Fréttir

14.10.2008

Hestarnir heimsóttir



Spóla loðna og folaldið (í bumbunni - vonandi...)

Sælinú. Mikið hefur gengið á síðan ég bloggaði síðast, en þó aðallega í þjóðfélaginu. Gleymi seint þessum mánudegi sem allt fór í háaloft... manni fannst hálfpartinn eins og það væri að koma stríð. Þessir erfiðu tímar hafa ekki komið niður á mér eða fjölskyldu minni, amk. enn sem komið er og vonum að ástandið batni, öllum í hag. Ég gat þó ekki annað en verið miður mín á þessum mæðulega mánudegi þótt hann kæmi ekkert sérstaklega við mig - en margir eiga vafalaust um sárt að binda á Íslandi í dag sem er mjög miður. Við verðum bara að standa veðrið af okkur eins og hrossin okkar gera á vetrum - vorið lætur alltaf sjá sig, það er víst.




Stilling faxprúða með gíraffaeyrun var hress og kát að vanda.

En að öðrum fréttum. Hesthúsið á Kjartansstöðum er farið að líta mjög vel út og þarf ég að öllum líkindum að mæta í drottningarfötunum þegar ég byrja að temja svo ég passi nú þarna inn í. Ég verð amk. að fjárfesta í einhverjum nýjum fötum því þetta eru nú óttalegir larfar sem ég á! En hrossin mín eiga allt það besta heheh. Mörg efnileg hross verða tamin og hlakka ég mikið til að kynnast þeim. Ég tek hana Stillingu mína inn fljótlega eftir að allt hefur komist í stand í húsinu - um að gera að byrja á henni áður en hnjúskar gera vart við sig. Ég fór og sótti Tývar á stærsta jeppa sem ég hef keyrt með Kjartansstaðakerruna í eftirdragi á laugardaginn. Mín keyrði alveg hreint dragmontin með gaurinn í kerrunni niður í Sandhólaferju í fallegu haustveðri. Þar sá ég Glotta frá Sveinatungu og Glym frá Árgerði, myndarlegir frændur. Hjá þeirri sýn var eiginlega ekki komist því töffararnir Glotti og Tývar öskruðu hreint ógurlega og ætluðu sko að sýna hvor öðrum hver væri nú mestur þarna. Töfri kom svo stuttu seinna fljúgandi inn um dyrnar með 2 hryssur frá Kjartansstöðum í eftirdragi, sannköllluð stóðhestadýrð þarna á bæ.




Tývar er orðin sílspikaður, ánægður eftir sumarið. Hann stóð sig vel karlinn. Mér til mikillar ánægju hefur verið hætt við að gelda hann en það var mögulega í loftinu, eins og kom fram í Eiðfaxa í vor. Tývar er einfaldlega stórgóður hestur og stefnt er á að kynna hann betur á næstunni. Ég á enn eftir að sónarskoða Spólu en ég virkilega vona að hún sé fylfull. Ég hef einhvern veginn á tilfinningunni að ég eigi eftir að verða mjög ánægð með afsprengið enda eru foreldrarnir báðir í miklu uppáhaldi.




Systurnar Stilling og Spóla - og vonandi folald þarna í vömbinni!

Ég kíkti aðeins á hrossin mín í leiðinni, en þau eru í hólfi við hliðina. Þegar ég gekk framhjá hólfinu til að ná í Tývar kallaði ég á þau og það fyndna var að öll reistu sig við og gláptu - þekktu greinilega sína kerlingu. Fór svo til þeirra seinna um daginn og Spóla kom strax á móti mér og vildi fá knús, lygndi aftur augunum, maður heyrði næstum kattarpurrið í henni. Spóla kann smelluleikinn og var ég búin að kenna henni að koma því ég vil geta skoðað folaldið í friði þegar það kemur. Spóla var alltaf frekar stygg týpa og til að ná henni í haga þurfti að hlaupa á eftir henni og bjóða henni svo sjálfri að koma. Gleymi því ekki þegar ég var einu sinni að reyna að ná henni og hún vildi ekki koma - ég tók að stað og rak hana um allt túnið með stóðið á eftir, fólk hélt að ég væri búin að missa vitið. En eftir það kom hún. En alla vega, ég rétti út hnefann og bað hana að koma  - hún kom og snerti með snoppunni. Ég var ekki með neitt brauð þannig að ég gaf henni gras og það þáði hún. Svona lékum við okkur um stund og vildi hún alltaf leika leikinn þrátt fyrir að hún fengi bara grasið sem hún sjálf stóð í! Þetta fannst mér stórmerkilegt. Henni fannst gaman að leika smelluleikinn, alveg eins og mér. Þegar folaldið kemur ætla ég að smelluþjálfa það svo það verði meðfærilegt og auðvelt að skoða. Ég er alveg heillengi að velta mér upp úr stóðhestinum - og þá get ég alveg ímyndað mér að það verði eitthvað svipað með folaldið!




Í lokin langar mig að leyfa ykkur að hlægja svolítið, en þetta erum við Spóla sumarið 2001 - hún 5 vetra og ég 16 ára. Þarna er ég að sannfæra mömmu um að leyfa mér að kaupa hana. Við erum svo yndislega miklir nördar (þá sérstaklega knapinn) að þetta gæti komið af stað hláturbylgju um Ísland - og ekki veitir af á þessum erfiðu tímum.

Þangað til næst,
Sólarkveðja,
Linda Karen

Skrifað 14.10.2008 kl. 12:55 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 73
Gestir í dag: 20
Flettingar í gær: 124
Gestir í gær: 59
Samtals flettingar: 48213
Samtals gestir: 17340
Tölur uppfærðar: 17.3.2010 19:13:58