Fréttir

23.7.2008

Tývar frá Kjartansstöðum



Ég var alveg í vandræðum að velja graðhest í vor þar sem ég er afskaplega kröfuhörð og einnig mjög erfitt að finna hest á hryssu sem hefur ekki byggingu eftir bókinni. Það leið og beið en enginn hestur stóðst þessar kröfur mínar - að vera svipaður karakter og  hryssan mín, rúmur, fallega gerður, fasmikill, mjög geðgóður, viljugur, eðlishágengur og fyrst og fremst sem flækti nú öll mál - að vera með frábærar hækil- og hnéhreyfingar afturfóta. Heldur mátti tollurinn ekki vera of dýr fyrir verðandi námsmanninn svo ekki var það til að hjálpa til.

Tíminn leið og ég fór að verða hálf örvæntingarfull. Kannski voru þetta ómögulegar kröfur hjá mér? Það var ekki fyrr en um vorið sem mig dreymdi draum. Ég er heldur berdreymin og séu draumarnir skýrir þá hlusta ég yfirleitt á þá því reynslan hefur sýnt að þeir leiða mig í rétta átt.

Draumur
Mig dreymdi að ég væri úti um nótt í grútskítugu hesthúsahverfi í úrhelli, var að leita að hesthúsinu hans Sigga Matt. Ég finn kofann og hleyp undan regninu. Skömmu seinna koma þrír menn ríðandi á brúnum, rennblautum, skítugum hestum. Ég spyr hvar Siggi sé og þá rennur hann skyndilega í hlaðið á glæsilegum rauðtvístjörnóttum hesti, nokkuð hálsþykkum en afar gæðingslegum. Það sem ég tók fyrst eftir var að hesturinn var skraufþurr með gljáandi feld og það lýsti af honum eins og eins konar guðlegri veru. Siggi teymdi klárinn fram hjá fullt af hestum sem áttu það sameiginlegt að vera blautir og skítugir - og allir brúnir (kannski tilvitnun í að mig langar síst í brúna hesta?) - og kom hestinum fyrir í stíu. Hesthúsið var dimmt en þar sem sá rauði stóð var birta en hún stafaði af honum sjálfum. Ég stillti mér upp fyrir framan klárinn og mændi á hann dolfallin. Hann lét öllum illum látum og montaði sig ógurlega, greinilega graðhestur. Eftir stutta stund náði ég augnsambandi við hann og spurði - ,,Ert þú hesturinn sem ég er að leita að?''. Hesturinn hætti hamaganginum, reisti sig, hringaði kverk og horfði djúpt í augun á mér á móti. Svo vaknaði ég. Í huganum renndi ég yfir hvaða hestur þetta gæti eiginlega hafa verið. Allar skúffur í höfðinu opnuðust og heilmiklar skjalaflettingar hófust - Siggi Matt, rauðtvístjörnóttur flugrúmur klár... Tývar frá Kjartansstöðum! Þegar ég skoðaði svo hestinn betur stóðst hann nánast allar mínar kröfur, allt frá karaktereinkennunum til ágætra afturfótahreyfinga og verðið hentaði námsmanninum. Það besta var þó að hann er undan henni Ternu frá Kirkjubæ sem ég tel vera eina bestu ræktunarhryssu sem uppi hefur verið og munu niðjar hennar bera þess vitni inn í framtíðina.

Þegar ég sá svo Tývar í haganum eftir landsmótið þekkti ég fyrir sama gæðingslega augnaráðið og fann á mér að ég hafði valið rétt. Í raun er Tývar ekki tvístjörnóttur en með tímanum hefur myndast hvítur blettur nös hans - og draumurinn minn sýndi hann þannig sem mér þykir heldur skemmtilegt. Að sjá hestinn hlaupa um hagann var hrein unun, þvílíkar eðlishreyfingar - bæði á fram og afturdekkjum. Svona eiga hross að vera.




Tývar 5 vetra á landsmóti 1998 - flugrúmur gæðingur

Tývar er nú í hólfi að Ásmundarstöðum 1 sem er stutt frá Hellu í löngu gangmáli. Ég er umsjónarmaður hans og þeir sem hafa áhuga á að nýta sér þennan gæðing - endilega hafið samband. Tývar verður til þjónustu út ágúst og ekkert mál er að bæta við hryssum - geðgóður garpur. Þorvaldur á Kjartansstöðum, ræktandi hans og eigandi lætur vel af honum og telur hann einn sinn besta hest. Einnig hefur hann hrósað geðslagi hans mikið en hesturinn er alltaf mjög rólegur og blíður þó viljinn sé alveg blússandi mikill. 

Ég vona alla vega að pörunin heppnist hjá mér og ég eignist hross með eins gæðingslegt augnaráð og yfirbragð og Tývar - og fas og skörungskap hryssunnar.

Skrifað 23.7.2008 kl. 16:22 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 73
Gestir í dag: 20
Flettingar í gær: 124
Gestir í gær: 59
Samtals flettingar: 48213
Samtals gestir: 17340
Tölur uppfærðar: 17.3.2010 19:13:58