Fréttir

29.10.2008

Í minningu Funa



Þann 20. október kvaddi ég gamlan félaga, hann Funa frá Stórulág. Ég fékk Funa í jólagjöf árið 1996 og hófst þar með mín hestamennska þó ég hafi svoleiðis vaðið í pony-hesta leikföngum fram að því. Ég var hæst ánægð með gjöfina sem reyndist dýrmætari en nokkurn hefði grunað þar sem hesturinn hafði djúpstæð áhrif á mig og reyndist verða minn verndari í gegnum erfið ár. Funi hafði þann einstaka eiginleika að geta umvafið mann ef manni leið illa, hann hafði meiri skilning en nokkur hestur sem ég hef kynnst. Einu sinni, þegar ég var 12 ára, rann ég fram af hnakknum og niður hálsinn á hestinum. Hann rauk af stað þegar einhver renndi sér á skeið beint fyrir aftan okkur eitt vetrarkvöld á skeiðvelli Andvara. Ég lenti sitjandi og hvorki var fallið langt né óþægilegt, en samt brá mér svo ofsalega við þetta að tárin tóku fljótt við. Skyndilega fann ég einhvern strjúka hálf klaufalega á mér bakið en ringulreiðin hjá mér var svo mikil að ég pældi ekkert í hver þetta gat verið. Ég bjóst svo til þess að standa upp, en þá tók sig einhver til og lyfti undir handarkrikann á mér um leið og ég reis á fætur. Það var Funi. Ég hélt enn um augun en ég fann ennþá nokkrar klaufalegar strokur um bakið á mér, svona eins og einhver væri að reyna að hugga mig. Ég snéri mér við. Funi reisti sig, hallaði sér aftur og horfði á mig stórum björtum augum - það var eins og þau væru full af undrun (hann hafði greinilega ekki alveg búist við þessari atburðarrás) en líka full af fyrirgefningu. Ég hætti að snökta, tók upp tauminn og svo gengum við stuttan spöl heim í hesthús.



 
Funi var fæddur árið 1985 að Stórulág í Hornafirði og var undan 2. verðl. hestinum Sprota frá Stórulág. Frá Stórulág hafa komið miklir kappreiðagammar og kippti Funi sannarlega í kynið. Ég gat riðið þessum litla hesti á tölti og brokki á meðan aðrir riðu á stökki. Hann var í fyrstu ofsalega bundinn en með tíð og tíma tókst mér að fá hann til að ganga hreint og kom í ljós að hann bjó yfir afar hreingengu og mjúku tölti sem var hrein unun að sitja. Ég hef lent í mörgum ævintýrum með þessum hesti og var hann mér mikill innblástur þegar ég var yngri. Til eru heilu sögurnar og ljóðin um þennan hest (örvaði sannarlega rithæfileika mína), leirstyttur, teikningar (ein risastór hér inní stofu hjá mér sem ég gerði þegar ég var 15 ára), heimasíða (þekking sem kom sér vel í seinni tíð), ég kynntist 2 af mínum bestu vinkonum vegna hestsins, ég fékk áhuga á ættfræði hrossa og kunni bækurnar hans Gunnars Bjarnasonar utanað á þessum tíma, áhugi minn fyrir dýravernd hófst með honum - en það sem kannski dýrmætast var að hann gat alltaf umvafið mig sem ég þurfti oft á að halda frá honum á þessum tíma. Það var eins og tilvera mín sveigðist á ákveðna braut um leið og hann kom inn í líf mitt, en það eina sem ég vissi fyrir var að mig langaði að gera heiminn að betri stað. Nú hef ég hinsvegar fundið að mig langar að verða dýrum innan handar og vill auka velferð þeirra - sem og hjálpa fólki að skilja þau betur og eignast betra samband við þau. Samband okkar Funa var nú oft stirt á tíðum þar sem ég var ung og óreynd og hann öskuviljugur höfðingi með mikið skap, en en a endanum náðum við saman í reiðtúrunum líkt og við gerðum við aðrar aðstæður. Það varð til þess að ég samdi ljóð og hér er brot úr því:

Ef þú átt mikinn erfiðshest,
gleymd'ekki hvað sem á dynur.
Klárinn mun skilja allt fyrir rest
og verða þinn albesti vinur.
                      
Linda Karen 10.10.2001




Funi fyrir mörgum árum. Honum fannst gaman þegar ég setti einhverjar svona múnderingar á hann, varð alltaf svolítið montinn með sig.

Funi var einstakur karakter, ákveðinn, klár og íhugul týpa, mjög viljugur og kappsamur hestur. Við fylgdumst að í 12 ár þangað til að ég sá að hans tími væri kominn til að kveðja þar sem skrokkurinn hans var tekin að bila. Hann er nú grafinn að dýrakirkjugarðinum að Hurðarbaki í Kjós, rétt við hliðina á nautinu stóra honum Guttormi úr Húsdýragarðinum. Ég fékk frábæra þjónustu hjá henni Guðnýju í Flekkudal sem er með garðinn og er ég mjög þakklát fyrir. Einnig stóð Björgvin dýralæknir sig fagmannlega að svæfingunni sem gekk auðveldlega fyrir sig. Næsta vor ætla ég svo að gróðursetja blóm og koma svo fyrir fallegum legsteini á gröfinni í virðingu við hestinn.



Ég mun aldrei gleyma þessum vini mínum sem hafði svona djúpstæð áhrif á líf mitt og mun ég aldrei nægjanlega geta þakkað honum það. Hér er smá myndband til minningar um hann, lagið er ponsu væmið en textinn gæti ekki átt betur við.

Hafið það sem allra best,
Kveðja,
Linda Karen

Skrifað 29.10.2008 kl. 18:16 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 66
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 103
Gestir í gær: 40
Samtals flettingar: 72632
Samtals gestir: 23884
Tölur uppfærðar: 3.9.2010 19:01:43