Fréttir

15.6.2009

Heimsókn að Útey 2



Sólríkur frá Útey 2 með 8,19 fyrir byggingu.

Um helgina fór ég í heimsókn til Heimis Davíðssonar að Útey 2 en ég er að fara að búa til heimasíðu um ræktunarbúið og koma hrossunum á framfæri. Að Útey fékk ég að sjá falleg og léttstíg hross með góðri fótlyftu sperra sig í haganum. Þau eru undan hestum eins og Þóroddi frá Þóroddsstöðum, Gustssyninum Forna frá Horni, Gusti frá Lækjarbakka og svo undan stóðhesti búsins, Sólríki frá Útey 2. Sólríkur hlaut 8,19 fyrir byggingu enda þrælmyndarlegur klár og svo 8,03 fyrir hæfileika en sýningin tókst ekki nógu vel og hefði eiginlega þurft að renna honum aftur í gegnum dóm blessuðum. Einhver dómaratengdur hafði á orði að hesturinn hefði líklega átt 9,5 skilið fyrir skeið hefði hann legið eins fallega eins og hann sýndi á brautinni í byrjun en svo fipaðist hann og hlaut því 8,0.
 



Sólríkur og Daníel Jónsson fyrir kynbótadómi

Sólríkur hefur nokkuð áhugaverða ætt að mínu mati en hann er undan Tývari frá Kjartansstöðum og hornfirsku hryssunni Maríu frá Stórulág. Frá Stórulág komu feyknarlegir kappreiðahestar í röðum og vantar hvorki vilja eða yfirferð í hann Sólrík. Hann Funi minn var frá Stórulág og var hægt að ríða honum á yfirferðartölti eða yfirferðarbrokki á meðan aðrir voru komnir á stökk. Það er gaman að vita af hrossum frá Stórulág enda eru afskaplega fá eftir og sá ég hana Maríu í haganum 31 vetra gamla í mjög góðu standi. Þegar Sigfinnur Pálsson, hrossaræktandi að Stórulág lést, lagðist ræktunin þar af þar sem börnin hans einbeittu sér að öðru -  en úr ræktun Sigfinns komu margir hlaupagæðingar sem skiluðu Íslandsmeistartitlum og svo sigurvegara í A-flokki á landsmóti 1978 - Skúmur frá Stórulág. 




Félagarnir Heimir og Sólríkur fyrir utan hesthúsið að Útey. Ég á svo lélega myndavél að ég náði engri góðri mynd af hestinum á ferð en sá gat sko sperrt sig. Sólríkur lyftir líka afturfótum ágætlega að mér virtist og gaman væri að sjá hann í reið einhvern tíma til að sjá hvernig það kemur út á töltinu.

Heimir hefur haft góða reynslu af Tývari og prýðir falleg mynd af honum einn eldhúsvegginn hjá honum. Sólríkur Tývarsonur hefur verið að gefa honum mjög léttbyggð, auðtamin, geðgóð og hreyfingafalleg hross sem hann hefur verið mjög ánægður með. Tvö hross undan Sólrík eru væntanleg á síðsumarsýningu í sumar og verður gaman að sjá hvað kemur út úr því. Eftir þessa heimsókn hlakkar mig enn meira til að sjá afkvæmið hennar Spólu minnar, það væri sko ekki leiðinlegt að eignast svona myndarlegan hest - maður verður bara að bíða og vona...en ekki lætur folaldið nú sjá sig enn.



Sólríkur varð auðvitað að kyssa mig í kveðjuskyni en hann vildi ekki vera minni hestur en faðir sinn og Töfri frændi þegar kemur að kossaflensi. Virkilega vinalegur og ljúfur höfðingi með mjög gott geðslag, en heimasæturnar á bænum sjá um að þjálfa hann. Ef einhver hefur áhuga á að halda undir þennan glæsihest þá má hafa samband við Heimi í síma 8615410 en hesturinn verður við Laugarvatn í sumar og ekkert mál að bæta við hann hryssum.

Með bestu kveðju,
Linda Karen

Skrifað 15.6.2009 kl. 14:19 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 90
Gestir í dag: 31
Flettingar í gær: 103
Gestir í gær: 40
Samtals flettingar: 72656
Samtals gestir: 23889
Tölur uppfærðar: 3.9.2010 20:23:26