Fréttir
7.8.2008
Þessi smelluþjálfun hlýtur að virka
Og heimili okkar er Jörðin...
Horfði á frábæra BBC heimildamynd um alheiminn og fræddist enn frekar um þessi mál en geimurinn hefur alltaf heillað mig. Þessar ótrúlegu stærðir og fjarlægðir og öll þessi fegurð. Frá því var lítill krakki hef ég alltaf haft mikla ást á jarðkringlunni og alltaf haft gaman að því að fræðast um hana. Það er ótrúlega áhugavert hversu mikið Jörðin hefur verið vernduð svo líf megi þrífast hér. Alls kyns loftsteinar eru á kreiki og hafa Júpiter og Tunglið haldið sannkölluðum verndarskyldi yfir okkur. Tunglið er t.d. eitt gatasigti á bakhliðinni, en þá hlið sjáum við aldrei - vinnur fyrir lífið bak við tjöldin. Það er svo sjaldan sem maður spáir í þessari Jörð, maður vaknar bara á morgnana, fer út og í vinnuna. En þessi litla pláneta er svo fögur og undraverð að maður getur ekki annað en fyllst djúpu þakklæti fyrir þetta líf og þetta tækfæri til að fá að vera hér. Að finna fyrir þakklæti er fljótleg leið til að finna fyrir hamingju því þá sér maður hvað maður hefur mikið að þakka fyrir og sér að maður fær alltaf tækifæri til að breyta lífi sínu til hins betra ef maður er ekki nógu sáttur fyrir. Ég tel að tilgangurinn með lífinu sé að vera hamingjusamur og stuðla að hamingju annara og finnst það stórkostlegt markmið að vinna að.
Heimir karlinn að fá verðlaun eftir að hafa framkvæmt eitthvað skemmtilegt bragð.
Tamningarnar í Kjósinni ganga mjög vel og frábært að sjá hvers smelluþjálfunin er megnug. Einn 3 vetra foli af þeim fjórum hrossum sem ég er að temja er frekar hræðslugjarn og óöruggur en með smelluþjálfuninni var ég enga stund að ná til hans. Ég hef verið með svona týpu áður og hefði ég ekki haft þessa aðferð hefði ég líklega þurft að eyða heilmiklum tíma í að fá hestinn til að komast yfir ótta sinn með öðrum hætti. Nokkrum sinnum í hringteymingu rauk hann af stað en af því að hann skildi smelluþjálfunina var hann fljótur að róast þegar hægt var á honum. Hann fékk smellu fyrir að stöðva, verðlaunaður og svo var farið aftur í hringinn eins og ekkert hefði ískorist og námið hélt þægilega áfram. Hefði ég ekki haft þetta tungumál hefði hann líklega verið skíthræddur allan tímann og heldur leiðinlegur viðureignar.
Járningarmaður kom til að járna eldri hross og klippa tvö þessara yngri og þar á meðal þennan hræðslugjarna. Ég undirbjó hann með því að nota smelluþjálfun til að fá hann til að leyfa mér að taka upp fætur. Mig vantaði aðhald til að gera það við afturfætur svo framfæturnir urðu að duga. Járningamaðurinn klippti litla hræðslupúkann eins og ekkert væri og hann var sáttur og glaður á meðan. Tel að hræðslan og fælnin eigi eftir að renna af honum verði hann smelluþjálfaður í gegnum tamninguna, fallegur foli. Einnig átti að klippa unghryssu sem hafði látið öllum illum látum fyrr um vorið og ekki hafði verið hægt að klippa hófana á henni. Ég undirbjó hana líka á sama hátt örlítið daginn áður og stuttu áður en hún var klippt. Hún var alveg róleg á meðan þessu stóð og varð járningarmaðurinn heldur hissa á breytingunni. ,,Þessi smelluþjálfun hlýtur nú eiginlega að virka'' sagði hann og kláraði að klippa hana. ,,Já, heldur betur'' svaraði ég hæstánægð með að heyra annan hestamann sjá raunverulegan árangur - af aðeins um 10 mínutna vinnu með smelluþjálfun.
Stilling gónir í myndavélina 4 vetra gömul.
Þessar tamningar eru furðu skemmtilegar því maður sér svo mikinn árangur með þessari aðferð. Ég hef nú aldrei talið mig mikla verkmanneskju, mun spenntari fyrir bókinni og valdi því Hvanneyri fram yfir Hóla. En eiginlega er það farið að snúast þó ég muni aldrei fara frá bókinni. Það er svo gaman að sjá þessi ungu óreyndu tryppi þroskast. Ein 3 vetra hryssa í þessum hópi fer mjög gjarna yfir girðingu til annara hrossa og höfum við eigandi hennar þurft að sækja hana tvisvar. Í fyrra skiptið teymdi eigandi hennar hana en hún hafði bara verið teymd stuttlega um og hringteymd einu sinni af mér og var því heldur frek á svæði ''teymingarmannsins'', snarsnérist í hringi og þurfti að reka á eftir henni. Næsta dag teymdi ég hana yfir og eigandinn á eftir - hún snarsnérist og gekk á mig og allt hvað eina. Þá ákvað ég að nota smelluþjálfunina til að fá hana til að teymast fallega við hlið mér en ég var búin að kynna hana fyrir aðferðinni. Á rúmri mínutu skildi hún hvaða hegðun ávann henni verðlaun. Ég ítrekaði þetta við hana nokkrum sinnum og hefur hún teymst vel eftir það. Mér þykja þetta hálfgerðir töfrar og vona ég að sem flestir eigi eftir að kynna sér þessa aðferð því hún eyðir út svo miklum misskilningi milli manns og hests sem er svo algengur - flýtir fyrir og einfaldar í raun tamninguna á hrossinu.
Heimir að prjóna á landsmótinu. Lærði það á nokkrum mínutum með smelluþjálfun.
Þangað til næst - hafið það sem best.
Sólarkveðja,
Linda Karen
Flettingar í dag: 66
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 103
Gestir í gær: 40
Samtals flettingar: 72632
Samtals gestir: 23884
Tölur uppfærðar: 3.9.2010 19:01:43