Fréttir
12.2.2009
Af dýraverndinni og fleira
Ákveðin á svip í ferð með Bændasamtökunum á hvalstöðina í Hvalfirði fyrir nokkrum árum...skoðun mín á því máli sést nú á svipnum en myndin var tekin mér óafvitandi.
Heil og sæl. Já ég er nú ekki sú duglegasta í blogginu en verð að fara að breyta því. Ætla líka að fara að skrifa einhverjar fræðslugreinar sem gætu komið einhverjum að gagni en ég er búin að vera að lesa mikið þessa dagana og kynnst mörgu áhugaverðu efni. Skelli mér í þetta. Ég er nú líka búin að vera í vandræðum með útlitið á síðunni, ekki alveg nógu ánægð en þokkalega sátt við þessa lendingu eins og er.
Ég fór ásamt formanni Dýraverndarsambands Íslands, Ólafi Dýrmundssyni að hitta nokkra forsprakka Dýrahjálpar Íslands fyrir stuttu. Áttum við mjög ánægjulegan fund og munum huga að einhverskonar samstarfi í framtíðinni. Dýrahjálp Íslands hefur unnið mjög þarft og gott starf í þágu munaðarlausra dýra en yfir 100 dýr hafa fundið nýtt heimili með þeirra hjálp. Við ræddum margt og mikið en áhugaverðast fannst mér að búinn yrði til miðlægur gagnagrunnur fyrir gæludýr, rétt eins og WorldFengur er fyrir hrossin. Þegar t.d. lögregla myndi finna týndan hund gæti hún flett honum upp í bankanum væri hann örmerktur og fundið þannig eiganda hans. Hið sama væri hægt að gera við ketti og fleiri dýr ef vilji væri til. Þessi möguleiki verður enn frekar ræddur og athugaður betur - og er þetta mjög spennandi viðfangsefni því slíkur gagnabanki gæti leyst svo margan vanda fyrir dýr og menn. DÍ er brátt að fara að senda út tilkynningu vegna hvalveiðana sem svo skyndilega voru leyfð af fullum krafti af fyrrv. sjávarútvegsráðherra rétt fyrir mannaskipti sem mér þykir nú æði gruggugt ef svo má segja. Tilkynningin fjallar um að við ættum að hugsa til þess hve kvalafullar þessar veiðar eru fyrir dýrin og ættum við að huga að velferð þeirra með því að stunda ekki þessar veiðar - viljum koma því mikilvæga sjónarmiði á framfæri. Fjölmiðlamaðurinn og dýravinurinn frægi, sir David Attenborough hafði á orði að enginn myndi nokkurn tíma hugsa sér að veiða hval gæti hann gefið frá sér hljóð þegar væri verið að veiða hann, kvalahrópin yrðu slík.
Smári frá Skagaströnd með unga farþega meðferðis.
En að einhverju skemmtilegra! Ég fann skemmtilega mynd af einum uppáhalds stóðhestinum mínum honum Smára frá Skagaströnd. Þessi hestur er algert gull og væri ég heldur betur til í að eiga fleiri hross undan þessum gæðing... en 2 hryssur verða að duga! Reyndar er Stilling að mörgu leiti lík honum og er ég mjög ánægð með hana. Held hún verði virkilega góð. Stefni með hana á síðsumarsýningu og læt einhvert stórmennið sína hana fyrir mig svo hún komi nú örugglega vel fyrir. Það er bara svo fyndið að mig hefur alltaf langað í graðhest af einhverri ástæðu og segja má að Stilling reyni að fylla upp í þá löngun mína. Hún er nefnilega svo mikill töffari, stór og mjög faxprúð og það kemur fyrir að fólk haldi að hún sé graðhestur þegar hún er að grobba sig sem mest. Þegar hún er í meralátum minnir hún helst á graðhest í umgengni á stundum sem er svolítið fyndið. En ég sakna nú Spólu minnar dálítið og ekki síður Heimis, algerir englar sem hafa kennt mér svo margt. Þau hafa það náðugt í sveitinni. Ég kíki til þeirra í næstu viku og þá fæ ég líklega nokkra staðfestingu á því hvort skvísan sé fylfull eður ei við stólpagripnum Tývari. Það er garpur sem er virkilega indæll og kurteis - höfðingi á allan hátt.
Tývar frá Kjartansstöðum og Siggi Matt á fullri ferð.
Ég er í startholunum að fara að undirbúa kynningu á hestinum fyrir sumarið og er hann að fá mun meiri áhuga fólks þannig að ég býst við góðri notkun í sumar. Ætla að skella inn myndbandi bráðlega af hestinum og Sigga Matt sem var tekið upp rétt fyrir landsmót 1998 þar sem hann var gífurlega góður. Siggi hafði á orði að Tývar væri einn af bestu hestum sem hann hefði riðið. Tývar meiddist á fæti rétt fyrir landsmót og ekki var hægt að ríða honum að ráði fyrr en á landsmótinu sjálfu og var hann víst ekki eins góður og á myndbandinu góða sem tekið var upp um mánuði fyrir mót. Hvaða einkunnum hefði drengurinn skilað hefði hann verið eins hress og þá - góð spurning! Þær eru nú ekki slæmar hjá honum en kannski hefði hann náð að slá 9,5 fyrir brokk líka, hver veit. En þetta er roknahestur það er víst. Fyrir þá sem eru hrifnir af Ternu frá Kirkjubæ eða gæðingum yfir höfuð þá er Tývar sonur hennar góður valkostur og hreint ekki dýr heldur.
Jæja ég blogga svo meira bráðlega!!
Með bestu kveðju,
Linda Karen
Ps. Ef þið hafið verið að horfa á Söngvakeppni Sjónvarpsins þá er öll hljómsveitin, þ.e. bandið Aizyou (Ólafur, Sverrir og Maria) sem ég lagði hjálparhönd í haust, komið áfram! Þau leggja drengjum tveim úr bandinu Luxor lið sem bakraddir í ''kúrekalaginu'' svokallaða eða Easy to fool. Svo endilega ef ykkur líst á hópinn - kjósa heheheh!