Fréttir
26.9.2008
Töfrakoss
Það er allt gott að frétta af mér og nóg að gera eins og alltaf. Aðalefnið þessa dagana er að gera hesthúsið á Kjartansstöðum tilbúið sem verður hið glæsilegasta í verklok. Ég verð að viðurkenna að ég hlakka mjög til að takast á við verkefni vetrarins, eða tamningarnar sjálfar. Á eftir að læra heilmikið í vetur. Ég hef verið að fá sent meira kennsluefni til að læra meira um smelluþjálfunina, en ég fékk 4 DVD diska um daginn sem eru mjög áhugaverðir og eiga eftir að nýtast við tamningarnar. Einn diskurinn er t.d. bara um hvernig á að fá hesta til að komast yfir ótta sinn gagnvart einhverju sem getur ekki verið annað en nýtilegt. Byrja eflaust á umboðssölu á þessum vörum fyrir jólin enda snilldarefni á ferð.
Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að hitta sjálft goðið hann Töfra frá Kjartansstöðum síðustu helgi. Drengurinn kom beint í flasið á mér (eftir að ég hafði gengið á eftir hópnum hálft stykkið!) og kyssti mig beint á munninn. Þekkir greinilega aðdáendur þegar hann sér þá! Fjallmyndarlegur hesturinn sá, virkilega vinalegur og fasmikill. Ég hef alltaf dáðst að þessum hesti og því var mjög ánægjulegt fyrir mig að hitta hann svona í eigin persónu og fá þessar líka fínu móttökur, hehe. Þennan sama dag hitti ég líka 3 hrossa minna, Heimi, Spólu og Stillingu. Þau litu öll mjög vel út að Ásmundarstöðum, glöð og sælleg. Ég er svo innilega að vona að hún Spóla sé fylfull við honum Tývari, mikið myndi það gleðja mig enda er Tývar stórglæsilegur hestur. Hann spókaði sig eitthvað um þarna neðar í stykkinu klárinn sá, alltaf með sínar lappalyftur og hreyfingar á hreinu, mjög gaman að fylgjast með honum.
Og af því mér þykir svo gaman að þessum blessuðu myndböndum - Hér er myndband af stúlku sem á frísneskan hest og svo smáhest - og lætur hún báða framkvæma skemmtilegar kúnstir átakalaust vegna þess að samband þeirra byggist á smelluþjálfun.
Hef þetta stutt í bili!
Sólarkveðja,
Linda
Flettingar í dag: 73
Gestir í dag: 20
Flettingar í gær: 124
Gestir í gær: 59
Samtals flettingar: 48213
Samtals gestir: 17340
Tölur uppfærðar: 17.3.2010 19:13:58