Töfrasoninn sem við Hrafnhildur ætlum báðar að halda hryssunum okkar undir í sumar. Hann fer til Þýskalands í haust og ég get ekki horft á eftir honum án þess að halda undir hann. Hann er virkilega góð blanda af Töfra og Tývari að mér virðist, en hann er undan Tývarsdótturinni Krúnu frá Kjartansstöðum - Töfri kemur með glæsileika, fínleika og léttleika í hreyfingarnar en Tývarsblóðið vilja, yfirferð og kraft.




Almennilegar afturfótahreyfingar! Lyftir jafn hátt að framan og aftan!

Það væri alger draumur að eignast sótrauða hryssu með svona afturfótahreyfingar, það væri frábært. Þá væri ég komin með hryssu sem ég gæti haldið undir hesta með góðar eða miðlungs hreyfingar til að eiga mögulega von á hreyfingunum í afkvæmunum - og stóðhestaúrvalið fyrir mig yrði strax meira þar sem hryssurnar mínar eru ekki með þennan eiginleika og flestir stóðhestar ekki heldur!




Smáradóttirin Stilling frá Bjarnastaðahlíð

Það er allt gott að frétta af Stillingu, hún bætir sig á hverjum degi. Margt er eftir fyrir dóminn 17. ágúst en ég ætti að ná að hafa hana tilbúna á réttum tíma ef allt lukkast vel. Yngsta alsystir hennar, 1. verðl. hryssan Næla frá Bjarnastaðahlíð verður sýnd á sömu sýningu og það verður gaman að sjá hvernig hún kemur út. Stilling fer í skoðun til Þórðar í næstu viku og vonandi sér hann sér fært að sýna hana - og það méllaust þar sem hún verður svo hrædd og fælin með mélin. Ég þarf svo að biðja um undanþágu til að fá að sýna hryssuna með méllaust beisli svo það eru ákveðnir steinar í veginum en ég treysti á það besta.

Með bestu kveðju,
Linda Karen

Skrifað 19.6.2009 kl. 0:04 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 66
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 103
Gestir í gær: 40
Samtals flettingar: 72632
Samtals gestir: 23884
Tölur uppfærðar: 3.9.2010 19:01:43