Fréttir

13.1.2009

Allt er vænt sem er hestvænt



,,Hvernig kennir maður hesti að hneigja sig?'' - það gæti t.d. verið í gagnabankanum.

Jæja þar sem ég sit hérna súr veik heima og hef ekkert að gera er ekki vitlaust að nota tímann í að velta fyrir sér góðum hugmyndum. Nýverið hef ég verið að sjá fyrir mér veglega heimasíðu, eins og t.d. doktor.is, sem væri aðgengileg öllum og væri stútfull af fróðleik um tamningu og þjálfun hesta. Maður gæti leitað til dæmis að 'Kergja' eða 'Taumstífni' eða hvað sem er og fundið mögulegar lausnir á vandanum í ítarlegu svari líkt og á doktor.is. Ég hefði mjög gaman að gera slíkan fróðleiksvef mönnum og hestum til góða, gæti orðið svo mörgum að gagni. Alltaf spurning um tíma. Var nú ansi iðin við kolann í þessum málum þegar ég var yngri, var með Spurt og Svarað á Krakkavef 847. Það varð svo vinsælt á tímabili að ég var farin að fá bréf frá fullorðnu fólki sem þóttust vera krakkar sem mér fannst mjög gaman og merkilegt. Svo endaði þetta einhvern veginn á aðalvef 847 og sinnti ég þessu þar eitthvað en það komu svona 20-30 spurningar á dag þegar mest lét...og ég gat engan vegin náð yfir það svo þetta datt upp fyrir. En fræðslubanki er eitthvað sem hægt væri að sjá um án þess að þurfa að hafa daglegar áhyggjur af uppsöfnuðum spurningum. Gæti verið málið



Önnur pæling hérna í veikindunum er að ég sé fyrir mér að stofna fyrirtæki síðar á ævinni sem myndi sérhæfa sig í hestvænum útbúnaði. Gæti þá skellt saman öllum pælingunum í eitt sett - Beisli án Méla, Smelluþjálfun...Easy Walker skeifur (langar að gera eitthvað með það í framtíðinni) og fleira og fleira. Stútfylla Ísland af skemmtilegum möguleikum fyrir hestamennskuna með velferð hestsins og öryggi knapans í huga. Ég er nú aðeins byrjuð að kroppa í það svo gaman verður að sjá hvað ég verð búin að gera þegar ég verð komin á hátind lífs míns í kringum 40-60 ára aldurinn. Já það er gaman að lifa, sérstaklega ef maður gefur lífinu þann tilgang að gera heiminn í kringum sig betri og jákvæðari.




Smá fréttir af dýraverndarmálunum, eða dýravelferðarmálunum réttara sagt. Ég fer á fund í vikunni hjá Dýraverndarráði og þar mun ég fá fréttir af hvernig gengur með nýjar lagasmíðar fyrir dýrin. Þetta mun þó taka tíma en gleðilegt er að þetta er loksins á hreyfingu. Dýraverndarsambandið er einnig að fara af stað með vinnuhópa sem munu að leggja sitt af mörkum út í samfélagið. En þar sem ég er með mynd af þessari myndarlegu kanínu verð ég nú að segja frá því að nýr fjölskyldumeðlimur er kominn í hópinn - guðdómleg kanína að nafni Trópí. Óttaleg kúrukanína þetta stelpuskott, elskar að kúra þegar maður liggur upp í sófa með kallinum. Svo er maður allt í einu orðin blautur á fætinum því hún sleikir mann heil ósköp í þakklætisskyni fyrir klappið þetta blessaða dýr. Dýr eru eins og litlir englar, þau eru svo einlæg, hjartahrein og taka manni alltaf eins og maður er. Þess vegna er svo mikilvægt að vernda þau og bjóða þeim góðan, réttlátan og öruggan heim og það vil ég nota líf mitt í - að þessi heimur verði til fyrir þau.

Hafið það sem allra best,
Linda Karen

Skrifað 13.1.2009 kl. 18:33 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 66
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 103
Gestir í gær: 40
Samtals flettingar: 72632
Samtals gestir: 23884
Tölur uppfærðar: 3.9.2010 19:01:43