Fréttir
17.6.2009
Langþráða folaldið fætt!
Jæja - alveg eins og mig dreymdi - rauðtvístjörnótt er folaldið! Og það var hryssa :0)
Folaldið er loksins komið!!! Ingólfur ,,bóndi á Kjartansstöðum'' sá Spólu liggjandi með skjálfandi folald á fjórum fótum við hlið sér um áttaleytið í gær þegar hann var að keyra burt með hryssur á kerru. Hann lét mig vita um miðnættið - ég vissi ekki hvert ég ætlaði af gleði og spenningi. Ég tók upp símann og hringdi í betri helminginn í hestunum til að segja góðu fréttirnar. Hrafnhildur var í Fríhöfninni, nýkomin frá Bretlandi þegar ég sagði henni frá köstuninni og fékk hún þá skondnu hugmynd að fara um klukkustund síðar, eða um 1 um nóttina að skoða afsprengi Spólu og Tývars. Hún var búin að ferðast um langan veg til Íslands en var sko alveg til í 120 km í viðbót til að sjá gripinn langþráða.
Litla hryssan er hér um 6 klst gömul og virkar mjög nett og fríð. Hún hefur erft litinn, granirnar, herðarnar og bakið frá pabba sínum Tývari að mér sýnist. Spóla á líklega efri hluta höfuðsins, það er fíngert eins og hjá móðurinni.
Þegar við renndum í hlað um 2 leytið stóð Spóla í makindum sínum yfir litlum rauðum haus sem rétt sást upp úr háu grasinu og mændi á okkur stöllurnar með eyrun sperrt. Virklega myndarlegt folald, lítil fríða. Spóla tók strax vel á móti okkur og vildi með ánægju sýna okkur frumburðinn og var greinilega nokkuð stolt. Móðurlega umhyggjan streymdi frá henni og hún varð fljótt kelin við mig og vildi spjalla. Ég settist hjá folaldinu og strauk því rólega en fljótlega vildi það reyna að standa upp og ég studdi það lítilega á fætur. Ég var nokkuð viss um að þetta væri hestur því ég var búin að bíta það í mig fyrst að liturinn reyndist vera eins og mig hafði dreymt fyrir - þetta var Týr litli. En í raun og veru kom aldrei fram í draumnum hvort kynið það væri, ég var bara búin að ákveða þetta og finna nafn og læti fyrir komandi hestfolald. En það var hryssa sem ég er mjög ánægð með, ræktunarhryssa framtíðarinnar. Við spjölluðum heilmikið við folaldið sem var fljótt að spekjast og var mjög forvitið um þessa nýju hesta á tveim fótum og gekk oft fúslega frá móður sinni til að spjalla við okkur. Hún á samt greinilega margt ólært, kann ekkert á tungumál hestanna enn. Hún virkaði á mig sem mjög hugrökk, hún ráfaði oft langt frá móður sinni sem átti varla í við hana á stundum. Hún skoðaði mikið og fór meira að segja að elta aðrar hryssur þarna sem mamma hennar var ekki ánægð með.
Greinilega tvístjörnótt líkt og mig dreymdi - já spákerlingin er þá ekki alveg ónýt eftir allt saman!
Hrafnhildur tók eftir því að hún var ennþá með ,,hófvörnina'' undir hófunum sem er til að hófarnir valdi ekki skaða á meðgöngu eða við köstun. Daman var eins og hún væri á háhæluðum skóm og átti í mesta basli með að hlaupa af viti. Hún tók nokkra fjöruga spretti og sveif hún yfir með mjög fallegu og léttu spori. Þorvaldur hringdi í mig í morgun til að láta mig vita af folaldinu en hann vissi ekki að ég hafði komið um nóttina til að sjá það. Hann hafði á orði að það gæti nú lyft löppunum svo ég hlakka til að sjá það aftur á morgun, en ég er að fara austur að kenna smelluþjálfun og kem við á Kjartansstöðum á leiðinni heim.
Hryssan vissi greinilega af kossahefðinni 6 klst gömul og var ekki lengi að slengja einum á dömuna!
Ég er alveg yfir mig ánægð með hryssuna og nú þarf bara að finna henni viðeigandi nafn. Mér finnst orkan í kringum hana vera sjálfstæði og hugrekki, hún er frökk og óhrædd - þessi ætlar sko ekki að hanga í pilsfaldinum hennar mömmu sinnar. Mér finnst hún alveg fullkomin, heheh.
Viðbætur við blogg:
Litlu hryssunni hefur verið gefið nafnið Eldey frá Reykjavík en það býr svo mikill kraftur og orka í eldinum sem á við orkuna í þessari skjátu. Í raun var hún skírð í höfuðið á hryssu sem ég hélt uppá þegar ég var 12 ára gömul, Eldey frá Hólum - ég heillaðist alltaf svo af henni enda var hún mjög fríð. Hún er t.d. móðir skeiðgarpsins Esterar frá Hólum.
Gleðilegan 17. júní!
Með sólarkveðju,
Linda Karen
