Fréttir

19.3.2009

Ferð á Vestfirði



Bósi og Hamóna í morgunmat fyrir utan hesthúsið á Söndum. Tíguleg fjöllin horfa á.

Jæja, nú er svo langt um liðið að ég verð að fara að setja hér inn einhverjar fréttir! Málið er að ég varð svo óheppin að tölvan mín hrundi í síðustu viku og er ég nú loksins komin með nýja og betri svo loksins get ég farið að skrifa aftur.




Ég hef verið að dunda við ýmislegt undanfarið en þó ber hæst ferð mín til Þingeyrar um þarsíðustu helgi þar sem ég hélt kynningu á Beisli án Méla og Smelluþjálfun. Það var Stormsdeildin Dropi, sem er Dýrafjarðardeild hestamannafélagasins Storms sem stóð fyrir kynningunni en hugmyndina átti Sigþór, fyrrverandi formaður Storms. Hann hefur verið að nota Beisli án Méla og fór svona að athuga púlsinn á fólkinu í félaginu sem hafði áhuga á að kynna sér það betur svo hann hafði samband við mig. Mér hefur alltaf fundist Vestfirðirnir afar fallegir og því gladdist ég yfir því að fá að fara þangað og í þessum líka skemmtilega tilgangi. Ég flaug vestur á föstudegi en kynningin átti að vera daginn eftir. Félagið greiddi fyrir mig flugfarið vestur sem það fékk svo til baka í gegnum aðgangseyri. Sigþór og eiginkona hans Sigríður buðu mér gistingu heima hjá sér á Þingeyri og var alveg yndislegt að fá að vera hjá þeim enda bæði mjög indæl og afar gestrisin. Á föstudagskvöldið fórum við öll upp í hesthús til að gefa og til að prufa hestana sem ég ætlaði að nota á kynningunni, þau Bósa og Hamónu. Hjónin eru með örfáar kindur í hesthúsinu sínu, þ.e. helmingur hússins er hannaður fyrir kindur - og vá ég féll sko alveg fyrir þeim. Ég var miklu meira hjá kindunum en hestunum, þetta eru bæði falleg og góð dýr. Sérstaklega var einn hrúturinn skemmtilegur, gat hlegið dável að honum og uppátækjum hans.




Reiðhöllin, eða reiðskemman á Söndum er mjög glæsileg.

Við fórum svo út í reiðhöll að prufa hestana og gekk mjög vel að velja þeim hlutverk. Hamóna var ekki alveg nógu dugleg á töltinu enda bara 2 mánaða tamin svo ég ákvað að hafa hana frekar í smellukynningunni. Ég smelluþjálfaði hana um kvöldið sem gekk mjög vel. Svo hittum við Nönnu, formann Storms sem bauðst til að koma með sinn hest líka þannig að við gætum verið með tvo á beislakynningunni. Hún prufaði beislið á hestinum sínum í höllinni sem áttaði sig strax á því og þetta small allt saman mjög vel.




Linda að kenna hinni brúnlitföróttu Hamónu spænska sporið í flýti á laugardagsmorguninn.

Svo var kynningin klukkan eitt á laugardeginum og fórum við Sigþór um tíuleytið að gefa og undirbúa Hamónu aðeins betur fyrir kynninguna. Þá var orðið vel bjart og hægt að sjá vel yfir svæðið. Hestasvæðið á Söndum er virkilega fallegt og félagsmenn hafa bæði góða reiðhöll og keppnisvöll til afnota og hægt að ríða upp um fjöll og firnindi. Væri sko alveg til í að vera þarna með hross, frábært svæði. Hamóna lærði svo á spænska sporið um morguninn og hún gat sýnt það með góðu móti þó henni hefði líklega vantað einn tíma í viðbót til að ná þeim glæsileika sem einkennir æfinguna en ég var samt mjög ánægð með árangur hennar.




Linda og Hamóna litla í kynningu um Smelluþjálfun. Vestfirðingarnir fylgjast áhugasamir með.

Um 20 manns mættu svo á kynninguna sem stóð í um 2 klukkustundir. Fyrst var kynning á Beisli án Méla og áhrifum méla á hesta. Eftir að ég hafði sagt allt það sem ég vildi segja fóru formenn Storms, núverandi og fyrrverandi af stað og riðu um höllina af miklum móð á öllum gangi nema í fimmta gírnum, fóru slöngulínur eftir keilum og fleira og fleira. Þau voru svo dugleg að þau gleymdu að ákveða hvernig þau ætluðu að hafa þetta og skyndilega voru þau komin á móti hvort öðru á fullu spani og endaði það þannig að Nanna hrundi af þegar hesturinn hennar skrensaði til að klessa ekki á Sigþór og Bósa. Henni var þó ekki meint af sem betur fer og var ekki lengi á bak aftur enda kjarnakona! Svo voru spurningar og svör og mikið var spurt og spekúlerað í þessum nýstárlega búnaði. Kynningin á smelluþjálfuninni gekk líka mjög vel og Hamóna gerði allt sem ég var búin að kenna henni, þ.e. öll grunnatriði smelluþjálfunar (snerta, bakka, lækka höfuðið) og svo spænska sporið sem hún var enga stund að læra með aðferðinni. Mikið var spurt um aðferðina og hafði fólk gaman að Hamónu litlu með sitt snotra balletspor sem hún hafði verið svo fljót að læra.




Bósi gamli, Sigþór (með myndavélina), Nanna og bleiki folinn stóðu sig frábærlega.

Báðar kynningarnar gengu mjög vel og fólk var mjög ánægt með þær. Flestir þurftu að leggja á sig svolitla keyrslu til að koma svo ég var mjög fegin að allir voru ánægðir. Svo kvaddi ég þetta góða fólk og fékk far upp á Ísafjörð til að ná fluginu heim. Sá sem tók mig með heitir Árni en hann hefur keypt 4 beisli af mér og notað þau með góðum árangri. Hann tók eftir því að hestarnir hans róuðust og urðu meðfærilegri þegar hann byrjaði að nota beislið. Við komum við í hesthúsinu hans og ég endurstillti hjá honum beislin en þau voru sum of laus sem er algengasta vandamálið við notkun þess, að það sé vanstillt. Þá er erfitt að stoppa svo mikilvægt er að gefa sér tíma í að stilla það rétt (þ.e. kinnólarnar mega ekki bunga út). Svo flaug ég heim og óskaði eftir beislum að utan en þónokkrir höfðu pantað sér beisli eftir kynninguna og því mikilvægt að fylla aðeins á lagerinn sem var orðinn alveg tómur. Þetta var alveg frábær ferð og er ég mjög þakklát fyrir hana. Skila hér með sérstökum kveðjum til allra fyrir vestan ;)

Hafið það sem allra best,
Kær kveðja,
Linda Karen

Skrifað 19.3.2009 kl. 9:24 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 73
Gestir í dag: 20
Flettingar í gær: 124
Gestir í gær: 59
Samtals flettingar: 48213
Samtals gestir: 17340
Tölur uppfærðar: 17.3.2010 19:13:58