Fréttir
4.5.2009
Skoðunarferð á Kjartansstaði
Linda með Spólu sína sem var næstum óþekkjanleg af faxi og bumbu.
Ég og Hrafnhildur vinkona fórum í heimsókn á Kjartansstaði á 1. maí til að skoða efnilega ungfola, en erum mögulega báðar í einhverjum ræktunarhugleiðingum og þá verður maður víst að fara í skoðunarferðir. Mættum eldsnemma en við bjuggumst við að allt væri í blússandi standi í tamningunum en hestafólk tekur 1. maí hátíðlegan og voru allir steinsofandi! Við ákváðum nú að vekja ekki fólkið svo við fórum út á tún að skoða hrossin mín þau Spólu og Heimi. Bæði litu mjög vel út, sæl og feit af vistinni í haganum en Spóla var mjög ólík sér, faxið mun síðara, feldurinn töluvert rauðleitari en vanalega og vömbin skagaði út út af litlu Tývarsafkvæmi. Sannkölluð stóðmeri í útliti.
Spóla með sinn langa háls sem er of neðarlega settur... vonandi náði Tývar að skrúfa hann aðeins upp á afkvæminu þarna inni! Tývarsafkvæmi brosir í vélina.
Fyrst ætlaði hún nú ekki að þekkja kerlinguna, en þegar hún heyrði gobbagobb þá var hún ekki lengi að þekkja mig. Ég svoleiðis knúsaði hana í bak og fyrir en þetta er hið mesta kúrudýr og hallaði hún aftur augunum á meðan ég strauk henni um höfuðið. Vömbin er orðin heldur stór og líklega kastar hún um miðjan júní. Ég hlakka mikið til að sjá folaldið enda foreldrarnir báðir hreyfingamiklir viljagarpar með frábært geðslag. Ég veit nú að byggingin á merinni er nú ekkert til að hrópa húrra fyrir og virðist hún enn undarlegri í laginu svona feit (maður má nú samt aldrei segja slíkt um ófrískar konur! Uss!) en í mínum huga er hún mikill gæðingur sem fékk aldrei að blómstra vegna veikinda. Virkilega skemmtileg reiðhryssa, óhemju klár í kollinum og eldfljót á fjórum jafnfljótum með góðri hreyfingu. Ég verð að viðurkenna að þau Smáraafkvæmi sem ég hef kynnst hafa verið mjög skemmtileg og ég verð líklega ávallt sérstakur aðdáandi þess hests.
Hágengur 3 vetra foli, takið eftir því að hann lyftir næstum jafn hátt að aftan á brokkinu og að framan! Kreppir bæði hækil og hné. Afturfótahreyfingarnar (að kreppa hné og hækil) gera honum enn frekar kleift að ,,setjast'' að aftan og ætti töltið því að verða mjög fallegt líkt og hjá Töfra föður hans - afturfæturnir verða eins og gormar sem hesturinn getur sest á svo þessu sé lýst með myndrænum hætti! Afturfótahreyfingar eru ræktunarmarkmið.
Nokkrir glæsilegir ungfolar standa inní hesthúsi á Kjartansstöðum og er vafalaust hægt að fá þá leigða út sé rætt við Þorvald á terna@terna.is. Þeir eru undan háættuðum gæðingshryssum og 1. verðl. stóðhestunum Dyn frá Hvammi, Krafti frá Bringu og Töfra frá Kjartansstöðum. Við dömurnar höfðum sérstakan augastað á tveimur undan Töfra enda er hann í miklu uppáhaldi. Fátækir námsmenn verða víst að leita í efnilega fola þar sem þeir hafa ekki efni á þeim sem hafa þegar sannað sig! Eftir að hafa sötrað kók og rætt um hestaheima og geima við Þorvald fórum við út og rákum til folana - og það var sko sýning. Fyrst hentum við út í stykki sótrauðum þriggja vetra fola undan Töfra og Krúnu frá Kjartansstöðum, glæsilegri hryssu undan Tývari. Hann er því nokkuð skyldleikaræktaður en Þorvaldi hefur tekist mjög vel upp með það, sbr. Töfri. Hann fór um með þvílíkum hreyfingum, flugrúmur og hágengur hestur. Ferðin á honum var mjög mikil, stökkið hátt og kraftmikið, brokkið öruggt, flugrúmt og ekki vantaði fótlyftu. Ég er alvarlega að hugsa um að halda undir þennan fola í sumar vegna þess að hann er seldur út og fer í haust. Hann er fallegur í laginu þó að hausinn og faxið séu ekki alveg það sem óskað er eftir í ræktuninni en það er varla hægt að líta framhjá svona eðlisgóðum hesti. Það vantar jú ekki faxið á Spólu svo maður verður að treysta á það ef svo fer að maður lumi henni til hans! Hesturinn hefur líka miklar og glæsilegar afturfótahreyfingar líkt og Töfri faðir hans, lyftir næstum jafn hátt að aftan á brokkinu og framan sem er frábært. Þessi foli verður líklega mjög viljamikill og ákveðinn en ég efast ekki um að þetta er gæðingsefni sem á eftir að sanna sig á erlendri grundu leggi nýji eigandinn sig fram með hann - sem hann hlýtur að gera því annars væri hann að henda peningunum sínum út um gluggann.
Hagaljómi, afar heillandi alhliða foli.
Svo skoðuðum við annan fola, háættaðan undan Töfra og gæðingnum Þotu frá Hólum, mjög myndarlegan. Hann er mun líkari Töfra en sá fyrri sem var grófari. Hann hefur aldrei sýnt neitt úti þar sem hann er svo gæflyndur og ljúfur - en 1. maí var hann í essinu sínu og flaug um á svifmiklu brokki með góðri fótlyftu, fasmikill hestur. Hann greip líka í veglegt skeið þegar hann var að fljúga á harða stökki inn á blettinn. Á eftir að blómstra í tamningu, býst við miklu af honum. Hrafnhildur var hrifnari af honum því hann var svo óskaplega fríður, fasmikill og svo er hann einnig alhliða sem hún vill sækja í, en merin hennar var óskaplega erfið í gangsetningu og gæti slíkur hestur mögulega hjálpað afkvæminu aðeins varðandi töltið. Ég var líka mjög hrifin af þessum hesti en þar sem ég er svo ofsalega veik fyrir mikillri afturfótahreyfingu hins....úff þá held ég að ég láti það ráða för enda vil ég rækta þann eiginleika þar sem of lítið er um hann í íslenska hestinum.
Ekki gátum við farið án þess að heilsa upp á Tývar og ákvað ég að smella á hann einum kossi enda þýðir ekkert annað þegar svona myndarlegur hestur á í hlut, hehe! Ég heimsótti nú bróður hans Töfra á Sandhólaferju í haust þar sem hann gekk beint upp að mér og ''kyssti mig'' beint á munninn - varð nú að heilsa aðdáanda með eftirminnilegum hætti! Kyssulegir bræður! Tývar fer upp Ásmundarstaði í kringum 15. júní og er farið að týnast undir hann sem er af hinu góða enda gæðingur á ferð.
Með bestu kveðju,
Linda Karen