Fréttir
29.7.2008
Hestamenn og náttúruunnendur!
,,Þetta svæði fer allt undir vatn ef virkjað verður á þessu svæði.'' ljósmyndari
Vildi láta hestamenn og náttúruunnendur vita að um mánaðarmótin er síðasti möguleikinn á að gera athugasemd við fyrirhugað aðalskipulag Flóahrepps 2006-2018. Í skipulaginu er gert ráð fyrir Urriðafossvirkjun - þ.e. fyrsta skrefið í átt að því að því að Þjórsárver verði lögð undir virkjun fyrir iðnað (væntanlega í Helguvík). Virkjunin mun aðeins duga í örfáa áratugi og mun svæðið svo verða ónýtileg sandauðn - og því fylgir óhjákvæmilega sandfok sem mun skaða náttúruna um kring - og verða komandi kynslóðum til heilmikilla vandræða.
Hestamenn missa reiðleiðir, bændur lönd (og verða fyrir áreiti v/ sandfoks), fuglar og fiskar missa varpstöðvar og komandi og núverandi kynslóðir missa ómetanlegan gimstein í náttúru Íslands.
Ef þú vilt leggja málefninu lið sendu þá eftirfarandi skjal undirritað fyrir 1. ágúst til:
http://sas.thjorsa.com/Athugasemd.vid.skipulagFloahrepps.doc
Flóahreppur
Þingborg
801 Selfoss
Nánar á síðunni
http://www.thjorsa.com/
Urriðafoss á fallegum sumardegi
Með sólarkveðju,
Linda Karen náttúruunnandi, nemandi, hestamaður og sitthvað fleira.