Fréttir

20.5.2009

Stóðhestaval og efnileg skjáta



Virkilega lofandi foli undan Töfra frá Kjartansstöðum og Tývarsdótturinni Krúnu sem ég ætla að halda Spólu undir í sumar. Lyftir næstum jafn hátt að aftan og að framan sem er kyngimagnað.

Jæja það er blessuð blíðan! Nú eru allir vafalaust að leita að rétta stóðhestinum fyrir sína meri og ég vona að ég hafi valið rétt þetta vorið. Ég væri reyndar mikið til í að halda undir höfðingjann hann Tývar aftur enda langar mig að eiga gæðinga eins og hann í röðum - en ég á bara einn möguleika á að nota ákveðinn hest í sumar. Á Kjartansstöðum er ungfoli sem búið er að selja út sem er mikið efni og væri hálfgerð fáviska að láta hann fara án þess að halda undir hann. Folinn er 3 vetra í vor, sótrauður undan Töfra og Tývarsdótturinni Krúnu frá Kjartansstöðum sem er ein efnilegasta ræktunarhryssan á bænum, en hún er fædd árið 2000. Folinn hefur alltaf hreyft sig með háum, svifmiklum hreyfingum með miklu rými og hraða, virkilega flottur foli með stórglæsilegar afturfótahreyfingar. Ég trúi því að hér hafi skyldleikaræktunin gengið upp en hesturinn hefur Ternu frá Kirkjubæ þrefalt á bak við sig. Með þessum hætti blanda ég líka saman uppáhalds hrossunum mínum fyrir utan mín eigin - Töfra, Tývari, Ternu og svo Smára frá Skagaströnd í gegnum Spólu. Ég hlakka reyndar mikið til að sjá Tývarsafkvæmið sem er að koma í heiminn, það fer að styttast í það. Mig er farið að dreyma Spólu reglulega að kasta eða með folald við hlið sér, kannski einhver fyrirboði. Það  er nú ekki alltaf eins og litinn, stundum er það sótrautt eins og folinn atarna (vonandi verð ég svo heppin næsta vor, æðislegur litur), og um daginn dreymdi mig að hún kastaði tveim rauðblesóttum hestum sem er nú bara einhver fyrirboði um köstun ef maður á að marka þetta eitthvað, ekki nema það verði tvíburafolalda-æði á skerinu í ár! En ég veðja enn á að þetta verði rauðtvístjörnóttur hestur - en ég hefði auðvitað ekkert á móti brúnni hryssu!




Lyfting frá Bjarnastaðahlíð, undan Gusti frá Hóli og Hlíðar-Gránu frá Bjarnastaðahlíð. Hlaut 10 fyrir hægt tölt, gífurlega hágeng hryssa. Hún réði ekki nógu vel við framfótahreyfingarnar á ferðinni, hlaut 8,5 fyrir tölt. Stilling er undan Ágirnd frá Bjarnastaðahlíð sem var slysafolald undan Hlíðar-Gránu og hefur hún reynst vel, eitt afkvæmi komið í fyrstu verðlaun...og vonandi annað seinna í sumar...!

Ég er enn með Stillingu á húsi og hef ekki verið nógu dugleg að setja hér fréttir af henni. Það gengur æðislega með Stillingu, hún er úrvalshryssa sem vex og dafnar með hverjum degi. Hún er farin að tölta vel núna og brokkið er allt að styrkjast, en það er viðkvæmt eins og í mörgum alhliða hrossum. Maður þarf að gæta þess að setjast ekki í hnakkinn þegar maður hleypir henni því þá vill hún bara renna sér á eitthvað skeiðflandur. Ég vill nú ekki hreyfa við skeiðinu, betra að vinna í töltinu og láta einhvern vanari sjá um skeiðið, vil ekki henda henni óvart í binding. Hún fer í skoðun til Þórðar um miðjan júní og ef hann samþykkir að sýna hana á síðsumarsýningunni þá fer hún í tveggja vikna frí og kemur svo aftur heim í Víðidalinn í frekari þjálfun hjá mér fyrir sýninguna. Hún hefur breyst svo mikið síðan í vetur að það er alveg himinn og haf á milli, tryppastælarnir eru horfnir og er hún orðin að blómstrandi ungri konu ef svo má segja. Viljinn er góður (með gírum eins og maður kallar það, gerir það sem hún er beðin um þangað til skipt er um gír) og hún er afskaplega þjál og hjálpar Beisli án Méla þar mikið. Hún var alltaf mjög taugaveikluð með mélin, fældist mikið, en nú er það allt horfið og er hrein unun að sitja hana. Hún hefur alltaf borið sig með höfuðið frekar hátt, en nú er það allt að lagast þó ekki sé allur björninn unninn. Stefnan er að fara með hana í dóm í ágúst og svo á landsmót 2010 - og halda henni svo vonandi undir gæðinginn Töfra frá Kjartansstöðum árið eftir. Stilling er eins og hugur manns, svo auðsveip og geðgóð, hef aldrei á ævinni fyrirhitt svona geðprútt hross. Það eru líka margir sem halda að hún sé graðhestur enda er hún svo stór og faxprúð. Þegar hún er í látum þá lætur hún eins og graðhestur, hringar makkann og ber sig alveg ógurlega höfðinglega. Held að hún hafi tekið óskir mínar um að eignast minn eigin graðhest of alvarlega! En það er gaman að þessari skjátu, þarf að koma með nýjar myndir af henni bráðlega.




Hafi einhver áhuga á að nýta sér sótrauða Töfrasoninn í sumar eða höfðingjann hann Tývar - hafið endilega samband við mig í síma
 86... eða á lindakaren@beisli.net

Með sumarkveðju,
Linda Karen

Skrifað 20.5.2009 kl. 12:37 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 66
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 103
Gestir í gær: 40
Samtals flettingar: 72632
Samtals gestir: 23884
Tölur uppfærðar: 3.9.2010 19:01:43