Fréttir

25.8.2008

Dýraverndarráðstefna í Finnlandi




Dýraverndarráð Norðurlandanna. Ég lengst til hægri, ekta beinhvítur Íslendingur!

Hér kemur loksins blogg seint og síðar meir, afsaka seinaganginn. Margt hefur verið að gerast hjá mér þessa dagana og má þá helst nefna ferðlag sem ég fór til Finnlands um helgina á ráðstefnu dýraverndarsamtaka á norðurlöndum. Ég og Ólafur Dýrmundsson, formaður og framkvæmdastjóri Dýraverndarsambands Íslands fórum saman og var ferðin í alla staði vel heppnuð. Ráðstefnan var haldin á laugardegi og var mjög áhugavert og lærdómsríkt að heyra hvað hin samtökin eru að gera. Svíþjóð er til dæmis með mjög vinsælan sjónvarpsþátt um velferð dýra, námsefni í skólana og fl. Dönsku samtökin eru risastór með um 30-40 manns í fullri vinnu á hverjum degi og má nefna að þeir hafa sérstakar merkingar á dýraafurðir sem tryggir neytandanum að velferð dýrsins hafi verið höfð að leiðarljósi. Finnsku samtökin eru mjög dugleg og hafa sína eigin eftirlitsmenn sem virka eins og auka eftirlit við búfjáreftirlitsmennina og hefur það hjálpað mjög þar í landi. Norsku samtökin eru nokkuð stór og mjög virk en dönsku samtökin eru þó langstærst með um 100.000 félagsmenn. Eitt helsta báráttuefni þeirra allra var að vinna að betri meðferð og merkingum á köttum og að fá fram breytingar á svokölluðu factory farming eða verksmiðjubúskap. Það er þegar komið er fram við dýrin eins og framleiðslueiningu sem dregur í raun ekki andann - dýrin húka í litlum þröngum búrum og fá aldrei að sjá sólarljós og meðferð þeirra mjög slæm. Á Íslandi eru svona gerðir af búum en á það aðalega við um flest svínabú, kjúklingabú og loðdýrabú. Þessu verður að breyta og bæta verður meðferð og aðbúnað sláturdýra hérlendis og um allan heim.



Ole úr dönsku samtökunum, Sven formaður sænsku samtakana og ég eitthvað að grínast.

Ólafur var með góða tölu um starf sambandsins á Íslandi en mikil undirbúningsvinna hefur verið í gangi og er henni loks lokið. Nú byrjar ballið, allt er tilbúið og mun okkar fyrsta verk verða að halda málþing um ábyrgt gæludýrahald í haust. Hlakka mikið til!

Eftir að Ólafur hafði talað dreifði ég snaggaralegum bæklingi til allra um áhrif méla á hesta og um Beisli án Méla. Erlendis er bannað að nota mélarlaus beisli í keppni og hindrar það sannarlega almenna notkun þess en á Íslandi er leyfilegt að nota þau (við erum greinilega á undan í einhverju!). Ef reglunum yrði breytt myndu fleiri hafa áhuga á að þjálfa og svo keppa með mélalaus beisli og þar með myndi velferð hesta vera aukin þar sem búnaðurinn er sársaukalaus (amk Beisli án Méla). Öll samtökin höfðu gríðarlega mikinn áhuga og báðu til að mynda finnsku samtökin mig um að rita grein um málið í tímarit sitt. Öll voru þau mjög hissa á að hægt væri að stjórna hesti svona vel án méla og glöddust mjög að annar möguleiki væri til. Minn draumur er að mélalaus beisli verði leyfð í allri keppni til jafns við mélin og grunar mig að í framtíðinni muni fólk horfa meira til mélalausu beislanna vegna þess að stjórnunartækni þeirra byggist ekki á sársauka líkt og mélin.



Ferð með Misku úr finnsku samtökunum.

Finnsku samtökin voru svo elskuleg að bjóða mér í smá ferð um Helsinki á sunnudeginum til að sjá sveitabæ sem er opinn almenningi. Það var mjög gaman og átti ég skemmtilegar samræður um hesta við stúlkuna sem fór með mig, hana Misku. Hún er mikið í klassískri reiðmennsku og ræddum við allt frá skeifum og mélum til þjálfunaraðferða og hnakka! Henni langar ekki að nota hnakk með virki þar sem henni finnst hesturinn ekki eins frjáls með hann svo ég sagði henni frá Ansur hnakkinum sem Úrvalshestar hafa verið að kynna hérlendis og var hún mjög spennt fyrir honum. Ég sá nokkur falleg húsdýr og voru þar með talin 2 gullfalleg svín en svín eru uppáhaldsdýrin mín fyrir utan hesta. Mig dreymir um að eignast snoturt land stutt frá höfuðstaðnum og vera þar með hrossarækt en þar væru einnig örfáar kindur, svín, hænur og kýr. Þessi fáu dýr yrðu öll smelluþjálfuð (eða þjálfuð á einhvern annan hátt - kemur í ljós hverju maður kynnist í framtíðinni) og svo væri draumurinn að skólarnir kæmu í heimsókn til að hitta húsdýrin - en til að sjá þau í allt öðru ljósi - hvað þau eru sniðug, falleg og klár. Svín eru til dæmis greindust allra húsdýra og standa hundar þeim til dæmis að baki hvað það varðar. Auðvitað á ekki að flokka verðmæti lífs eftir greind þess en gaman væri að leyfa fólki að sjá þessi dýr í nýju og skemmtilegra ljósi og opna hug þeirra fyrir þeim.



Eitt sætasta og yndislegasta dýr jarðarinnar, svínið.

Ferðin var í heild mjög fræðandi og skemmtileg en ferðalagið heim var þó heldur langt því ég þurfti að millilenda í Danmörku. Maturinn var stundum erfiður fyrir mig því ég er grænmetisæta og oft er ekkert til handa svona gikkum á matsölustöðum heheh. Ég neyti mjólkurvara og slíkra dýraafurða (og kýs að afurðirnar séu frá lífrænum eða free range búum) því ég tel að húsdýrin þurfi líka að vinna fyrir lífsviðurværinu líkt og við en þurfi kannski ekki að láta lífið fyrir það. Þetta er mögulega lausnin við spurningunni sem grænmetisætur eru svo oft spurðar að: ,,Hvað á þá að gera við öll dýrin ef allir hætta að borða kjöt?!'' Kýrnar gæfu mjólkina, kindurnar ullina og svo framvegis... Hvað svínin varðar væri mögulega hægt að rækta loðin svín og nýta þá feldinn á einhvern hátt eða rækta þau þannig að þau verði smærri í sniðum og verði sem félagar - enda snilldar dýr. Já öll höfum við misjafna sýn en bæta verður aðbúnað og meðferð sláturdýra, það er mikilvægast af öllu.

Vil einnig minna á síðuna www.dyravernd.is en hún komin á stað þó miklar breytingar verði á henni á næstunni - bæði hvað varðar útlit og innihald.

Þar til næst,
Sólarkveðja,
Linda Karen

Skrifað 25.8.2008 kl. 21:10 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 90
Gestir í dag: 31
Flettingar í gær: 103
Gestir í gær: 40
Samtals flettingar: 72656
Samtals gestir: 23889
Tölur uppfærðar: 3.9.2010 20:23:26