Fréttir
2.9.2008
Glæsihrossin að Kjartansstöðum fá gest í vetur
Töfri og Jóhann Skúlason á landsmóti 2002.
Allt gott að frétta af mér og nóg af verkefnum í gangi. Ég lauk við útlitshönnun á www.dyravernd.is og www.smelluthjalfun.net um helgina og er bara nokkuð sátt þó seinni síðan eigi kannski eftir að fara í gegnum einhverjar breytingar síðar. Það eru alltaf góðar fréttir þegar maður drífur eitthvað áfram - en bestu fréttirnar eru þó að ég virðist vera komin með skemmtilega vinnu. Ég hætti hjá Bændasamtökum Íslands í lok júlí en þeir höfðu aðeins tímabundið starf fyrir mig þar og kvaddi ég þar með góðan vinnustað sem bjó að góðum starfsanda í alla staði. Nýja starfið mitt er að Kjartansstöðum í Flóa sem tamningamaður í fullu starfi. Ég hef alltaf litið upp til ræktunarstarfsins á Kjartansstöðum enda ótrúleg hross sem hafa komið þaðan (Töfri, Snarpur heimsmeistari í tölti, Huginn heimsmeistari í fimmgangi svo dæmi sé tekið). Einnig er margur gæðingurinn kominn út af Kjartansstaðaræktuninni og hér kemur smá upptalning á því: Óður frá Brún, Aron frá Strandarhöfði (og auðvitað öll Óðsbörn), Seifur frá Efra-Apavatni, Lúta frá Ytra-Dalsgerði, Maístjarna frá Svignaskarði, Sjóli frá Dalbæ, Piltur frá Sperðli, Adam frá Ásmundarstöðum, Tjörvi frá Sunnuhvoli (bæði móðir hans og faðir ræktuð af Þorvaldi á Kjartansstöðum), Krákur, Kiljan og Bjarkar frá Blesastöðum (megnið af Blesastaðahrossunum tengd Töfra á einhvern hátt að virðist og gengur vel), Glaður frá Brattholti, Ör frá Seljabrekku... vantar eflaust mörg góð hross en þessi fáu hér eru öll frábærir gæðingar og öll tengjast þau aðalræktunarhryssu búsins, Ternu frá Kirkjubæ á einhvern hátt. Terna var felld í hárri elli árið 2004 en hún var fædd árið 1974.
Stutt myndband sem ég gerði í gamni til heiðurs Tývari sem er í sérlegu uppáhaldi og get ég varla beðið eftir að sjá afsprengi hans og Spólu næsta vor (ef allt hefur gengið upp). Takið eftir glæsilegum og flugrúmum hreyfingum hans - frábær gæðingur. Ef þú sérð ekki myndbandið ýttu hér.
Terna kom með glæsilegar afturfótahreyfingar inn í íslenska hrossarækt og sem hefur dreift sér mest í gegnum Óð frá Brún (undan Stíg) og Töfra frá Kjartansstöðum. Að mínu mati var hún ein fremsta ræktunarhryssa landsins og munu afkvæmi hennar bera fána hennar á lofti um ókomna tíð. Hryssurnar undan Ternu búa einnig að góðum afturfótahreyfingum og virðast afkvæmin erfa þær óspart. Ég vil að góðar afturfótahreyfingar verði ríkjandi í minni ræktun rétt eins og á Kjartansstöðum, því þá uppsker maður meiri mýkt, fallegri burð og glæsileika inn í allar gangtegundir.
Heimasíða Kjartansstaða, www.terna.is hefur verið í mikilli uppfærslu og er hún í minni umsjón. Söluhross eru næst á dagskránni og er ég að vinna í að koma myndbrotum af þeim inn á síðuna og eru þetta afar mikil efni. Mér finnst reyndar hálf ótrúlegt að ég sé að vinna að þessari síðu þar sem ég skoðaði hana margoft þegar ég var yngri og var alltaf að bíða eftir uppfærslu. Ef ég gæti hringt í mig aftur í tímann og sagt mér fréttirnar fengi ég líklega létt yfirlið þar sem mig grunaði ekki að uppfærslan sem ég var alltaf að bíða eftir yrði gerð af mér sjálfri! Svona er nú heimurinn skrýtinn. Einnig er gaman að segja frá því að það að fara að temja á búinu er eiginlega svolítið eins og að fara að vinna hjá ,,átrúnaðargoðinu'' þar sem Kjartanstaðaræktunin hefur alltaf verið í uppáhaldi. Þið ættuð bara að vita hversu oft ég fór inn á síðuna þeirra í den, bíðandi eftir uppfærslu.
Stutt myndband af honum Töfra sem ég gerði til gamans. Töfri er einstakur gæðingur og dreymir mig um að halda báðum hryssunum mínum undir hann. Hér er hann í léttu formi. Takið eftir mýktinni, burðinum og afturfótahreyfingunum hjá hestinum - hreint einstakt. Ef þú sérð ekki myndbandið ýttu hér.
Það væri alger draumur að halda Spólu undir Töfra næsta vor (væri reyndar til í annað Tývarsafkvæmi ef það fyrsta heppnast, heheh) og svo Stillingu eftir LM2010. Þá ætti ég eitt undan Tývari (vonandi!) og hryssurnar báðar undan Smára - og þar með myndi ég samtvinna mín uppáhalds hross (fyrir utan mín eigin auðvitað), Ternu, Tývar, Töfra og Smára. Ég byrja bráðlega í tamningunum og verður það mjög ánægjulegur starfi, sérstaklega í ljósi þess að ég fæ að smelluþjálfa hrossin en Þorvaldur er áhugasamur um aðferðina sem er mjög gaman. Ég er að sökkva mér enn meira út í smelluþjálfunina og munu mörg mismunandi hross aðstoða mig við að læra meira og verða betri ,,smelluþjálfari'' - en þessi aðferð er mjög áhrifarík og þægileg fyrir bæði mann og hest þar sem hesturinn skilur þetta ,,tungumál''. Ég hef verið að fá dálítið af fyrirspurnum vegna kennslu á smelluþjálfun og mun ég mjög líklega vera með einhverja kennslu í vetur á sómasamlegu verði svo sem flestir geti nýtt sér það. Þá er nú betra að vita sem mest og því er best að fara aftur í bækurnar...
Sólarkveðja,
Linda
Flettingar í dag: 66
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 103
Gestir í gær: 40
Samtals flettingar: 72632
Samtals gestir: 23884
Tölur uppfærðar: 3.9.2010 19:01:43
