Fréttir

21.4.2009

Spóla kasólétt og myndband með Tývari á leiðinni




Spóla og Tývar í tilhugalífinu síðasta sumar. Mynd: Hekla á Ásmundarstöðum.

Jæja! Nú er kominn tími á að blogga aðeins! Ég verð að viðurkenna að ég er alltof löt við að blogga en það er líka af því að ég vil hafa eitthvað merkilegt að segja þegar ég geri það. Það er svo sem ekki mikið að frétta af þessum bæ, bara að ríða út á Stillingu minni sem hefur verið allra meina bót í atvinnuleysinu. Veit ekki hvað ég gerði án hennar og þessarar tölvu á daginn! Við stefnum ótrauðar á síðsumarsýningu í ágúst og mig langar mjög að fá Þórð til að sýna hana fyrir mig enda afar flinkur í brautinni drengurinn sá.




Spóla er kasólétt í haganum að Kjartansstöðum og ég get varla beðið eftir að sjá afsprengið enda hefur Spóla alltaf verið í miklu uppáhaldi, fjörug, klár og viljug. Það væri gaman að sitja litla ,,Spólu'' eða ,,Spólar'' í framtíðinni sem hefur heilsuna til þess, annað en móðirin. Mér finnst þetta þó dálítið óraunverulegt þar sem ég hef aldrei ræktað hross áður. Mig langar mikið að setja hana aftur undir hest í sumar enda bankar hið mannlega eðli, grægðin, aðeins upp á hjá manni! Keypti rándýrt stóðhestablað Eiðfaxa í gamni til að velta þessu aðeins fyrir mér en það var enginn nema einn sem mig langaði að halda undir í því blaði en það er Töfrasonurinn Óskar frá Blesastöðum. Hann er svo líkur Töfra föður sínum og svo hefur hann Ternulitinn í þokkabót sem er mjög fallegur litur, sótrauður hesturinn sá. Það kostar held ég í kringum 100.000 kr tollurinn svo ég held ég verði að geyma það aðeins, en ég mun vafalaust nota hestinn þó síðar verði. Ef ég verð yfir mig hrifin af Tývarsbarninu sem er að koma þá held ég kannski undir Tývar aftur því mig rennir í grun að þau passi ágætlega saman þau Tývar og Spóla, kemur í ljós í júní að vonum.




Blaðagrein sem birtist fyrir um 10 árum síðan í DV.

Í þessari viku kemur glæsilegt myndband af Tývari þegar hann var sýndur fyrir kynbótadómi á LM'98. Einnig verður birt hér bráðlega annað myndband af honum sem var tekið heima á Kjartansstöðum um 3 vikum fyrir sýninguna. Þar er Siggi Matt á honum og er að koma heim eftir reiðtúr og er spóka sig aðeins á hestinum fyrir eigandann. Báðir héldu varla vatni yfir hestinum, hann var svo hágengur, rúmur og glæsilegur. Hann var víst albestur á þessum tíma því stuttu seinna slasaðist hann á fæti og var lakari á landsmótinu þó stórgóður væri. Hann fékk 9,5 fyrir tölt en kannski hefði hann líka náð 9,5 fyrir brokk hefði hann verið eins magnaður eins og hann var nokkrum vikum áður? Kíkið við fljótt aftur.

Það getur verið að maður sé að fara að bæta við sig einni hryssunni í viðbót með Ternulitinn og Tývars- og Kirkjubæjarblóð í æðum - en það kemur í ljós í vor. Þetta er víst lítil fegurðardís með fallegt byggingarlag sem er jákvætt fyrir hryssuhópinn minn þar sem hæfileikarnir vega töluvert meira en byggingin sem er svona í tæpara lagi miðað við bókina. Kemur í ljós.

Jæja þetta er stutt og laggott - endilega kíkið aftur við til að sjá myndbandið af Tývari - þá verða væntanlega komnar allar uppl. varðandi notkunina á honum ef einhver er að spá í að eignast gæðing undan þessum höfðingja á góðu verði.

Með bestu kveðju,
Linda Karen



Í lokin er hér gamalt en afar hvetjandi lag með Michael Jackson, Heal the World.

Áhugaverður punktur í tengslum við lagið -
Í síðustu kenningu sinni, Lótus Sútrunni, sagði Búdda að okkar tími yrði mjög erfiður, veðurfarið myndi breytast á furðulegan hátt út af orsökum mannkynsins (sbr. gróðurhúsaáhrif v/mengunar), náttúran myndi öll skekjast út af allri neikvæðninni í heiminum og allt færi úr jafnvægi. Hér yrði erfitt að vera vegna þess að hin svokölluðu þrjú eitur, reiði, græðgi og fáfræði yrðu allsráðandi. Hann spáði þessu ekki heldur sá hann bara orsakir fólksins á hans tíma sem stjórnaðist mest af neikvæðum hvötum, og að þetta yrði afleiðingin, hlutirnir myndu versna áður en þeir færu að batna. Hinsvegar sagði Búdda líka að friður og hamingja myndi komast á á endanum því þessi tími yrði besti tíminn til að sigrast á myrkrinu þar sem fólk fengi kraftinn til að breyta (rétt eins og alkinn sem drekkur sig á botninn og rífur sig svo upp, við erum frekar ýkt í þessu við mannfólkið).

Hann sagði að upp myndi rísa venjulegt fólk sem breytti heiminum einfaldlega með því að breyta sínu eigin lífi, gera byltingu innra með sér og vinna ótrautt að sinni hamingju og annarra í sínu daglega lífi. Þannig myndi þetta fólk smita út frá sér og heimurinn myndi breytast því einstaklingarnir myndu breytast. Við berum öll ábyrgð á því að gera heiminn betri - einfaldlega með því að gera okkur sjálf betri í okkar daglega lífi.

Rússinn Leo Tolstoy hafði á orði að ekkert færi manni dýpri hamingju en að uppgötva að maður sé betri maður í lok ársins en við upphaf þess. Þannig lífi vil ég lifa. Hvað með þig? ;0)

Skrifað 21.4.2009 kl. 12:28 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 90
Gestir í dag: 31
Flettingar í gær: 103
Gestir í gær: 40
Samtals flettingar: 72656
Samtals gestir: 23889
Tölur uppfærðar: 3.9.2010 20:23:26