Fréttir
23.4.2009
Tývar frá Kjartansstöðum
Gleðilegt sumar! Nú er kominn tími á vorverkin, þ.e. að huga að hvaða stóðhest hryssan manns fær að hitta í sumar og hér verður kynntur einn frekar myndarlegur.
Hér fyrir neðan er myndband af Tývari tekið upp á landsmóti 1998 þegar hann var 5 vetra - og stutt myndbrot á brokki heima á Kjartansstöðum um 3 vikum fyrir landsmótið. Tývar slasaðist á fæti í millitíðinni og hafði það áhrif á hestinn sem þó náði glæsilegum tölum á mótinu:
Kostir 8,46
Tölt: 9,5;
Brokk: 9,0;
Skeið: 5,0;
Stökk: 9,0;
Vilji: 8,5;
Geðslag: 8,0;
Fegurð í reið: 9,5
Sköpulag (frá fyrri dómi): 7,83
Höfuð: 8,0;
Háls, herðar og bógar: 8,5;
Bak og lend: 7,5;
Samræmi: 8,5;
Fótagerð: 7,0;
Réttleiki: 7,5;
Hófar: 7,5;
Prúðleiki: 3 (hæsta einkunn var 5 á þessum tíma)
Aðaleinkunn: 8,14
Það er ósamræmi í þessum einkunnum ef maður veltir því fyrir sér - hvernig getur hestur með 9,5 fyrir tölt fengið aðeins 8,5 fyrir vilja?
Það komst kvittur á að hesturinn gæti átt 10,0 fyrir tölt út af því hversu gríðarlega ferðmikill hann var, hágengur og rúmur. Sumir sögðu að hann hefði verið stjarna landsmótsins sem er ekki ólíklegt enda gustaði af hestinum.
Tývar á landsmóti 1998 þegar hann var 5 vetra - og stutt myndbrot á brokki heima á Kjartansstöðum um 3 vikum fyrir landsmótið. Litirnir í myndbandinu eru eitthvað skrýtnir því við náðum í þetta úr eldgamallri vél með gömlum spólum sem hefur haft sitt að segja - en það sést hversu glæsilegur og hágengur hesturinn er.
Tývar verður í hólfi að Ásmundarstöðum 1 við Hellu og hefst gangmálið í kringum 15. júní og lýkur undir lok ágúst. Því ættu hryssueigendur að vera nokkuð öruggir um fyl. Hólfið er mjög gott og er daglegt eftirlit með hópnum. Tývar er mjög kurteis við hryssurnar og er mjög vingjarnlegur við alla gesti á tveim jafn fljótum sem vilja heimsækja hann og hryssurnar hans. Sónarskoðað verður í lok gangmáls.
Folatollurinn verður 60.000 með hagagjaldinu en ég er ekki alveg viss um hvað sónarskoðunin kostar, líklega 2500 kr. eða svo sem allir geta greitt fyrir sig þegar dýralæknirinn kemur að sóna.
Ef þig langar að fara með þína meri undir þennan mikla höfðingja þá er hægt að panta hjá mér í síma 869-3902 eða með vefpósti lindakaren@beisli.net. Ég er viss um að þú sérð ekki eftir því.
Tývar er undan gæðingamóðurinni Ternu frá Kirkjubæ og heiðursverðlaunahestinum Þokka frá Garði sem var undan Hrafni frá Holtsmúla. Tývar hefur alla tíð verið í sérstöku uppáhaldi hjá Þorvaldi ræktanda hans, ekki síst vegna geðlagsins og prúðmennskunnar. Þónokkrir hafa falast eftir hestinum í gegnum tíðina (og bara nýverið í haust) en Þorvaldur hefur alltaf neitað enda ekki getað hugsað sér að sjá á eftir þessum vini sínum. Tývar er kominn með 1. verðlaun fyrir afkvæmi en það var aldrei farið og tekið á móti þeim þó hann hefði réttindin til þeirra svo þau eru ekki fullgild þar sem hann tók ekki við bikarnum. Undan honum eru til 9 fyrstu verðlauna hross og þau efstu eru með 8,40-8,60 fyrir hæfileika.
Tývar er frábær gæðingur sem hefur gleymst í umræðunni og ég er viss um að hann eigi eftir að gefa af sér þónokkra gæðinga í viðbót áður en yfir lýkur.
Með sumarkveðju,
Linda Karen